Ekkert stress, bara skemmtun 1. mars 2019 18:45 Michel með foreldrum sínum, þeim Önnu Jonsson Þorsteinsdóttur og Paul Masselter. Mynd/Stefán
Þó Michel keppi í frjálsum íþróttum á heimsleikunum liggur grunnur hans í sundi. „Ég hef æft sund frá árinu 2001 en ég byrjaði ellefu ára. Og ég er ennþá að æfa sund,“ segir Michel en áhuginn á hlaupi vaknaði fyrir um fjórum árum þegar sundþjálfari hans stakk upp á því að hann tæki þátt í Íslandsmóti í frjálsum. „Það fór svo að hann kom, sá og sigraði í öllu því sem hann tók þátt í,“ segir móðir hans, Anna, stolt en Michel hefur æft frjálsar alla tíð síðan „Ég æfi sex sinnum í viku. Sund þrisvar og frjálsar þrisvar,“ segir Michel en hann sérhæfir sig í lengri hlaupum, 800 og 1500 metra. „Stuttu hlaupin eru erfiðari því hann er spastískur, hann er því ekki kominn almennilega af stað þegar hinir eru komnir í mark. En hann er með mjög gott úthald sem má líklega rekja til sundsins og þess vegna hefur hann líka haldið áfram að æfa sund,“ útskýrir Anna. Michel bjó fyrstu tíu ár ævinnar í Lúxemborg en foreldrar hans eru búsettir þar að mestu. „Við eigum íbúð hér á Íslandi og höfum verið mikið með honum hér síðan haustið 2000,“ segir Anna en Michel er 28 ára og starfar á frístundaheimilinu í Hlíðaskóla sem hann hefur mjög gaman af. Hann æfir með íþróttafélagi fatlaðra og segist hafa eignast marga góða vini í gegnum íþróttirnar. „Íþróttirnar gera mjög mikið fyrir félagslífið. Svona krakkar eru oft einangraðir þó það eigi reyndar alls ekki við um Michel, því hann er afar mannblendinn,“ segir Anna glaðlega.Upplifir ókunn lönd Michel hefur talsverða keppnisreynslu. Hann tók þátt í heimsleikum Special Olympics fyrir átta árum í Aþenu en þá keppti hann í sundi. „Hann fór ekki til Los Angeles fyrir fjórum árum en tók þess í stað þátt í Evrópuleikunum í Antwerpen 2014 sem er líka mjög stórt mót,“ lýsir Anna sem segir heilmikið skipulag fylgja slíkum keppnisferðalögum. „Þetta kostar sitt en það er líka æðislega spennandi fyrir bæði hann og okkur að fara í þessar ferðir.“ Hópurinn heldur utan 7. mars og flýgur fyrst til London og síðan áfram til Abú Dabí en þar verður opnunarhátíðin haldin. „Það er algert partí og rosalega skemmtilegt,“ segir Michel en áður en mótið hefst dvelur hópurinn í viku í svokölluðu vinaþorpi. „Þar verða þau með hópum frá fleiri Norðurlöndum og kynnast þjóð, landi og siðum. Það er líka fínt að fá þessa viku til að venjast hitanum,“ segir Anna og Michel samsinnir. Hann segist hafa kynnst mjög mörgum erlendum keppendum í kringum svona mót og á fjölmarga vini í löndum um allan heim. Michel og aðrir íslenskir keppendur í sundi og frjálsum munu búa og keppa í Dúbaí og hótelið er ekkert slor. „ Þetta er svaka flott Intercontinental hótel svo það mun ekki væsa um keppendurna,“ segir Anna. En er Michel ekkert farinn að kvíða fyrir keppninni? „Nei, þetta er ekkert stress, bara skemmtun,“ svarar hann kátur en hann mun taka þátt í þremur greinum, 800 metra og 1500 metra hlaupi og boðhlaupi. Engin forkeppni er haldin enda ganga leikarnir meira út á þátttöku en keppni og þátttakendum raðað í holl eftir getu.Líka upplifun fyrir aðstandendur Foreldrar Michels, þau Anna og Paul Masselter, fylgja syni sínum til Sameinuðu arabísku furstadæmanna. „Það er okkar val, við gætum vissulega sent hann einan með hópnum, en okkur þykir þetta mjög spennandi og einstakt tækifæri til að ferðast til staðar sem maður hefði annars aldrei farið á,“ segir Anna en þau hjónin munu dvelja í Abú Dabí. Þau hafa kynnt sér landið á netinu og eru búin að punkta niður eitt og annað sem þau langar að gera. „Í það minnsta ætlum við að fá Michel lánaðan til að fara í Ferrari garðinn,“ segir Anna glaðlega.
