Björgvin og Tandri tryggðu sig í undanúrslitin Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 15. maí 2019 18:50 Björgvin Páll Gústavsson fagnar eftir að hafa varið víti á HM 2019. vísir/getty
Björgvin Páll Gústavsson, Tandri Már Konráðsson og félagar í Skjern tryggðu sér sæti í undanúrslitunum um danska meistaratitilinn í handbolta með stórsigri á Sönderjyske í Íslendingaslag. Janus Daði Smárason átti góðan leik fyrir Álaborg sem tapaði fyrir Holstebro. Lokaumferð úrslitariðlanna tveggja í dönsku úrvalsdeildinni fór fram í kvöld, en efstu tvö liðin í hvorum riðli fara áfram í undanúrslit. Álaborg var búið að tryggja sig áfram í undanúrslitin fyrir leikinn en Holstebro átti möguleika á að taka undanúrslitasæti af Skjern. Holstebro gerði sitt og vann 29-28 sigur á Álaborg, en þar sem Skjern vann Sönderjyske dugði það ekki til. Janus Daði var markahæstur í liði Álaborgar, ásamt Henrik Möllgaard, með sex mörk. Hann átti þar að auki þrjár stoðsendingar. Ómar Ingi Magnússon skoraði fjögur mörk og lagði upp tvö. Vignir Svavarsson komst ekki á blað fyrir Holstebro. Skjern vann stórsigur á Sönderjyske 39-22. Tandri Már Konráðsson skoraði fjögur marka Skjern og Björgvin Páll Gústavsson varði 4 skot af 16. Arnar Birkir Hálfdánsson gerði þrjú mörk fyrir Sönderjyske. Álaborg endar á toppi riðilsins með átta stig, líkt og Skjern og fara bæði í undanúrslit. Í hinum riðlinum tryggði Bjerringbro-Silkeborg sér undanúrslitasæti með eins marks sigri á GOG 28-29. Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði eitt mark fyrir GOG. GOG endaði þrátt fyrir tapið á toppi riðilsins. GOG mun því mæta Skjern í undanúrslitunum og Álaborg spilar við Bjerringbro-Silkeborg.
Danski handboltinn Mest lesið Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport „Hann kvartar yfir öllu“ Enski boltinn Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Körfubolti Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Íslenski boltinn Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Fleiri fréttir Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Sjá meira