Arsenal vill samherja Arnórs og Harðar Anton Ingi Leifsson skrifar 6. júní 2019 17:15 Chalov, til hægri, fagnar marki með Arnóri í leik með CSKA á síðustu leiktíð. vísir
Arsenal er eitt margra félaga í stærri deildum Evrópu sem fylgist með rússneska framherjanum, Fedor Chalov, sem leikur með Íslendingaliðinu CSKA í Moskvu. Sky Sports greinir frá þessu á vef sínum í dag en þessi 21 árs gamli framherji er einnig sagður á óskalista Mónakó og Sevilla. Hann skoraði fimmtán mörk í 30 leikjum á síðustu leiktíð. Hjá CSKA er hann samherji tveggja íslenskra landsliðsmanna en með liðinu leika Skagamaðurinn Arnór Sigurðsson og Framarinn Hörður Björgvin Magnússon. Chalov hefur gert það gott gegn Arsenal en skoraði er liðin mættust í átta liða úrslitum Evrópudeildarinnar tímabilið 2017/2018. Hann kann vel við sig í Evrópukeppnum því hann skoraði einnig eitt marka CSKA í ótrúlegum 3-0 sigri liðsins á Real Madrid á Bernabeu í Meistaradeildinni í vetur. Framherjinn á þrjú ár eftir af samningi sínum hjá rússneska félaginu en hann er einungis 21 árs gamall. Hann spilaði sinn fyrsta landsleik í marsmánuði er hann kom við sögu í leik gegn Belgíu í undankeppni EM 2020.
Fótbolti Mest lesið „Þróunin á Íslandi sorgleg síðan ég var hér síðast“ Íslenski boltinn Ögrandi herferð Sweeney gagnrýnd: „Get ekki lýst því hvað ég er reið“ Sport Fékk símtal frá Þorsteini í þetta sinn en er óviss um landsliðið Fótbolti Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Körfubolti Segir skot Dagnýjar á Breiðablik „pínu ósanngjarnt“ Íslenski boltinn „Hann er betri útgáfa af Gerrard“ Enski boltinn Milner aftur til Liverpool Enski boltinn Raheem Sterling játar sök Enski boltinn Fúlir foreldrar fá svarta spjaldið Fótbolti Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Enski boltinn Fleiri fréttir Vonarstjarna Man. Utd vill burt frá félaginu Raheem Sterling játar sök Sjáðu veislu Leeds og markið sem gerði framherjann brjálaðan „Hann er betri útgáfa af Gerrard“ Richarlison sorgmæddur: „Af hverju?“ Milner aftur til Liverpool Leedsarar léku sér að Newcastle VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Goðsögn hjá West Ham fallin frá „Eins og þeir séu hræddir við að vinna“ Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Rio betri en Barcola: „Ekki þess virði sem þeir keyptu hann á“ Sjáðu ólöglega sigurmarkið og rauðu spjöldin „Markið hefði ekki átt að standa“ Myndbandsdómgæsla gerði mistök í sigurmarki Haaland Haaland segir Hjörvari að hann hafi ekki verið rangstæður Hjörvar og Schmeichel spáðu í spilin fyrir grannaslaginn Manchester-borg er blá eftir tíu manna sigur Brighton valtaði yfir nýliðana Öll mörk gærdagsins: Dramatík, óvænt úrslit og mörk úr efstu hillu Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Boðið upp á þvílíka dramatík í enska boltanum Tottenham fékk sín fyrstu stig tímabilsins Bragðdauft og svekkelsi á Anfield Hull enn taplaust í deildinni Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus Sjá meira