Vongóður um að vinnu við nýja kjarasamninga ljúki hjá iðnaðarmönnum í dag Elín Margrét Böðvarsdóttir og Kristín Ýr Gunnarsdóttir skrifa 2. maí 2019 11:00 Kristján Þórður Snæbjarnarson, talsmaður samflots iðnaðarmanna. Vísir/Vilhelm
Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Rafiðnaðarsambands Íslands og talsmaður samflots iðnaðarmanna, segist vongóður um að vinnu við nýja kjarasamninga ljúki í dag. Fundur hófst að nýju hjá ríkissáttasemjara klukkan tíu í morgun. Samninganefndir samflots iðnaðarmanna og Samtaka atvinnulífsins funduðu í um þrettán klukkutíma á þriðjudaginn og í lok þess fundar var Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Rafiðnaðarsambands Íslands, vongóður um að samningar væru á næsta leiti. Hlé var gert á fundarhöldum 1. maí en samningsaðilar settust svo aftur við samningaborðið klukkan tíu í morgun. „Núna erum við að halda áfram með textavinnu í samningunum hjá okkur. Við stefnum að því að reyna að klára eins mikla texta vinnu og mögulegt er. Vonandi lýkur því í dag. Það getur auðvitað alltaf eitthvað komið upp ófyrirséð. Það tekur töluverðan tíma að vinna með textann,“ segir Kristján. Hann segir erfitt að segja til um það nákvæmlega hversu langan tíma það muni taka og hvort gengið verði frá undirritun í dag. „Þegar þú ert að fara í textavinnuna þá getur alltaf eitthvað komið upp sem að getur ruglað vinnuna. Það á eftir að klára smávægileg atriði sem við þurfum að fara í gegnum. Þannig að það getur alltaf eitthvað gerst,“ segir hann en er þó vongóður.
Kjaramál Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Máttu tæma lónið Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira