Beita búlgörskum söngstíl Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 11. maí 2019 10:00 Barbörukórinn flytur lög úr ýmsum áttum, jafnvel eftir Jón Múla. Mynd/Olga Björt Þórðardóttir
Sagan segir að ung stúlka frá Hafnarfirði hafi verið kosin ungfrú Reykjavík og þá voru nú Hafnfirðingar stoltir. Hún heldur á vit ævintýranna og uppgötvar að heimurinn er uppfullur af góðu fólki, ást upphyggju og gleði.“ Þannig hefst frásögnin sem Barbörukórinn ætlar síðan að fylgja í söngdagskrá sinni í Hafnarfjarðarkirkju síðdegis í dag, að sögn Þórunnar Völu Valdimarsdóttur, talsmanns kórsins. Hún bætir því við að leið ungu stúlkunnar hafi legið til Austur-Evrópu, eftir ástarævintýri í Englandi og þar hafi hún kynnst búlgörskum söngkonum. „Til að undirbúa þessa tónleika fengum við meðal annars námskeið í austur-evrópskum söngstíl hjá svissneskri kórstýru og annarri tyrkneskri,“ lýsir hún og segir Hörpu Arnardóttur leikkonu einnig leggja kórnum lið í að leiða tónleikagesti á vit ævintýranna. Það er Hilmar Örn Agnarsson sem stjórnar Barbörukórnum nú á vor í fjarveru Guðmundar Sigurðssonar, organista Hafnarfjarðarkirkju, sem stofnaði hann vorið 2007 ásamt nokkrum lærðum söngvurum. Kórinn kennir sig við heilaga Barböru en stytta af dýrðlingnum fannst árið 1950 í Kapelluhrauni í Hafnarfirði.
Birtist í Fréttablaðinu Tónlist Mest lesið „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Greindu frá dánarmeini Tim Curry Lífið Gloria Steinem er látin Lífið Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Lífið Úr verkfræðinni í listina: „Stundum verður maður bara að fylgja innsæinu“ Lífið samstarf Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Lífið Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Lífið Alexander Skarsgård heiðraður á RIFF Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira