Unglingsstúlkur ætluðu að myrða níu manns Sylvía Hall skrifar 20. apríl 2019 17:59 Kennari stúlknanna fann möppuna sem innihélt ítarlegar upplýsingar um morðin. Vísir/Getty
Tvær unglingsstúlkur í Avon Park-skólanum Flórída-ríki voru handteknar á miðvikudag, grunaðar um að hafa ætlað sér að myrða níu manns. Stúlkurnar eru fjórtán ára gamlar. BBC greinir frá. Stúlkurnar voru handteknar á miðvikudag eftir að kennari þeirra fann möppu sem innihélt ítarlegar upplýsingar um morðin. Á meðal þess sem fram kom í möppunni voru upplýsingar um hverja þær ætluðu sér að myrða, hvernig þær ætluðu að útvega sér vopn og losa sig við líkin. Þá höfðu þær einnig skipulagt hvaða fötum þær myndu klæðast. Mappan sem um ræðir var átta blaðsíður og hafði verið merkt með orðunum „persónulegar upplýsingar“, „ekki opna“ og „verkefni 9/11“. Að sögn kennarans leituðu stúlkurnar að möppunni í mikilli geðshræringu þegar þær uppgötvuðu að hún væri horfin. Þá á önnur þeirra að hafa sagt að hún myndi segja að áætlun þeirra væri einungis grín ef hún yrði spurð. Stúlkurnar eru nú í varðhaldi og bíða réttarhalda en þær eiga yfir höfði sér ákæru fyrir samsæri til þess að fremja níu morð og þrjú mannrán.
Bandaríkin Mest lesið Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Sjá meira