Klopp: Fólk vill að við spilum eins og Manchester City en við getum það ekki Anton Ingi Leifsson skrifar 5. apríl 2019 21:22 Klopp glaður í kvöld. vísir/getty
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, var afar stoltur af sínum mönnum sem unnu 3-1 sigur á Southampton á útivelli í kvöld. Með sigrinum fór Liverpool á toppinn. „Þetta var frábært. Ég sagði við strákana að það væri gott hugarfar í hópnum,“ sagði Klopp í samtali við Sky Sports skömmu eftir að leik lauk á St. Mary's í kvöld. „Við vorum vel skipulagðir en allir boltar sem þeir hreinsuðu frá urðu nánast að skyndisókn. Við þurftum að laga okkur að því. Þeir skoruðu flott mark, ekki heimsklassa varnarleikur en við héldum ró okkar.“ Staðan var 1-1 í hálfleik en Liverpool kláraði leikinn með tveimur frábærum skyndisóknum undir lokin. Eitthvað sem liðið hefur verið þekkt fyrir og það skilaði sér í sigri. „Við kláruðum leikinn með tveimur framúrskarandi skyndisóknum. Heimsklassa afgreiðsla hjá Salah. Ég er mjög ánægður með frammistöðuna. Við vissum að þetta yrði erfitt því það er ekki auðvelt að vinna hér. En við gerðum það.“ Nú er Liverpool stigi á undan City en ensku meistararnir eiga þó leik til góða. Það er rosaleg spenna á toppnum. „Fólk vill að við spilum eins og Manchester City en við getum það ekki. Við spilum okkar eigin fótbolta. Við erum með 82 stig núna. Þetta er rosaleg deild og allir eru að bíða eftir okkur. Ég er mjög stoltur. Þetta er ótrúlegt.“ „Þetta er erfitt ár fyrir alla. Þú þarft að fá 70-75 stig til þess að komast í Meistaradeildina og 90 og eitthvað stig til þess að vinna deildina. Við erum með í keppninni og það er gott,“ sagði Þjóðverjinn.
Fótbolti Tengdar fréttir Rauði herinn á toppinn Liverpool endurheimti toppsætið í kvöld. 5. apríl 2019 20:45 Mest lesið „Eins og að horfa á bíómynd“ Sport Mun saga Arons endurtaka sig? Fótbolti Varð skotmark með því að ráða Frey: „Ákveðin áhætta fyrir mig“ Fótbolti „Setjum pressu á leikmenn að haga sér fullkomlega næstu tvö árin“ Fótbolti Boehly selur og kveður Chelsea Enski boltinn Enn eitt áfallið fyrir Manchester United Enski boltinn Strákarnir á Saga Class en stelpurnar aftar í vélinni Sport Ný stjarna fæðist í Heiðmörk um helgina Sport „Ef þetta hefði verið ég þá hefði ég hætt keppni“ Sport Fagn Brynjólfs slær í gegn Fótbolti Fleiri fréttir Boehly selur og kveður Chelsea Sunderland vann í fyrsta Evrópuleiknum síðan 1973 Enn eitt áfallið fyrir Manchester United Stórlaxarnir á eftir vonarstjörnu Manchester United sem vill burt Sjáðu svakalega sleggju Szoboszlai 16 ára í stuði er Arsenal og Liverpool fóru áfram Vonarstjarna Man. Utd vill burt frá félaginu Raheem Sterling játar sök Sjáðu veislu Leeds og markið sem gerði framherjann brjálaðan „Hann er betri útgáfa af Gerrard“ Richarlison sorgmæddur: „Af hverju?“ Milner aftur til Liverpool Leedsarar léku sér að Newcastle VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Goðsögn hjá West Ham fallin frá „Eins og þeir séu hræddir við að vinna“ Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Rio betri en Barcola: „Ekki þess virði sem þeir keyptu hann á“ Sjáðu ólöglega sigurmarkið og rauðu spjöldin „Markið hefði ekki átt að standa“ Myndbandsdómgæsla gerði mistök í sigurmarki Haaland Haaland segir Hjörvari að hann hafi ekki verið rangstæður Hjörvar og Schmeichel spáðu í spilin fyrir grannaslaginn Manchester-borg er blá eftir tíu manna sigur Brighton valtaði yfir nýliðana Öll mörk gærdagsins: Dramatík, óvænt úrslit og mörk úr efstu hillu Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Boðið upp á þvílíka dramatík í enska boltanum Sjá meira