Söngvasafn Sigvalda Kaldalóns endurútgefið Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 10. júlí 2019 09:30 Sigvaldi Kaldalóns tónskáld og læknir.
Einsöngslög Sigvalda Kaldalóns, tónskálds og læknis, hafa verið endurútgefin, en þau hafa verið ófáanleg í fjölda ára. Útgáfan er í tveimur hlutum. Númer 1 nefnist Svanasöngur á heiði og númer 2 Ég lít í anda liðna tíð. Samtals geymir hún 102 sönglög úr smiðju Kaldalóns á fjórum geisladiskum, flutt af tólf af fremstu einsöngvurum þjóðarinnar. Upptökur fóru fram í Salnum, Tónlistarhúsi Kópavogs, á árunum 2003 og 2005. Listrænn stjórnandi var Jónas Ingimundarson og hann annaðist líka píanóleik við allar hljóðritanir, sem voru í umsjá Halldórs Víkingssonar, Fermata hljóðritun. Halldór hafði einnig umsjón með núverandi útgáfu og endurvann upptökurnar með nýjustu tækni. Reynir Axelsson yfirfór ljóðatexta og enskar þýðingar. Ingvar Víkingsson sá um grafíska hönnun. Sigvaldi Kaldalóns sótti sér efnivið til lagasmíða úr sígildum sjóði fjölmargra ljóðahöfunda og tókst afar vel að túlka innihald og anda ljóðanna, færa þau í tónrænan búning með skáldlegri andagift og hljóðfæri sitt að vopni. Útgefandi diskanna er Minningarsjóður Sigvalda Kaldalóns.Svanasöngur á heiði nefnist þessi diskur.
Birtist í Fréttablaðinu Tónlist Mest lesið „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Greindu frá dánarmeini Tim Curry Lífið Gloria Steinem er látin Lífið Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Lífið Úr verkfræðinni í listina: „Stundum verður maður bara að fylgja innsæinu“ Lífið samstarf Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Lífið Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Lífið Alexander Skarsgård heiðraður á RIFF Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira