KR og HK/Víkingur í 8-liða úrslit Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 1. júní 2019 16:03 KR-ingar fagna. vísir/ernir
KR er komið áfram í 8-liða úrslit Mjólkurbikars kvenna eftir sigur á Keflavík. HK/Víkingur vann þægilegan sigur á Aftureldingu. KR þurfti að hafa fyrir hlutunum í Keflavík en þessi lið sitja í fallsætum Pepsi Max deildarinnar. Leikurinn fór rólega af stað og var lítið um fína drætti í fyrri hálfleik. Færunum fór fjölgandi eftir því sem leið á leikinn en markið lét á sér standa. Það var ekki fyrr en á 82. mínútu sem Guðmunda Brynja Óladóttir kom boltanum í marknetið og kom KR yfir. Keflvíkingar náðu ekki að svara og lauk leiknum með 1-0 sigri KR. Inkassodeildarlið Aftureldingar átti erfitt uppdráttar gegn HK/Víkingi í Kórnum. Esther Rós Arnarsdóttir skoraði fyrir heimakonur á 22. mínútu og þær leiddu með einu marki í hálfleik. Þórhildur Þórhallsdóttir, Ástrós Silja Luckas og Fatma Kara gerðu sitt markið hver í seinni hálfleik og lauk leiknum með 4-0 sigri HK/Víkings. KR og HK/Víkingur bætast því í hóp Selfoss, ÍA, Þórs/KA og Vals sem öll verða í pottinum þegar dregið verður í 8-liða úrslitin. Upplýsingar um úrslit og markaskorara eru fengnar frá Fótbolta.net.
Mjólkurbikarinn Mest lesið Féll úr skíðalyftu og lést Fótbolti Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Íslenski boltinn Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Íslenski boltinn Var frústreraður vegna landsliðsins Fótbolti Síðasti dansinn hjá Kelce? Sport Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Enski boltinn Dreymir enn um Evrópu: „Ekki tilbúin að borga það sama“ Sport Stefndi á ÓL en fannst látinn á hótelherbergi Sport Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Enski boltinn Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Fótbolti Fleiri fréttir Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Meira en 37 stöðugildi hjá Knattspyrnusambandi Íslands Óskar Hrafn um komu Arnórs Ingva: „Gífurlega dýrmætt fyrir KR“ Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Breiðablik kaupir Jónatan frá Norrköping Elías mættur til meistaranna KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Hilmar Árni til starfa hjá KR Segir fjórðung í bók Óla ósannan Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur „Verið heiður að spila í appelsínugulu með frábærum liðsfélögum“ Þekkir Egilshöllina vel og skoraði gegn fyrrum félögum Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Stjarnan sækir markvörð í 3. deildina „Ég var orðinn algjörlega bugaður“ Sjá meira