Fjörutíu og sex þjóðríki og borgir hafa innleitt sykurskatt Þorbjörn Þórðarson skrifar 25. júní 2019 19:00
Fjörutíu og sex þjóðríki og borgir á heimsvísu hafa innleitt sykurskatt til að draga úr sykurneyslu. Yfirlæknir hjartagáttar Landspítalans segir að hækkun virðisaukaskatts á sykruð matvæli hér á landi sé þarft skref og löngu tímabært. Í aðgerðaáætlun landlæknis til að draga úr sykurneyslu er lagt til að sælgæti og gosdrykkir sem innihalda sykur og sætuefni verði færð úr neðra þrepi virðisaukaskatts, sem er 11 prósent, í hærra þrep vrðisaukaskatts sem er 24 prósent. Samhliða þessu er lagt til að sett verði sérstakt vörugjald á þessar vörur en saman á þetta tvennt að skila 20 prósenta hækkun á verði sælgætis og gosdrykkja í þeim tilgangi að draga úr sykurneyslu. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra kynnti aðgerðaáætlunina í ríkisstjórn síðastliðinn föstudag. Var á fundi ríkisstjórnarinnar ákveðið að skipa starfshóp sem falið verður að innleiða áætlunina. Sykurneysla er helsti orsakvaldur áunninnar sykursýki og offitu Sykur er helsti orsakvaldur áunninnar sykursýki og offitu á heimsvísu. Bandaríski læknirinn Robert H. Lustig, sem er sérfræðingur í offitu barna og prófessor við læknadeild University of California, heldur því fram að viðbættur sykur sé eitur í ljósi þess hvernig líkaminn brýtur efnið niður. Víða um heiminn hefur lýðheilsuáætlunum verið ýtt úr vör í þeim tilgangi að draga úr sykurneyslu og til að draga úr offitu. Rannsóknir sýna að skattlagning á sykraðan mat og drykk virkar ef hún er áþreifanleg. Hún þarf að vera nægilega há svo neytendur breyti hegðun sinni. Í mars síðastliðnum birtust niðurstöður á áhrifum sykurskatts í Berkeley í Kaliforníu þremur árum eftir innleiðingu sykurskattsins þar í borg. Samkvæmt niðurstöðunum, sem birtust í American Journal of Public Health, dróst neysla á gosdrykkjum saman um helming eftir innleiðingu sykurskattsins. Í aðgerðaáætlun landlæknis er því haldið fram að lýðheilsusjónarmið hafi ekki ráðið för síðast þegar sykurskattar voru innleiddir á Íslandi í formi vörugjalda enda hafi skattlagningin verið allt of hófleg og óveruleg. „Árið 2013 var gerð tilraun hér á landi til að setja vörugjöld á vörur sem innihéldu sykur eftir sykurinnihaldi og átti sú aðgerð að vera lýðheilsuaðgerð en þegar upp var staðið var ekki tekið tillit til lýðheilsusjónarmiða við þá framkvæmd. Þá hækkuðu sykraðir gosdrykkir einungis um 5 krónur á lítra og súkkulaði lækkaði í verði þar sem vörugjöld sem fyrir voru á súkkulaði voru hærri en þau vörugjöld sem lögð voru á eftir sykurinnihaldi. Embætti landlæknis benti þá á að þessi aðgerð væri ekki líkleg til árangurs heldur væri áþreifanleg hækkun á verði gosdrykkja og sælgætis árangursríkari leið til að draga úr sykurneyslu landsmanna og virka þannig sem forvarnaraðgerð til að draga úr óheilbrigðum neysluvenjum. Það hafa því í raun aldrei verið settar álögur á sykruð matvæli á Íslandi út frá lýðheilsusjónarmiðum,“ segir í aðgerðaáætluninni. Karl Andersen, sérfræðingur í hjartalækningum og yfirlæknir Hjartagáttar Landspítalans, hefur í sínu starfi verið í áratugi í návígi við skaðlegar afleiðingar sykurneyslu. Hann