Spá allt að 20 stiga hita á austanverðu landinu Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 21. júní 2019 08:35 Hitakortið í hádeginu á mánudag lítur bara vel út. veðurstofa íslands
Vestlæg átt verður ríkjandi á landinu frá og með sunnudegi og fram í næstu viku. Hlýr loftmassi færist yfir landið og verður þá bjart og hlýtt á austanverðu landinu. Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands en þar segir að tími sé til kominn að hlýni austan til enda hefur verið sólarlítið þar það sem af er sumri og hitinn með lægra móti. „Vestan lands verður meira og minna skýjað og einhver væta eftir helgi. Sú væta er líkleg til að vera á formi súldar og ekki rigning nema að litlu leyti. Ekki er víst að úrkomumagnið verði nægjanlegt til að bleyta almennilega í þurrum gróðri eða hressa upp á vatnslitlar laxveiðiár,“ segir á vef Veðurstofunnar. Í dag má svo búast við skúrum í flestum landshlutum en síst þó vestast á landinu. Hitinn verður á bilinu 7 til 16 stig, hlýjast á Suðurlandi. Á morgun verður svo bjart með köflum og yfirleitt þurrt. Búast má við rigningu austan lands framan af morgundegi og dálítið svalara veðri en það rofar til seinnipartinn. Hitinn verður á bilinu 10 til 17 stig.Veðurhorfur á landinu:Norðan og norðvestan 3-8 m/s. Skúrir í flestum landshlutum í dag, síst þó vestast á landinu. Hiti 7 til 16 stig, hlýjast á Suðurlandi.Vestan 3-8 á morgun, bjart með köflum og yfirleitt þurrt. Hiti 10 til 17 stig. Norðlægari og svolítil rigning austanlands framan af degi og svalara, en rofar til þar seinnipartinn.Á sunnudag og mánudag:Suðvestan 5-10 og víða léttskýjað, en skýjað að mestu vestanlands. Hiti 11 til 19 stig, hlýjast um landið austanvert.Á þriðjudag og miðvikudag:Ákveðin vestanátt. Skýjað á vesturhelmingi landsins og dálítil rigning eða súld af og til. Hiti 10 til 14 stig. Bjartviðri austantil með hita 15 til 20 stig.Á fimmtudag:Vestanátt framan af degi en gengur í norðan 5-10 síðdegis. Líkur á dálítilli rigningu eða súld í flestum landshlutum. Kólnandi veður.
Veður Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Fleiri fréttir Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Sjá meira