Íslenski boltinn

Besta fyrri umferð KR-inga í átta ár

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
KR-ingar náðu í gær fjögurra stiga forystu á toppi Pepsi Max deildar karla í fótbolta eftir 2-0 sigur á Breiðabliki í toppslag liðanna á Meistaravöllum.

KR-liðið hefur nú unnið sjö deildarleiki í röð og er auk þess komið áfram í undanúrslit Mjólkurbikarsins. KR-liðið tapaði síðast stigi í leik á móti Grindavík 16. maí síðastliðinn en síðan eru liðnir 47 dagar.

Grindavík vann þann leik 2-1 og KR sat eftir þann leik í sjötta sæti deildarinnar fimm stigum á eftir toppliði Skagamanna. KR vann 3-2 sigur á HK í næsta leik og hefur síðan unnið alla níu deildar- og bikarleiki sína.

Mótið er núna hálfnað hjá Vesturbæjarliðinu og KR-ingar eru þegar komnir með 26 stig í Pepsi Max deildinni. Þeir hafa aðeins einu sinni náð í fleiri stig í fyrstu ellefu leikjunum í tólf liða deild en síðan eru liðin átta ár.

KR náði í 27 stig í fyrstu ellefu leikjum sínum sumarið 2011. Þá var Rúnar Kristinsson einnig á sínu öðru ári með liðið og KR endaði á því að vinna tvöfalt það haust, það er varð bæði Íslandsmeistari og bikarmeistari.

KR-ingar eru með tólf stigum meira í ár en á sama tíma undanfarin tvö tímabil þegar náðu „bara“ í fjórtán stig í fyrstu ellefu leikjunum.

Síðustu þrjú sumur á undan þessu eru í öll í hóp þeirra tímabili þar sem KR-liðið hefur byrjað verst síðan að tólf liða deild var tekin upp sumarið 2008.

Rúnari Kristinssyni hefur nú tekist að rífa KR-liðið upp úr öldudalnum sem það var í undanfarin tímabil og það eru miklar líkur á titli eða titlum hjá liðinu þetta haustið.

Stig og markatala KR í fyrstu ellefu leikjunum í sögu tólf liða deildar:

2019 - 26 stig og +11 (21-10)

2018 - 14 stig og +3 (16-13)

2017 - 14 stig og -1 (16-17)

2016 - 13 stig og = (12-12)

2015 - 23 stig og +9 (19-10)

2014 - 19 stig og +3 (15-13)

2013 - 25 stig og +11 (25-14)

2012 - 23 stig og +9 (23-14)

2011 - 27 stig og +18 (25-7)

2010 - 13 stig og -1 (17-18)

2009 - 21 stig og +7 (23-16)

2008 - 18 stig og +6 (19-13)

Besta fyrri umferð KR í 12 liða deild - Raðað upp eftir stigum:

1) 2011 - 27 stig og +18 (25-7)

2) 2019 - 26 stig og +11 (21-10)

3) 2013 - 25 stig og +11 (25-14)

4) 2012 - 23 stig og +9 (23-14)

4) 2015 - 23 stig og +9 (19-10)

6) 2009 - 21 stig og +7 (23-16)

7) 2014 - 19 stig og +3 (15-13)

8) 2008 - 18 stig og +6 (19-13)

9) 2018 - 14 stig og +3 (16-13)

9) 2017 - 14 stig og -1 (16-17)

11) 2016 - 13 stig og = (12-12)

11) 2010 - 13 stig og -1 (17-18)






Fleiri fréttir

Sjá meira


×