Glæsileg aðstaða eftir gagngerar endurbætur á Hótel Örk Hótel Örk kynnir 12. mars 2019 10:00 Hver salur er búinn fyrsta flokks tækjabúnaði fyrir fundi og ráðstefnur.
Hótel Örk í Hveragerði er glæsilegt funda- og ráðstefnuhótel sem býður upp á frábæra aðstöðu fyrir hvers kyns viðburði. Hótelið státar af óviðjafnanlegri staðsetningu í sveitakyrrðinni í þægilegri fjarlægð frá höfuðborginni. Í boði er fyrsta flokks þjónusta fyrir fólk í funda- og ráðstefnuerindum, árshátíðargesti eða þá sem vilja eiga notalega stund í fallegu umhverfi. Ída M. Smáradóttir, sölu- og markaðsfulltrúi hjá hótel Örk.Hentugir salir fyrir ólíka viðburð„Á hótelinu má finna sjö ráðstefnu- og fundarsali í mismunandi stærðum og gerðum, allt frá 25 fm og upp í 315 fermetra sali. Salirnir eru þannig gerðir að auðveldlega má aðlaga þá að hverjum viðburði fyrir sig. Hver salur er búinn fyrsta flokks tækjabúnaði og öll þjónusta er við höndina,” útskýrir Ída M. Smáradóttir, sölu- og markaðsfulltrúi hjá hótel Örk.Stílhrein hönnun„Stærsti salurinn okkar, Aðalgerði, hefur gengið í gegnum miklar og glæsilegar endurbætur. Salurinn þykir einstaklega stílhreinn og fallega hannaður. Salurinn getur tekið allt að 300 manns og er tilvalinn fyrir alls kyns fundi, ráðstefnur og veislur. Hægt er að stilla upp á marga vegu í salnum; rúmgott svið er fyrir ræðuhöld eða aðra viðburði, bar, fullkomið hljóðkerfi, hljóðnemi, púlt, þráðlaust net og fleira. Þeir sem hyggja á gistingu geta valið úr fjölda herbergja en einnig geta gestir nýtt sér aðra aðstöðu eins og sundlaug, heita potta og afþreyingarherbergi.“Ljúffengar veitingar„HVER Restaurant annast allar veitingar í sölum Hótels Arkar og býður veitingastaðurinn upp á alls kyns veisluþjónustu, hvort sem um er að ræða mat af matseðli, hópamatseðli eða hlaðborð. Starfsfólk hótelsins kappkostar að skipuleggja hvers konar fundi eða viðburði og býr yfir mikilli reynslu og metnaði til að uppfylla óskir gesta.“Stærri og bættari Hótel ÖrkNýlega voru gerðar miklar endurbætur á Hótel Örk og herbergjum meðal annars fjölgað. Eftir stækkun telur Hótel Örk alls 157 herbergi. „Í fyrra var tekin í gagnið glæný álma með 78 nýjum og smekklega hönnuðum herbergjum. Öll herbergin voru hönnuð með tilliti til umhverfisins þar sem náttúran leikur stórt hlutverk og skapar einstaka upplifun fyrir gesti,“ útskýrir Ída. „Flest nýju herbergin eru „superior“ herbergi með stórum gluggum og á efstu hæðinni má finna tvær, stórglæsilegar 55 fermetra svítur, með hornsvölum sem veita einstakt útsýni í tvær áttir. Í svítunum eru þakgluggar svo gestir geta notið norðurljósanna í allri sinni dýrð,“ segir Ída. Framúrskarandi veitingastaður„Árið 2016 opnuðum við HVER Restaurant og naut hann strax mikilla vinsælda. HVER Restaurant er opinn daglega frá klukkan 11.30 til klukkan 22 og er lögð áhersla á ferska, íslenska matargerð. Veitingastaðurinn hefur enda fengið afar góðar umsagnir frá viðskiptavinum á vefsíðum eins og TripAdvisor.“Nánari upplýsingar á heimasíðu hótelsins, hotelork.is Þessi kynning er unnin í samstarfi við Hótel Örk.
Ferðamennska á Íslandi Viðskipti Mest lesið „Rúrik Gíslason hefur sagt hæ við mig“ Lífið Centro-hjónin selja Beverly Hills-villuna Lífið Það var bannað að hlæja á Kjarval Lífið Eitt rými sem má alls ekki mynda í Alþingishúsinu Lífið Jafet Máni selur íbúð með ræktarsal Lífið Keith sagður kominn með nýja kærustu Lífið Ástarsenur í viku tvö með stórleikaranum Lífið Óöruggur eftir að kærastan stundaði hópkynlíf erlendis Lífið Ertu sauður? Fimm ráð sem geta forðað þér frá hjarðhegðun Lífið Kókaínklásúla í kaupmálanum tryggir Keith rúman milljarð Lífið Fleiri fréttir Hug-A-Lums þyngdarbangsar sem allir elska The Ultimate Eagles halda tónleika í Hörpu Ætla að syngja sig hás og dansa við Komdu um jólin Stjörnurnar flyktust á frumsýningu einnar mest spennandi bíómyndar ársins Serumið sem snýr öldrun húðarinnar við Heilbrigður hársvörður er lykillinn að fallegu hári Ógleymanlegar skíðaferðir með Bændaferðum Fékk sterkari bein án lyfja Sjö rétta líbönsk veisla sem þú mátt alls ekki missa af! Hlaupaæfing með Rakel Maríu á Heilsudögum í Hagkaup tókst afar vel Uppselt, uppselt og aukatónleikum bætt við Sumar á Sýrlandi Skapaðu góðar minningar með Heimsferðum Þróaði vörur sem breyttu hans eigin lífi Lærðu að tala við gervigreindina og fá svör sem virka! Þykkari augnhár og augabrúnir – vísindin á bak við UKLASH Opnunarhátíð í Ríteil Kids „við erum að drukkna í fötum“ Hætti að þurfa að ryksuga upp hárin eftir hverja sturtu Ný svefnlína sem hjálpar þér að sofna, sofa og vakna hress! Með stimpil upp á ekta spænska matarmenningu Með stimpil upp á ekta spænska matarmenningu Sjá meira