segist fagna áformum um hækkun virðisaukaskatts á sykruð matvæli. „Ég held þetta sé mjög þarft skref og löngu tímabært. Við höfum séð afleiðingar af vaxandi sykursýki á Íslandi sem hefur tvöfaldast á síðustu tuttugu til þrjátíu árum og er beinlínis afleiðing af of mikilli sykurneyslu. Þetta er vel þekkt á Íslandi. Við vitum að í samanburði við Norðurlöndin innbyrðum við langmest af sykri og það gildir um sykraða gosdrykki líka,“ segir Karl.Norðmenn riðu á vaðið 1981 Sykurskattar hafa verið innleiddir í 46 þjóðríkjum og borgum víðs vegar um heiminn síðan Norðmenn riðu á vaðið árið 1981. Fjölmargar borgir Bandaríkjanna eru á listanum en þar má nefna Berkeley, Albany, Philadelphia, Oakland, San Francisco og Seattle. Mörg þeirra ríkja sem hafa innleitt sykurskatta hafa gert það á síðustu tveimur árum en þar má nefna Portúgal, Indland, Tæland, Filippseyjar, Suður-Afríku, Bretland, Írland og Perú. Sum þeirra ríkja sem hafa sykurskatt eru að hækka hann um þessar mundir en þar má nefna Noreg og Frakkland. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin mælir með skattlagningu til að draga úr sykurneyslu í sínum tilmælum. „Það hefur verið sýnt fram á að skattlagning á óhollustu dregur úr neyslu hennar. Í raun er hér verið að beita sömu aðferðafræði og við höfum gert í nokkra áratugi, með mjög góðum árangri, gegn tóbakinu,“ segir Karl Andersen.
Heilbrigðismál Skattar og tollar Tengdar fréttir Fólk dragi úr sykuráti Alþjóðaheilbrigðisstofnunin segir að dagleg sykurneysla almennings eigi að vera fimm prósent af heildarfjölda hitaeininga sem hann innbyrðir. 7. mars 2014 07:00 Svandís opin fyrir því að setja á sykurskatt að nýju Dauðsföllum af völdum sykursýki 2 hefur fjölgað hratt síðustu ár og vilja lýðheilsufræðingar að sykurskattur verði lagður á að nýju. Heilbrigðisráðherra er opin fyrir slíku. 4. desember 2017 07:00 Sykurneysla að fara með Bandaríkjamenn í gröfina Í fréttaþættinum 60 Minutes á CBS sjónvarpsstöðinni í gærkvöldi var fjallað um það að sykurneysla væri að fara með Bandaríkjamenn í gröfina. 2. apríl 2012 08:00 Fíkniefnið sykur Viðbættur sykur er viðvarandi vandamál í neyslumynstri fólks. Íslensk börn fá of stóran hluta hitaeininga úr viðbættum sykri. Rannsóknir hafa sýnt fram á að neysla sykurs sé ávanabindandi og að hún valdi til dæmis hjartasjúkdómum, sykursýki og sams konar áhrifum á lifrina og óhófleg 6. desember 2018 06:30 Ekkert lát á íslensku sykuræði Framboð á sykri hefur verið mest á Íslandi af Norðurlöndum. Hver Íslendingur borðar fjörutíu til fimmtíu kíló af sykri á ári. Norðmenn nærri tuttugu kílóum minna af sykri árlega. 6. febrúar 2016 07:00 Lagt til að minnka sykurneyslu um helming Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hefur lagt til ný viðmið í sykurneyslu almennings. 6. mars 2014 07:00 25 grömm Það hvernig draga eigi úr sykurneyslu er pólitísk spurning. Það er í eðli sínu stjórnlynt viðhorf að skattleggja mat sem er óhollur í þeim tilgangi að draga úr neyslu á honum. 13. júní 2017 07:00 Sælgætisrisar fordæma áformin um sykurskatt Sælgætisframleiðendur gagnrýna hugmynd heilbrigðisráðherra um endurupptöku sykurskatts. Helgi í Góu spyr hvort eigi þá að deila út skömmtunarseðlum og forstjóri Nóa Síríus segir ósanngjarnt ef taka eigi einn fæðuflokk fyrir. 8. desember 2017 06:00 Skynsamir líka berskjaldaðir fyrir sykri því hluti heilans er frumstæður Nýleg dæmi frá útlöndum sýna að sykurskattar virka sem tæki til að draga úr neyslu. Forstöðumaður Lýðheilsustofnunar Noregs segir að stofnunin styðji sykurskatt sem tæki til að draga úr sykurneyslu. Sykurskattur er við lýði í Noregi með ágætum árangri. 3. október 2016 14:00 Gosið er ekki sökudólgurinn Kastljósinu hefur verið beint að sykruðum gosdrykkjum sem sökudólg þess að landsmenn eru að þyngjast. 5. janúar 2017 07:00 Vilja háan sykurskatt og lækka verð á hollustu Lagt er til að hækka verð á sykruðum og sykurlausum gosdrykkjum og sælgæti um hið minnsta 20 prósent í nýrri aðgerðaáætlun gegn sykurneyslu Íslendinga. 23. júní 2019 18:30 Meira um gos Þegar bent er á skaðsemi sykurs í fjölmiðlum þá rísa gosdrykkjaframleiðendur upp á afturfæturna. Þeir setja sig í sóknarstellingar og baráttan fyrir þeirra hagsmunum fer í annan gír. Svona til að tryggja að þjóðin haldi nú alveg örugglega áfram að drekka sig í spik. Því þá græða þeir áfram peninga. 10. janúar 2017 07:00 Mest lesið Íslenskur morðingi í Bandaríkjunum: „Gerðu það pabbi, ekki gleyma mér“ Innlent Fundu mögulega eitt af 67 fórnarlömbum hálfri öld síðar Erlent Pirraður yfir því hvað friður er langt utan seilingar Erlent Tók málin í eigin hendur og opnar dagforeldravef Innlent Kínverskir verktakar fá ekki að bora skipagöng í Noregi Erlent Átökin ná nýjum hæðum Erlent Samningurinn nauðsynlegur og ekkert athugavert við hann Innlent Blasi illa við að það eigi að troða áformunum í gegnum kerfið Innlent Hópsmit á Mánagarði ein „alvarlegasta uppákoma af þessu tagi“ Innlent Sovéskt geimfar hrapaði til jarðar eftir misheppnað ferðalag til Venus Erlent Fleiri fréttir Veittu eftirför í Árbæ Nýtt íslenskt hundanammi slær í gegn „Hreint og tært málþóf í sinni skýrustu mynd“ Veiðigjöld, vopnahlé og veðurblíða í bakgarðshlaupi Lengstu fyrstu umræðu í sögu Alþingis lokið Fundu, lögðu hald á og drápu snáka Efnahags- og viðskiptanefnd taki fyrir „tvöföldun á skatti“ Samningurinn nauðsynlegur og ekkert athugavert við hann Samningur saksóknara, þras á Alþingi og bakgarðshlaup í blíðunni Lögreglan á Suðurlandi rannsakar gagnastuldinn Tók málin í eigin hendur og opnar dagforeldravef Skjálfti upp á 3,1 við Herðubreið Sérstakur saksóknari gerði samning við PPP Íslenskur morðingi í Bandaríkjunum: „Gerðu það pabbi, ekki gleyma mér“ Þjófar réðust á starfsmann verslunar Blasi illa við að það eigi að troða áformunum í gegnum kerfið Metfjöldi sjálfsvígssímtala og hætt við þjónustuskerðingu Hópsmit á Mánagarði ein „alvarlegasta uppákoma af þessu tagi“ Ökumaðurinn hefur gefið sig fram Gagnaþjófnaður til rannsóknar á þremur stöðum Íbúasamtök vilja láta endurskoða rafrænt eftirlit Bílastæðasjóðs Víðfeðm rannsókn, baunað á skólaþorp á bílastæði og stórvirki Mál Margrétar fyrir opnum tjöldum Útilokað að þeir hafi ekki vitað af efnunum og fá þunga dóma „Enn sem er komið er staðan óbreytt og orð Sönnu ósönn“ Munu geta aðgreint fanga eftir alvarleika brota í nýju fangelsi Nótt innbrota í Laugardal: „Ömurlegt að það sé verið að fara inn í bílana en vandamálið er stærra“ Ólafur Þór segir ekki tilefni til afsagnar Túnin aftur rennandi blaut en spáð hlýindum í næstu viku Framkvæmdir á hólmanum í fullum gangi Sjá meira
