Blikar búnir að selja bakvörðinn sinn til Belgíu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. júní 2019 14:36 Jonathan Hendrickx, í miðjunni, fagnar með þeim Damir Muminovic og Viktori Erni Margeirssyni. Vísir/Bára
Jonathan Hendrickx spilar aðeins nokkra leiki til viðbótar með Breiðabliki í Pepsi Max deild karla í fótbolta. Breiðablik hefur samþykkt tilboð frá belgíska 1.deildarliðinu Lommel í bakvörðinn. Johnathan mun yfirgefa Breiðablik í félagaskiptaglugganum í júlí en þetta kemur fram á blikar.is. „Jonathan er mikill fagmaður og hefur verið mjög öflugur í Blikaliðinu í þeim 48 mótsleikjum sem hann hefur spilað fyrir Breiðablik til þessa frá því að hann kom til okkar fyrir keppnistímabilið 2018. Við ætlum ekki að kveðja Jonathan alveg strax þar sem hann á eftir að sýna snilli sína í næstu leikjum,“ segir í fréttinni á síðunni. Jonathan Hendrickx hefur spilað sex af sjö leikjum Breiðabliks í Pepsi Max deildinni í sumar. Hann hefur ekki skorað mark en er búinn að gefa tvær stoðsendingar og eiga þátt í undirbúningi á einu öðru marki. Breiðablik komst upp í efsta sæti deildarinnar með 4-1 sigri á FH í síðustu umferð en Jonathan Hendrickx lék einmitt með FH á árum áður. Blikar spila þrjá deildarleiki fyrir 1. júlí eða á móti Fylki, Stjörnunni og ÍBV og þá spilar liðið á móti KR á útivelli 1. júlí. Blikar eiga líka leik á móti Fylki í átta liða úrslitum Mjólkurbikarsins 27. júní næstkomandi.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz Enski boltinn Sá þriðji yngsti í sögu efstu deildar Íslenski boltinn HM-hetja mun stýra Alberti Fótbolti „Þegar gengur vel þá tekurðu aðeins á loft“ Fótbolti Stjarnan - Víkingur 1-3 | Toppliðið áfram í toppmálum Íslenski boltinn Rodri ekki meira með KA í ár Íslenski boltinn City að vinna United í slagnum um Anderson Enski boltinn Uppgjörið: KR - Valur 3-1 | KR-ingar aftur á sigurbraut Íslenski boltinn Sædís skoraði og ótrúleg ferna liðsfélaga Hildar Fótbolti Brynjar Ingi sigldi öruggu sæti í höfn Fótbolti Fleiri fréttir Sá þriðji yngsti í sögu efstu deildar Stjarnan - Víkingur 1-3 | Toppliðið áfram í toppmálum Rodri ekki meira með KA í ár Uppgjörið: KR - Valur 3-1 | KR-ingar aftur á sigurbraut Öll mörkin úr Bestu deildinni: Sjáðu meistaraverk Jankó og endurkomu FH „Ætla að vona að við lærum af þessum leik“ Bæði lið í svörtu og rauðu: „Þetta er fáránlegt, við sjáum ekkert hver er hvað“ Þjálfari ÍBV vill VAR á Íslandi eftir „ólöglegt“ mark Guðni eftir sigur FH: „Gáfumst aldrei upp“ Væri alveg til í að taka markið á mig Uppgjörið: Víkingur R. - Valur 0-1 | Nadía með sigurmark gegn sínu gamla félagi Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 0-1 | Sterkur Stjörnusigur í Laugardal Uppgjörið: Breiðablik - FH 2-3 | Veisla í Kópavogi „Þetta er frá meistara Jankó” Uppgjörið: Fram - Þór/KA 3-2 | Sendu norðankonur á botninn Haukar ósigraðir á toppnum Uppgjörið: ÍBV - Grindavík/Njarðvík 1-1 | Dramatískt jöfnunarmark í uppbótartíma Landsliðskona á von á sínu fyrsta barni Versta byrjun í sögu FH Stjarnan selur miða til styrktar Ingvari Fylkir á toppinn og 16 ára í stuði Foreldrar megi anda djúpt ofan í maga Sjáðu öll mörkin úr Bestu: Markaveislur í Víkinni og Kópavogi Uppgjörið: Breiðablik - KR 6-3 | Kennslustund í Kópavogi „Við réðum ekkert við þá“ „Þetta small saman í kvöld“ Afturelding við hlið Þróttar á toppnum eftir mikinn markaleik „Sérstaklega sætt að vinna hér á KA vellinum“ Uppgjörið: Stjarnan - Fram 0-1 | Sigurmark Róberts færir Fram nær toppnum Víkingur R. - FH 5-0 | Markaveisla í Víkinni Sjá meira