Frumkvöðlar í íslenskri tónlist verða til Icelandic Startups 23. júlí 2019 08:45 Melkorka Sigríður Magnúsdóttir er verkefnastjóri hjá Icelandic Startups. Marino Thorlacius
Firestarter - Reykjavik Music Accelerator, er nýr viðskiptahraðall á vegum Icelandic Startups sem ætlað er að efla íslenskt tónlistarlíf. Hraðallinn hefst þann 10. Október og stendur yfir í fjórar vikur. Icelandic Startups hefur á undanförnum árum stýrt viðskiptahröðlum tengdum helstu atvinnugreinum landsins og nú er komið að tónlistinni. Melkorka Sigríður Magnúsdóttir er verkefnastjóri hjá Icelandic Startups. „Við höfum keyrt ýmiskonar viðskiptahraðla með góðum árangri, meðal annars út frá orku, ferðaþjónustu, tækni, landbúnaði og sjávarútvegi. Hraðall snýst um að hraða ferlinu frá hugmynd að fullbúinni vöru og það gerum við með því að tengja þátttakendur við leiðandi sérfræðinga í viðkomandi fagi, fjárfesta og ólíka aðila úr atvinnulífinu sem geta stutt fyrirtækin,“ útskýrir Melkorka. Tónlistarborgin Reykjavík, ÚTÓN, Samtónn, Sena Live og Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið standa að Firestarter ásamt Icelandic Startups. Þá mun lokahnykkur Firestarter hraðalsins fara fram á Iceland Airwaves. „Við erum afar spennt yfir að hafa fengið Iceland Airwaves til liðs við hraðalinn en þau verkefni sem taka þátt verða kynnt á ráðstefnuhluta hátíðarinnar.Lokahnykkur Firestarter fer fram á ráðstefnuhluta tónlistarhátíðarinnar Iceland AirwavesIceland AirwavesVið munum einblína á umgjörð tónlistarsenunnar frekar en á tónlistarmennina sjálfa í þessum hraðli og leitum að aðilum sem vinna í tónlistargeiranum eins og bókurum, umboðsmönnum, forleggjurum og þeim sem vinna að því að styrkja tónlistarsenuna á einn eða anna hátt. Hér er mikil gróska í tónlistarlífinu og við eigum frábært fólk en umgjörðina hefur stundum skort og það er erfitt að koma fyrirtæki á koppinn. Slíkt getur tekið mörg ár en okkur langar að hjálpa til og flýta þessu ferli. Við erum líka að leita að frumkvöðlum sem vinna að tæknilausnum enda hefur sú þróun verið hröð í tónlistargeiranum. Við þurfum að halda í við tæknina til að vera samkeppnishæf og þar spilar nýsköpun lykilhlutverk,“ útskýrir Melkorka.Hvað er innifalið í hraðlinum?„Fimm til sjö teymi verða valin og er þátttaka ókeypis. Fyrir utan aðgang að ýmsum viðburðum og athygli fá teymin aðgang að fjórum hnitmiðuðum vinnusmiðjum. Þau fá jafnframt fundi með sérfæðingum úr tónlistarheiminum og úr viðskiptaheiminum sem veita ráðgjöf. Meðal þeirra sem munu veita þátttakendum ráðgjöf eru tónlistarmennirnir Ólafur Arnalds, Einar Örn Benediktsson og Georg Hólm. Þá munu frumkvöðlarnir Margrét Júlíana, stofnandi Mussila sem er tónlistartölvuleikur fyrir börn og Guðmundur Hafsteinsson sem starfaði mörg ár hjá Google, einnig vera meðal ráðgjafa. Á lokadegi hraðalsins kynna þátttakendur svo viðskiptahugmyndir sínar fyrir fullum sal gesta.“ Allar nánari upplýsingar um verkefnið má finna á www.firestarter.is. Sækja þarf um fyrir 30. ágúst en hraðallinn hefst 10. október og lýkur 8. nóvember.Þessi kynning er unnin í samstarfi við Firestarter - Reykjavik Music Accelerator.
Tónlist Viðskipti Mest lesið „Þetta er lúmskt skrímsli“ Lífið Segist hafa gert merka uppgötvun nú þegar hann „nálgast endalok lífs“ síns Lífið Batinn á vefjagigt kom úr óvæntri átt Lífið samstarf Michael Bolton með ólæknandi krabbamein Lífið 50+: Tómleikatilfinningin þegar börnin fljúga úr hreiðrinu Áskorun Rapphljómsveit til rannsóknar hjá hryðjuverkadeildinni Lífið Forsalan sögð slá öll fyrri met Lífið Gerði samning við Apple: „Þetta er ótrúleg viðurkenning“ Lífið Justin Bieber nýtur sín norður í landi Lífið Dóttir DeNiro kemur út sem trans Lífið Fleiri fréttir Batinn á vefjagigt kom úr óvæntri átt Viltu vinna spennandi vinninga í vorleik Vísis? Tilbúnir réttir úr smiðju verðlauna kokks Sumarið er komið á Boozt Að eiga tæki frá Stihl er lífsstíll Persónuleg gjafakort sem renna aldrei út Viltu vinna skemmtilegar gjafir fyrir sumardaginn fyrsta? Ný fjarlækningaþjónusta fyrir sykursýkissjúklinga á Selfossi Fullkomnar sögur fyrir páskafríið Fyrsta 100% rafútgáfan af Porsche Macan Lúxus heilsulind á heimsmælikvarða fyrir Íslendinga Hátt í þúsund bangsar fengu hjarta fyrstu helgina Hollywood speglarnir slá í gegn Fullkomið tan og tryllt partý Krílaeggið er nýjasta páskaeggið frá Freyju Stórstjarnan Limahl mætir í N1 höllina í september Frábær fermingartilboð á hágæða sængum og koddum Polestar tekur þátt í HönnunarMars 2025 Tónlist, græjur og Ari Eldjárn í sviðsljósinu Upp á svið í háum hælum eftir Osteostrong Grillað ofan í helstu áhrifavalda landsins Sjá meira