Fólk dragi úr sykuráti Alþjóðaheilbrigðisstofnunin segir að dagleg sykurneysla almennings eigi að vera fimm prósent af heildarfjölda hitaeininga sem hann innbyrðir. 7. mars 2014 07:00
Svandís opin fyrir því að setja á sykurskatt að nýju Dauðsföllum af völdum sykursýki 2 hefur fjölgað hratt síðustu ár og vilja lýðheilsufræðingar að sykurskattur verði lagður á að nýju. Heilbrigðisráðherra er opin fyrir slíku. 4. desember 2017 07:00
Sykurneysla að fara með Bandaríkjamenn í gröfina Í fréttaþættinum 60 Minutes á CBS sjónvarpsstöðinni í gærkvöldi var fjallað um það að sykurneysla væri að fara með Bandaríkjamenn í gröfina. 2. apríl 2012 08:00
Fíkniefnið sykur Viðbættur sykur er viðvarandi vandamál í neyslumynstri fólks. Íslensk börn fá of stóran hluta hitaeininga úr viðbættum sykri. Rannsóknir hafa sýnt fram á að neysla sykurs sé ávanabindandi og að hún valdi til dæmis hjartasjúkdómum, sykursýki og sams konar áhrifum á lifrina og óhófleg 6. desember 2018 06:30
Ekkert lát á íslensku sykuræði Framboð á sykri hefur verið mest á Íslandi af Norðurlöndum. Hver Íslendingur borðar fjörutíu til fimmtíu kíló af sykri á ári. Norðmenn nærri tuttugu kílóum minna af sykri árlega. 6. febrúar 2016 07:00
Lagt til að minnka sykurneyslu um helming Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hefur lagt til ný viðmið í sykurneyslu almennings. 6. mars 2014 07:00
25 grömm Það hvernig draga eigi úr sykurneyslu er pólitísk spurning. Það er í eðli sínu stjórnlynt viðhorf að skattleggja mat sem er óhollur í þeim tilgangi að draga úr neyslu á honum. 13. júní 2017 07:00
Sælgætisrisar fordæma áformin um sykurskatt Sælgætisframleiðendur gagnrýna hugmynd heilbrigðisráðherra um endurupptöku sykurskatts. Helgi í Góu spyr hvort eigi þá að deila út skömmtunarseðlum og forstjóri Nóa Síríus segir ósanngjarnt ef taka eigi einn fæðuflokk fyrir. 8. desember 2017 06:00
Skynsamir líka berskjaldaðir fyrir sykri því hluti heilans er frumstæður Nýleg dæmi frá útlöndum sýna að sykurskattar virka sem tæki til að draga úr neyslu. Forstöðumaður Lýðheilsustofnunar Noregs segir að stofnunin styðji sykurskatt sem tæki til að draga úr sykurneyslu. Sykurskattur er við lýði í Noregi með ágætum árangri. 3. október 2016 14:00
Gosið er ekki sökudólgurinn Kastljósinu hefur verið beint að sykruðum gosdrykkjum sem sökudólg þess að landsmenn eru að þyngjast. 5. janúar 2017 07:00
Vilja háan sykurskatt og lækka verð á hollustu Lagt er til að hækka verð á sykruðum og sykurlausum gosdrykkjum og sælgæti um hið minnsta 20 prósent í nýrri aðgerðaáætlun gegn sykurneyslu Íslendinga. 23. júní 2019 18:30
Meira um gos Þegar bent er á skaðsemi sykurs í fjölmiðlum þá rísa gosdrykkjaframleiðendur upp á afturfæturna. Þeir setja sig í sóknarstellingar og baráttan fyrir þeirra hagsmunum fer í annan gír. Svona til að tryggja að þjóðin haldi nú alveg örugglega áfram að drekka sig í spik. Því þá græða þeir áfram peninga. 10. janúar 2017 07:00