Árni Vil flytur þvottavél fyrir Teit Magnússon í nýju tónlistarmyndbandi Hjalti Freyr Ragnarsson skrifar 20. maí 2019 15:00 Myndbandið átti upprunalega að vera fyrir lag Teits Magnússonar. Vísir/Vilhelm
Fyrsta plata rólyndistónlistarmannsins Árna Vil, Slightly Hungry, kom út nýverið, en Árni hefur áður gert garðinn frægan með sveitinni FM Belfast. Í dag frumsýnir hann myndband við lokalag plötunnar, This and that. Myndbandið var unnið af leikhópnum Kriðpleiri, og flytja meðlimir hópsins í því þvottavél fyrir tónlistarmanninn Teit Magnússon.Klippa: Árni Vil - This and That Plötunni lýsir Árni sem töluvert persónulegri. „Stefin í lögunum mörgum hverjum eru einhvers konar uppgjör en ég tel að það hafi verið óhjákvæmilegt til þess að geta byrjað upp á nýtt.“ Tilgangur plötunnar hafi verið að loka ákveðnu tímabili. „Þetta er kannski ákveðin klisja en það getur verið erfitt að hefjast handa á nýju ef maður bindur ekki slaufu á gamla pakkann,“ segir Árni og bætir við að rauði þráðurinn gegnum plötuna sé leit að sátt og tilraun til að forðast stöðnun. „Ég hef í rauninni alltaf verið þjakaður af ótta við að festast eða staðna.“ Titil plötunnar, Slightly Hungry, segir Árni vísa til kjörástands til þess að gera hluti. „Hvort sem það er að skapa, hreyfa sig, vinna eða bara hvað sem er. Það er óþægilegt að vera of svangur og jafnvel verra að vera of saddur.“ Hann minnir að abstraktmálarinn Agnes Martin eigi heiðurinn að þessari verkspeki. Þó lög og textar plötunnar séu alfarið samin af Árna segir hann Þóri Andersen eiga mikinn hlut í henni, en hann sá um upptökustjórn á plötunni. „Hugmyndaflug hans og nálgun á tónlist gaf hverju lagi þann karakter sem það þarfnaðist.“Árni ætlar að semja jólalag fyrir næsta útvarpsleikrit Kriðpleirs og senda það í jólalagakeppni Rásar 2.vísir/vilhelmFyrir utan tónlistina er Árni meðlimur í leikhópnum Kriðpleiri, sem vinnur nú að útvarpsleikriti undir vinnutitlinum „Litlu jólin“. Þar að auki er hann mikið að stússast með listahópnum Art Studio Art Collective, en hópurinn var t.a.m. með vinnustofu í Harbinger á dögunum. Aðspurður um tilurð þvottavélaflutningamyndbandsins segir Árni að Kriðpleir ásamt Hauki Valdimar Pálssyni hafi upphaflega gert myndbandið fyrir Teit Magnússon. „Hann fann því ekki lag þannig ég ákvað að nota efnið. Enda passar það fullkomlega við þetta lag að mínu mati.“ Árni hefur farið nokkuð nýstárlegar leiðir í að vekja athygli á útgáfu plötunnar. Hægt væri að nefna tvær „herferðir“ í því samhengi, annars vegar „stock photo“ herferð og hins vegar umsagnir íslenskra rappara um plötuna. Að ofan má sjá umsögn Birnis um plötuna og hér að neðan má sjá eina af „stock photo“ kynningarmyndunum.
Tengdar fréttir Föstudagsplaylisti Árna Vil Lagalisti fyrir suma bústaði. 1. febrúar 2019 14:25 Mest lesið Annarri tilraun að Fyre-hátíðinni frestað um ókomna tíð Lífið „Stal tannburstanum hans snemma í sambandinu“ Makamál Breytti nafninu sínu svo það yrði ekki brotist inn Lífið Sonur Ringo Starr rekinn úr The Who Lífið Patrik og Gústi í sundur: „Vinir, veit það ekki“ Lífið Eyddi unglingsárunum inni í þvottahúsi Tónlist Fanney og Teitur greina frá kyninu Lífið Óvenjulegar móttökur þegar Icelandair lenti í Nashville í fyrsta inn Lífið Einn huggulegasti leikari landsins á lausu Lífið Hátíðlegur páskamatseðill að hætti Móniku á Apótekinu Lífið Fleiri fréttir Eyddi unglingsárunum inni í þvottahúsi Gefa út sína fyrsta plötu síðan 2001 Þrumustuð þegar lag Barnamenningarhátíðar var frumflutt Sækir innblásturinn í rússnesku ræturnar Í skýjunum með að vera fyrstir Önnur platan komin út: Kyrrstæður heimur Kára Egils Varð að fara gubbandi í Herjólf Aldrei fór ég suður í endurbættri útgáfu Lærði að byggja sig upp og elska úr fjarlægð Íslensku tónlistarverðlaunin: Damon Albarn lét óvænt sjá sig Útskrifaðist úr verkfræði og gerðist tónlistarmaður Samstarfsverkefni Loreen og Ólafs Arnalds lítur dagsins ljós Dusta rykið af danssokkunum Daniil og Birnir í eina sæng Angie Stone lést í bílslysi Sjá meira