Blikur á lofti í veðrinu Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 1. júlí 2019 08:00 Víða um land er von á rigningu um miðja vikuna. veðurstofa íslands
Það eru blikur á lofti í veðrinu seinni partinn á morgun, eins og það er orðað í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Þá mun þykkna upp suðvestan til og er spáð rigningu seint annað kvöld. Á miðvikudag er síðan spáð rigningu víða um land en norðaustan til á hann að haldast þurr. Hitatölur fara heldur lækkandi. Í dag stefnir hins vegar í frekar norðlæga átt og léttir til á Suður- og Vesturlandi. Hitinn verður víða 10 til 15 stig. Um landið austanvert er útlit fyrir smáskúrir og þá verður frekar svalt norðaustan til eða hiti á bilinu 4 til 9 stig. „Í kvöld bætir í norðvestanátt á NA-horninu með rigningu við ströndina. Á morgun dregur hægt og rólega úr bæði vindi og úrkomu þar, en áfram frekar svalt í veðri. Annars staðar er útlit fyrir léttskýjað veður á morgun og hlýnar víða þar sem hiti fer jafnvel í 19 stig um landið S-vert,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.Veðurhorfur á landinu:Norðlæg átt 3-8 m/s með morgninum. Léttir til á SV- og V-landi, en smáskúrir A-til fram eftir degi. Norðvestan 8-15 á NA-horninu í kvöld og rigning við ströndina. Hiti 5 til 15 stig að deginum, svalast á NA-landi.Dregur smám saman úr vindi og úrkomu NA-til á morgun, annars breytileg átt 3-8 og að mestu bjart. Þykknar upp SV-lands síðdegis með rigningu annað kvöld. Hiti 10 til 19 stig, hlýjast S- og V-lands.Á þriðjudag:Norðan 3-8 m/s og bjart með köflum, en norðvestan 8-13 NA-til á landinu og rigning við ströndina. Hiti 10 til 18 stig, en 5 til 10 NA-lands. Suðaustan 5-10 og rigning á SV-landi seint um kvöldið.Á miðvikudag:Suðlæg eða breytileg átt 3-8 m/s og rigning um V-vert landið, en þurrt NA- og A-til. Hiti yfirleitt 10 til 15 stig.Á fimmtudag:Breytileg átt og víða skúrir. Hiti 6 til 15 stig, mildast syðst. Norðan 5-13 m/s um kvöldið, með rigningu á A-verðu landinu.Á föstudag:Minnkandi norðanátt, skýjað og úrkomulítið, en léttir til S- og V-lands þegar líður á daginn. Hiti 7 til 16 stig, hlýjast SV-til.
Veður Mest lesið Alvöru inniveður um helgina Innlent Segir Kúbu brátt munu falla Erlent Þurfi ekki að óttast bílnúmeralesara við Sorpu Innlent Vatnselgur undir brúnni í Ártúnsbrekku Innlent Listamönnum fækkar ört Innlent Hvalfjarðargöng lokuð Innlent Segir hvorki Jesú, Múhameð né Þór hafna yfir lög Innlent Enn frekari dráttur á máli Margrétar Innlent Alvarlegt umferðarslys við Munaðarnes Innlent Kristinn hafði betur gegn Alexöndru og verður oddviti Pírata Innlent Fleiri fréttir Segir hvorki Jesú, Múhameð né Þór hafna yfir lög Þurfi ekki að óttast bílnúmeralesara við Sorpu Listamönnum fækkar ört Alvöru inniveður um helgina Kristinn hafði betur gegn Alexöndru og verður oddviti Pírata Selfosskirkja 70 ára og kirkjukórinn 80 ára Kjartan og Marta til liðs við Miðflokkinn Útiloka að þjóðaratkvæðagreiðslan fái hraða afgreiðslu Rætt við stjórnarandstöðuna um atkvæðagreiðslu um ESB Truflanir víða vegna eldingaveðurs Hvalfjarðargöng lokuð Vatnselgur undir brúnni í Ártúnsbrekku Ríkisstjórnin feli aðgerðaleysi á bak við atkvæðagreiðsluna Enn frekari dráttur á máli Margrétar „Verið að vaða áfram með æðibunugangi“ Rafmagnslaust vegna eldingar Jakob Bjarnar, Kjartan og Sunna tilnefnd til blaðamannaverðlauna Bráðabirgðaráðstafnir í Reynisfjöru: Nýr útsýnispallur rís í vor Mál Margrétar flutt á ný vegna dráttar Bjarki lætur staðar numið í Dalabyggð Ísland sé í sterkari stöðu en áður fyrir aðildarviðræður Alvarlegt umferðarslys við Munaðarnes Bein útsending: Staða loftlagsrannsókna á Íslandi Þjóðaratkvæðagreiðslan fer fram 29. ágúst Kynna þjóðaratkvæði um framhald viðræðna Bein útsending: Kynna tillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu Methiti í hafinu við Ísland vísbending um stærri breytingar Kynna tillöguna um þjóðaratkvæðagreiðsluna klukkan 11:30 „Brýn nauðsyn“ geti kallað á rof þagnarskyldu heilbrigðisstarfsfólks Bein útsending: Staða mæðra á vinnumarkaði Sjá meira