Fyrsti Víkingurinn í 28 ár til að skora fyrsta markið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. apríl 2019 20:30 Nikolaj Hansen. Vísir/Bára
Daninn Nikolaj Hansen varð í kvöld fyrsti Víkingurinn í 28 ár til að skora fyrsta mark Íslandsmótsins eða síðan að Tomislav Bosniak skoraði fyrsta markið sumarið 1991. Nikolaj Hansen kom Víkingum í 1-0 á móti Íslandsmeisturum Vals á Hlíðarenda en skoraði markið á 19. mínútu leiksins eftir laglega stoðsendingu frá Erlingi Agnarssyni. Þetta er fjórða árið í röð sem erlendur leikmaður skorar fyrsta markið mótsins en Dion Acoff opnaði mótið í fyrra og Steven Lennon skoraði fyrsta markið bæði 2016 og 2017. Tomislav Bosniak skoraði fyrsta mark Víkinga í 4-2 sigri á FH í 1. umferðinni 1991 sem fór þá fram 20. maí. Markið hjá Tomislav kom eftir 9. mínútna leik og það skoraði hann með skalla eftir fyrirgjöf frá Atla Einarssyni. Þetta sumar er einnig síðasta sumarið þar sem Víkingar urðu Íslandsmeistarar. Þetta er annað árið í röð sem Nikolaj Hansen skorar fyrsta mark Víkinga á tímabili en hann skoraði eina markið í 1-0 sigri á Fylki í fyrstu umferðinni í fyrra. Nikolaj Hansen hefur enn fremur skoraði í fyrstu umferðinni þrjú ár í röð því hann skoraði annað mark Valsmanna í 2-0 sigri á Ólafsvíkur-Víkingum í fyrstu umferðinni sumarið 2017.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Sló átta ára dóttur sína eftir tap Sport Í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir að kýla dómara Fótbolti Van Gerwen kemur trans konunni til varnar: „Þetta er svo sárt“ Sport Fundað um framtíð Guardiola í vikunni Enski boltinn Myndband sýnir dómara urða yfir Liverpool og kalla Klopp kuntu Enski boltinn Amorim getur ekki byrjað alveg strax í nýju vinnunni Enski boltinn Teitur spilaði með manni sem dekkaði Jordan og drakk kippu af bjór fyrir æfingar Körfubolti McIlroy skaut niður dróna Golf Heimir í vandræðum með flókinn þjóðsöng: „Ég mun ná þessu“ Fótbolti Nistelrooy yfirgefur Man United með tilkomu Amorim Enski boltinn Fleiri fréttir „Velkomin í dal draumanna“ Fram og Reykjavíkurborg semja um frekari framkvæmdir í Úlfarsárdal Fer til Eyja og fetar í fótspor föður síns Hermann Hreiðars tekur við HK Farinn til Tene og er ekkert að stressa sig Hafnaði uppeldisfélaginu og verður áfram í Mosfellsbæ Sunderland meðal þeirra liða sem horfa til Benóný Breka Oliver kveður Breiðablik „Skil vel að KR-ingar séu með vatn í munninum yfir því sem koma skal“ Víkingar gætu komið íslensku liði í Evrópudeildina „Þetta er liðið hans Höskuldar“ „Geta ekki smíðað sigurlið 1, 2 og 3 með því að kaupa inn dýra leikmenn“ „Einn af þeim bestu og skemmtilegustu sem við höfum séð síðustu ár“ Var í fjórða flokki þegar hann stýrði inni á æfingu meistaraflokks Sagður hafa slitið samningi við KA og leiti út „Ekki fyrirkomulaginu að kenna hvernig þeim gekk og þetta er ódýr afsökun“ Ein af stofnendunum leggur skóna á hilluna Komu KR upp um deild og stýra liðinu áfram „Júlíglugginn kostaði FH þetta tímabil“ Snýr aftur í Bestu deildina með ÍBV Hætti ungur í landsliðinu og fór beint á Prikið „Er þetta ekki komið gott af pólitík?“ Skrautlegur ferill á enda: Kaflaskil þegar hann kynntist konunni Andri Rúnar einn af sjö sem kveðja Vestra Axel Óskar farinn frá KR og velur úr tilboðum Farsæll ferill á enda: „Langar að vera í fríi um helgar og á kvöldin“ Kristinn fékk loksins medalíuna sína og nýjan samning í kaupbæti „Þetta var bara ömurlegt í alla staði“ Ómar strax kominn með starf hjá KSÍ Lenti í stórum jarðskjálfta launalaus í heimsfaraldri Sjá meira