Rostov í undanúrslit | Íslensku fótboltamennirnir fengu fáar mínútur í Evrópu Anton Ingi Leifsson skrifar 24. febrúar 2019 18:10 Ragnar spilaði í dag og hans menn héldu hreinu. vísir/getty
Það var einungis Ögmundur Kristinsson sem fékk 90 mínútur af þeim íslensku knattspyrnumönnum sem voru í eldlínunni í dag. Ögmundur spilaði allan leikinn í marki Larissa sem tapaði 2-1 gegn Lamia á útivelli í grísku úrvalsdeildinni. Larissa er í tólfta sæti deildarinnar. Í sömu deild sat Sverrir Ingi Ingason á bekknum hjá toppliði PAOK sem gerði 1-1 jafntefli við á Aris á heimavelli. PAOK er eins og áður segir á toppi deildarinnar, tíu stigum á undan Olympiacos. Það var Íslendingaslagur í rússneska bikarnum í dag er Rostov komst í undanúrslit með 1-0 sigri á Krasnodar. Ragnar Sigurðsson var í byrjunarliði Rostov en Björn Bergmann Sigurðarson og Viðar Örn Kjartansson voru á bekknum. Sömu sögu má segja af Jóni Guðna Fjólusyni hjá Krasnodar. Bæði Albert Guðmundsson og Kristófer Ingi Kristinsson voru ónotaðir varamenn er Willem II vann 2-1 sigur á AZ Alkmaar. Kristófer og félagar í Willem eru í tíunda sætinu en Albert og AZ eru í því fjórða. Hjörtur Hermannsson horfði á leikinn frá varamannabekknum er Bröndby vann 1-0 sigur á Randers en Bröndby lét þjálfara sinn, Alexander Zorninger, fara á dögunum. Bröndby er í þriðja sæti dönsku deildarinnar. Böðvar Böðvarsson var á varamannabekknum er Jagiellonia tapaði 1-0 fyrir Cracovia í pólsku úrvalsdeildinni en Jagiellonia, silfurliðið frá því í fyrra, er nú í þriðja sætinu.
Fótbolti Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson Enski boltinn Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ Körfubolti Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Enski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Enski boltinn Fleiri fréttir Chelsea - Manchester United | Síðasti sénsinn hans Carrick? 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Sjá meira