Lygalaupar á hlaupum Þórlindur Kjartansson skrifar 3. maí 2019 08:00 Þegar fólk tekur ákvörðun um að byrja á einhverju nýju eða taka upp bættan lífsstíl vantar yfirleitt ekki stuðning frá umhverfinu. Dæmi um þetta er þegar fólk tekur ákvörðun um að byrja að stunda útihlaup. Þá liggur vitaskuld beinast við að leita ráða og stuðnings hjá þeim sem hafa reynslu af því undarlega háttalagi að klæðast óhemjuljótum fatnaði og trimma svo í risastóran hring til þess eins að mæðast í algjöru tilgangsleysi. Hlaupin enda oftast á sama stað og þau hófust og hafa eftir því hvernig maður horfir á það annaðhvort engan tilgang eða tilgang í sjálfum sér, sem virðist reyndar af andlitsdráttum hlauparanna oft vera einhvers konar sjálfspíning. Hlauparar sem hafa gert útiskokk að lífsstíl ljóma gjarnan upp í hvetjandi brosi þegar við þá er ámálgaður áhugi á að taka upp þetta atferli. Það stendur þá hvorki á vinsamlegum ráðleggingum né stuðningi. „Mikilvægt að byrja rólega,“ er það sem er sagt fyrst. „Finna sitt tempó.“ „Hafa gaman af þessu.“ „Njóta, en ekki þjóta.“Nesti og nýir hlaupaskór Og svo segja þessir hlauparar oft: „Þetta verður ekkert mál. Svo skellirðu þér bara í 10 kílómetrana í Reykjavíkurmaraþoninu. Þú verður enga stund að koma þér í form.“ Já, já, einmitt. Taktu því rólega fyrst—en svo þarftu að komast í form og hlaupa 10 km, hálfmaraþon, maraþon, Laugavegshlaup, últramaraþon. „Þú verður enga stund að koma þér í form.“ Og á bak við þessi hvatningarorð verður strax óþægileg pressa. „Ef þú ert að þessu á annað borð, þá er eins gott að vera að keppa.“ Og með þessi ráð í nesti, og nýja hlaupaskó á fótunum, hefjast æfingarnar. Þá er enginn til að hvetja mann áfram. Það er bara gangstéttin, rigningin, rokið eða sólin, lognið og maður sjálfur einn með sinn metnað og vilja til þess að sýna og sanna fyrir sjálfum sér og heiminum að maður geti þetta eins og allir aðrir. Og fyrir þá sem hafa verið duglegir að spara sér sporin eru fyrstu „æfingarnar“ eins og ísköld vatnsgusa. Það að hlaupa 10 kílómetra virðist eins fjarlægur raunveruleiki og að geta stokkið yfir 10 metra í langstökki. Meira að segja fimm kílómetrar virðast óyfirstíganlegir. Maður er orðinn undarlega úrvinda á innan við kílómetra. „Það verður ekkert mál að koma þér í form.“ Einmitt það já.Ósannindi eða lygar Kannski er það rétt sem mig hefur alla tíð grunað—að ég sé alveg einstaklega illa fallinn til þess að stunda hlaup. Mín reynsla af því að byrja að reyna að hlaupa—eftir margra áratuga kyrrsetu, reykingar, sælgætisát og almennt hóglífi—er einmitt ekki að það sé „ekkert mál“ eða að það sé eitthvað annað en sturluð hugmynd að skrá mig í 10 kílómetra hlaup. Um leið og ég byrja að skokka, þá byrja ég að bíða eftir að geta hætt. Það er ekki taug eða fruma í líkama mínum sem hefur eina einustu trú á því að ég muni nokkru sinni ná að hlaupa fimm kílómetra, hvað þá meira. Og þá hugsa ég að það megi fara til fjandans allt það lygahyski sem er í samsæri um að halda fram þessari þvælu um að „allir geti hlaupið“ og að maður eigi bara að „hafa gaman af þessu“. Já, hafið þið bara gaman af ykkar tilgangslausa skokki og ég skal hafa gaman af því að láta draga neglurnar af fingrunum á mér. Er það lygi hjá öllu þessu hlaupaliði að það sé „ekkert mál“ að koma sér í form? Það eru vissulega ósannindi—en eru það lygar?Sársaukinn gleymist Eftir að hafa harkað af mér nokkuð mörg örfárra kílómetra skokk yfir margra mánaða tímabil fór nefnilega eitthvað að gerast sem ég átti ekki von á. Smám