Birtist í Fréttablaðinu Frjálsar íþróttir Mest lesið Stríðinn hrafn fluttur á Laugardalsvöll Fótbolti Selirnir verða heiðursgestir á fyrsta heimaleik KR Íslenski boltinn Svona var blaðamannafundur Arnars Fótbolti Þeir bestu (25.-21. sæti): Kolbeinn kafteinn, raðsigurvegarinn í markinu, Blikahetjur og þrumuskot suður með sjó Íslenski boltinn Aron Einar með en enginn Gylfi Fótbolti Óðs manns æði Arnars: „Ég ætla samt að gera þetta“ Fótbolti Áhorfandi hljóp inn á og réðist á fyrrverandi leikmann Vals Fótbolti Stærsti íþróttaviðburður sem fram hafi farið hér á landi Handbolti Fegin að vera komin heim: „Þetta endaði ekkert vel“ Íslenski boltinn Ronaldo langtekjuhæsti íþróttamaður heims Fótbolti Fleiri fréttir Í beinni: Breiðablik - Valur | Íslands- og bikarmeistararnir eigast við Gunnar mætir þrautreyndum kappa í sumar Óðs manns æði Arnars: „Ég ætla samt að gera þetta“ Hamilton: „Dæmið okkur eftir nokkur ár“ Stærsti íþróttaviðburður sem fram hafi farið hér á landi Aron á að hjálpa leikmönnum að hugsa ekki um ströndina Selirnir verða heiðursgestir á fyrsta heimaleik KR Svona var blaðamannafundur Arnars Aron Einar með en enginn Gylfi Þróttur mætir bikarmeisturunum Áhorfandi hljóp inn á og réðist á fyrrverandi leikmann Vals Friðrik Ingi hættur með Hauka Svona var blaðamannafundur Vals fyrir seinni úrslitaleikinn Mikilmennin misstíga sig á PGA-meistaramótinu Hörður kominn undan feldinum Þeir bestu (25.-21. sæti): Kolbeinn kafteinn, raðsigurvegarinn í markinu, Blikahetjur og þrumuskot suður með sjó Ronaldo langtekjuhæsti íþróttamaður heims Fjórtán slösuðust þegar ekið var á áhorfendur Fegin að vera komin heim: „Þetta endaði ekkert vel“ Harkaði af sér veikindi og Nuggets tryggðu oddaleik Stríðinn hrafn fluttur á Laugardalsvöll Ólympíumeistarinn hallar sér að Jesú og fjölskyldunni í kjölfar handtöku Dagskráin í dag: Risaleikur á Kópavogsvelli, Knicks geta sent Celtics í sumarfrí og PGA Vonast til að Man United sé tilbúið að selja sig á tæplega sjö milljarða króna Allt annar andi vestur í bæ en þegar hún var síðast í KR „Ég hafði góða tilfinningu fyrir þessum leik“ „Í lokin snýst þetta alltaf um okkur sjálfa“ Uppgjörið: Breiðablik - Vestri 1-2 | Vestri tryggði sér síðasta farseðilinn í 8-liða úrslit Ótrúlegur Donni kom ekki í veg fyrir tap Bikarævintýri Fram heldur áfram Sjá meira
Þeir bestu (25.-21. sæti): Kolbeinn kafteinn, raðsigurvegarinn í markinu, Blikahetjur og þrumuskot suður með sjó Íslenski boltinn
Þeir bestu (25.-21. sæti): Kolbeinn kafteinn, raðsigurvegarinn í markinu, Blikahetjur og þrumuskot suður með sjó
Þeir bestu (25.-21. sæti): Kolbeinn kafteinn, raðsigurvegarinn í markinu, Blikahetjur og þrumuskot suður með sjó Íslenski boltinn