Fimleikafélagið: Innsýn í líf þjálfara í fjórðu deildinni Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 5. júlí 2019 14:00
Brynjar Ásgeir Guðmundsson spilar ekki einungis allar stöður á vellinum heldur hefur hann einnig tekið að sér þjálfun fjórðu deildarliðsins ÍH. Svo hefst níundi þáttur Fimleikafélagsins. Fimleikafélagið er þáttur í umsjón Freys Árnasonar þar sem sjónum er beint að leikmönnum meistaraflokks FH í Pepsi Max deild karla og er fókusinn oftar en ekki á líf leikmanna fyrir utan völlinn. Freyr fylgdi Brynjari Ásgeiri eftir á leikdegi ÍH. Dagurinn byrjaði ekki vel fyrir Brynjar því hann hafði valið í hóp fyrir leikinn við Kormák/Hvöt kvöldið áður og strax voru þrír búnir að draga sig úr hópnum. „Þá er bara einn að fara í próf og annar að eignast barn og þriðji gaurinn bara á tónleikum,“ sagði Brynjar. Eftir því sem leið á daginn kvarnaðist meira úr hópnum hjá Brynjari. Brynjar þurfti að sjá um grill fyrir fótboltaskólann í Kaplakrika og fara sjálfur á æfingu hjá FH á meðan hann reyndi að verða sér úti um framherja til þess að spila fyrir ÍH um kvöldið. Þegar í leikinn var komið gekk ekki nógu vel hjá ÍH mönnum og þeir töpuðu 2-0. Seinna markið var sjálfsmark frá varamanninum Króla, hann hafði mætt aðeins seint í leikinn því hann var að spila á Secret Solstice fyrr um kvöldið. Þessa skemmtilegu innsýn inn í líf þjálfara í fjórðu deild karla má sjá í spilaranum hér að ofan.
Íslenski boltinn Mest lesið Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Landsliðsþjálfarinn á leið á spítalann: „Þetta er sjokk“ Fótbolti Keppnin stoppuð eftir árekstur Leclerc Formúla 1 „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Fleiri fréttir Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Vestri valtaði yfir Völsung Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Aron Einar heim í Þorpið? Sara Björk tekur einnig að sér afreksþjálfun hjá Haukum Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Á völlinn eftir þrjú slit, fjögur ár og fimm aðgerðir: „Ólýsanlegt“ Sara Björk snýr heim í Hauka „Það vill enginn í hópnum sjá hann fara“ Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Ögmundur laus allra mála hjá Val Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Þróttarar með mikilvægan sigur á Grindvíkingum Eini grasleikurinn kom í veg fyrir markamet Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Emilsþruma, þrenna, fjórtán ára með stoðsendingu og markaveislur út um allt Kjánaleg hegðun og stælar sem verðskuldi rautt spjald „Eins gott að ég setti ekki Óskar á bekkinn“ „Fúlt að fara með þennan skell inn í hléið“ Afturelding á toppinn eftir stórsigur á Fylki Umfjöllun og viðtöl: KR - KA 5-3 | Markaveisla á Meistaravöllum Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-5 | Sakbitinn Óskar lék við hvurn sinn fingur í glæsilegum sigri Víkings „Engan bilbug á okkur að finna“ Umfjöllun: Þór - Stjarnan 1-3 | Lífsnauðsynlegur sigur Garðbæinga „Ákvað að kontra hann í samúel“ Gerði sínu gamla liði mikinn grikk Sjá meira
Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-5 | Sakbitinn Óskar lék við hvurn sinn fingur í glæsilegum sigri Víkings