saman virðist það hafa virkað sem allir sögðu að myndi virka. Ég fór að nálgast staðinn sem allir sögðu að „tæki enga stund“ að komast á. Að geta hlaupið nokkra kílómetra, jafnvel allt undir tíu, og farið að hafa gaman af því. Reyndar eru hlaupin lúshæg; en þetta er betra en ég átti von á og ánægjulegt að sjá að þrátt fyrir yfirgnæfandi lélega burði til langhlaupa þá sé hægt að bæta sig ögn. Og kemur þá að þessu með lygarnar og ósannindin. Í staðinn fyrir að vera stoltur af því að hafa þraukað í gegnum langan tíma þar sem enginn árangur virtist vera að nást, finn ég að ég byrjaði sjálfur að sannfærast um að þetta hefði í raun og veru ekki verið neitt mál. Ég einfaldlega man ekki eftir því hversu erfitt og vonlaust mér fannst þetta allt saman fyrir ári síðan. Það eina sem bjargar mér frá algjörri veruleikafirringu er nákvæm skráning á hlaupunum frá upphafi. Ég get séð framfarirnar á pappír þótt mér finnist í raun eins og ég hafi alltaf verið á nákvæmlega þeim stað sem ég er núna. Svona virkar margt sem krefst fyrirhafnar en er þó þess virði. Foreldrar sem berjast í gegnum fyrstu ár barna sinna vansvefta og pirraðir gleyma því öllu algjörlega og líta til baka til tímans sem algjörs sælutímabils. Hér er það sama á seyði. Þetta er hluti af blekkingunni sem gerir mannfólkinu kleift að leggja á sig erfiði í dag til þess að njóta ávaxtanna síðar.Árangurinn lifir Allar erfiðu æfingarnar sem íþróttamenn leggja á sig gleymast þegar þeir ná árangri. Púlið við að læra fyrir erfið próf, eða að reyna að skilja flókna hluti virkar rómantískt og skemmtilegt eftir á. Og þekking, skilningur og færni sem maður öðlast með miklum harmkvælum og álagi virðist augljós þegar maður hefur náð almennilegu valdi á henni. Og það sem meira er; maður getur ekki ímyndað sér að þekkingin hafi ekki alltaf leikið í höndunum á manni. Þeir sem hafa náð árangri á einhverju sviði—hvort sem það eru hlauparar, stærðfræðingar eða listafólk—vanmeta oftast vinnuna og erfiðið sem þeir hafa lagt á sig. Þeir eru ekki óheiðarlegir, og eru hvorki að ljúga að sjálfum sér né öðrum—þeim einfaldlega finnst af algjörri einlægni þeir ekki hafa þurft að leggja svo á sig; þekkingin og getan hafi alltaf verið til staðar. Þetta er ágætt að hafa í huga núna á vormánuðum þegar margt kyrrsetufólk er byrjað að velta fyrir sér skráningu í Reykjavíkurmaraþon. Það eru vissulega ósannindi að það sé „ekkert mál“ að koma sér í form—en þó er það ekki lygi heldur. Þetta er bara erfitt á meðan á því stendur, en ekkert mál þegar það er afstaðið. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Birtist í Fréttablaðinu Þórlindur Kjartansson Mest lesið Hvers vegna var Úlfar rekinn? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Að apa eða skapa Rósa Dögg Ægisdóttir Skoðun Ríkisstjórnin ræðst gegn ferðaþjónustu bænda Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir Skoðun Um styttingu vinnuvikunnar í leikskólum Reykjavíkurborgar, ákall um leiðréttingu Anna Margrét Ólafsdóttir,Hafdís Svansdóttir,Jónína Einarsdóttir Skoðun Eru forsætisráðherra og ríkisstjórn hrædd við vilja fólksins; lýðræðið? Ole Anton Bieltvedt Skoðun Að reyna að „tímasetja“ markaðinn - er það góð strategía? Baldvin Ingi Sigurðsson Skoðun Lífsnauðsynlegt aðgengi Bryndís Haraldsdóttir Skoðun Þegar við ætluðum að hitta Farage - Á Ísland að ganga í ESB? Sveinn Ólafsson Skoðun Gangast við mistökum Júlíus Birgir Jóhannsson Skoðun Sama steypan Ingólfur Sverrisson Skoðun Skoðun Skoðun Gangast við mistökum Júlíus Birgir Jóhannsson skrifar Skoðun Um styttingu vinnuvikunnar í leikskólum Reykjavíkurborgar, ákall um leiðréttingu Anna Margrét Ólafsdóttir,Hafdís Svansdóttir,Jónína Einarsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin ræðst gegn ferðaþjónustu bænda Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Að apa eða skapa Rósa Dögg Ægisdóttir skrifar Skoðun Að reyna að „tímasetja“ markaðinn - er það góð strategía? Baldvin Ingi Sigurðsson skrifar Skoðun Lífsnauðsynlegt aðgengi Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna var Úlfar rekinn? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Eru forsætisráðherra og ríkisstjórn hrædd við vilja fólksins; lýðræðið? Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun Þegar við ætluðum að hitta Farage - Á Ísland að ganga í ESB? Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Sama steypan Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Ofbeldi gagnvart eldra fólki Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Að taka ekki mark á sjálfum sér Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Betri borg Alexandra Briem skrifar Skoðun Að eiga sæti við borðið Grímur Grímsson skrifar Skoðun Hagnaðurinn sem við afsölum okkur: Af hverju salan á Íslandsbanka er samfélagslegt glapræði Karl Héðinn Kristjánsson skrifar Skoðun Íþróttir eru lykilinn Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Framtíð safna í ferðaþjónustu Guðrún D. Whitehead skrifar Skoðun Munu Ísraelsmenn sprengja bifreið páfa í loft upp? Einar Baldvin Árnason skrifar Skoðun Að skapa framtíð úr fortíð Anna Hildur Hildibrandsdóttir skrifar Skoðun Tími til umbóta í byggingareftirliti Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Stærð er ekki mæld í sentimetrum Sigmar Guðmundsson skrifar Skoðun Áður en íslenskan leysist upp Gamithra Marga skrifar Skoðun Lögfræðingurinn sem gleymdi tilgangi laga Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Þétting byggðar – nokkur mistök gjaldfella ekki stefnuna Samúel Torfi Pétursson skrifar Skoðun Breyta lífum til hins betra eða dvelja áfram í hýðum síns vetra? Tómas Ellert Tómasson skrifar Skoðun Hverjum þjónar nýsköpunin? Halldóra Mogensen skrifar Skoðun Heilbrigðisráðherra og stjórn VIRK hafa brugðist okkur Eden Frost Kjartansbur skrifar Skoðun Þegar ríkið fer á sjóinn Svanur Guðmundsson skrifar Skoðun Íbúðarhúsnæði sem heimili fólks Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Íslenskumælandi hjúkrunarfræðingar Guðbjörg Pálsdóttir skrifar Sjá meira
Um styttingu vinnuvikunnar í leikskólum Reykjavíkurborgar, ákall um leiðréttingu Anna Margrét Ólafsdóttir,Hafdís Svansdóttir,Jónína Einarsdóttir Skoðun
Eru forsætisráðherra og ríkisstjórn hrædd við vilja fólksins; lýðræðið? Ole Anton Bieltvedt Skoðun
Skoðun Um styttingu vinnuvikunnar í leikskólum Reykjavíkurborgar, ákall um leiðréttingu Anna Margrét Ólafsdóttir,Hafdís Svansdóttir,Jónína Einarsdóttir skrifar
Skoðun Eru forsætisráðherra og ríkisstjórn hrædd við vilja fólksins; lýðræðið? Ole Anton Bieltvedt skrifar
Skoðun Hagnaðurinn sem við afsölum okkur: Af hverju salan á Íslandsbanka er samfélagslegt glapræði Karl Héðinn Kristjánsson skrifar
Skoðun Breyta lífum til hins betra eða dvelja áfram í hýðum síns vetra? Tómas Ellert Tómasson skrifar
Um styttingu vinnuvikunnar í leikskólum Reykjavíkurborgar, ákall um leiðréttingu Anna Margrét Ólafsdóttir,Hafdís Svansdóttir,Jónína Einarsdóttir Skoðun
Eru forsætisráðherra og ríkisstjórn hrædd við vilja fólksins; lýðræðið? Ole Anton Bieltvedt Skoðun