„Æðislegur“ Ramsey hreif stjórann Anton Ingi Leifsson skrifar 12. apríl 2019 23:00 Ramsey fagnar markinu í gær. vísir/getty
Unai Emery, stjóri Arsenal, var yfirsig hrifinn af frammistöðu Aaron Ramsey í gær er Arsenal vann 2-0 sigur á Napoli í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum Evrópudeildarinnar. Ramsey mun yfirgefa Arsenal í sumar og gengur í raðir Juventus en Wales-verjinn og Arsenal náðu ekki samkomulagi um nýjan samning. Emery var þó ánægður með miðjumanninn í gær. „Æðisleg,“ sagði Emery er hann var spurður út í frammistöðu Ramsey. „Ég held að hann vilji gera eitthvað mikilvægt með okkur. Hann gefur allt sitt og ekki bara fyrir sjálfan sig heldur fyrir liðið.“ „Ég vil njóta augnabliksins með honum. Ég vil ná að afreka eitthvað mikilvægt með honum. Hans einbeiting er mikil núna og hann er einungis að hugsa um Arsenal.“ Ramsey skoraði fyrra mark Arsenal er hann skoraði eftir frábært liðsmark en Lucas Torreira skoraði svo annað markið tíu mínútum síðar. Arsenal fékk nóg af færum en náði ekki að skora fleiri mörk. „Ég er 60 prósent ánægður. Við vissum að fyrri leikurinn væri mikilvægur í því að ná góðum úrslitum og skapa stemningu meðal stuðningsmannana. Við stýrðum leiknum.“ „Við fengum ekki mörg færi á okkur. Síðari hálfleikurinn var öðruvísi því þeir þrýstu meira á okkur og voru meira með boltann. Við vitum að þetta verður erfitt því þeir eru sterkir á heimavelli,“ sagði Emery.
Fótbolti Mest lesið KR-ingar bikarmeistarar eftir stjörnuhrap í Smáranum Körfubolti United fagnaði fjórða sigrinum í röð Enski boltinn „Vona að við getum haldið Ólympíuleika sem snúast ekki um typpi“ Sport Skytturnar með níu stiga forskot á toppnum Enski boltinn Risa sigur fyrir Leeds United Enski boltinn Biður Liverpool að slaka á reglunum Enski boltinn Fær fjögurra leikja bann og missir af Lundúnaslagnum Enski boltinn Búast við yfir tuttugu og sex milljón meldingum um veikindi Sport Palmer með þrennu í fyrri hálfleik gegn Úlfunum Enski boltinn Skoða stækkun typpa í skíðastökki Sport Fleiri fréttir Wolves - Chelsea | Bítur botnliðið frá sér? Arsenal - Sunderland | Snúið próf fyrir toppliðið Fær fjögurra leikja bann og missir af Lundúnaslagnum United fagnaði fjórða sigrinum í röð Sjáðu mörkin sem Sean Dyche fannst alveg skelfileg Biður Liverpool að slaka á reglunum Dagskráin í dag: Risa dagur í enska boltanum Risa sigur fyrir Leeds United Arteta með lykilmenn meidda og svaraði ásökunum Segir fótboltasérfræðinga bera ábyrgð Úlfar í sauðagæru? „Myndi segja að þetta sé framsækin nálgun“ Sakar Arsenal um virðingarleysi Leicester missir sex stig og er í mikilli hættu á að falla annað árið í röð Arne Slot: Jérémy Jacquet er gríðarlegt efni Casemiro í viðtali við Sýn Sport: „Hann veit hvernig stuðningsmenn vilja spila“ Skilur ekki af hverju Guéhi má ekki spila úrslitaleikinn Liverpool seinkaði komu Jeremy Jacquet af ásettu ráði Manchester City mætir Arsenal í úrslitaleik Mikil óvissa uppi varðandi Guardiola Enginn Ásgeir í öflugri einkadeild Seðlabankans Á Man. City séns? „Þetta rokkar allt of mikið hjá þeim“ Chelsea reyndi nýstárlega aðferð til að stoppa hornin hjá Arsenal Guardiola segir að pressan sé á eyðsluseggjunum í deildinni Chelsea fann aldrei glufu og Arsenal fer á Wembley Andri aftur með og loksins vannst sigur Enginn vill efnilega Liverpool-manninn Afar rólegur lokadagur félagaskiptagluggans Vilja banna krökkum að skalla boltann í fótbolta Chelsea tók fyrirliða Strasbourg til baka Tottenham vann Arsenal í baráttu um skoskan táning Sjá meira