Til ritstjóra DV Ívar Halldórsson skrifar 15. febrúar 2019 10:33 Dear Virðulegi ritstjóri, Ég kem mér beint að efninu:DV - Dregið í Vörn Mér finnst þú hafa misnotað aðstöðu þína sem fréttastjóri og gert mér erfiðara fyrir að tjá mínar skoðanir opinberlega. „Nei!“, hugsar þú núna og Dregur þig í Vörn, „þú mátt tjá þig eins og þú vilt!“ En staðreyndin er sú að ef ég voga mér að viðra mínar skoðanir varðandi ákveðin mál þá er ég málaður af miðli þínum sem einhver fordómafullur fáviti með íhaldssamar skoðanir.DV - Dauðans Vargar Miðill þinn refsar mér með því að láta mig standa frammi fyrir því að þurfa að vega og meta hvort ég vilji hætta á að særa fjölskyldu mína og vinnufélaga með því að viðra skoðanir mínar opinberlega. Þið sitjið um mig og skrif mín eins og Dauðans Vargar til að búa til afbakaðar æsifréttir sem afla ykkur illa fenginna aura á kostnað minn og þeirra sem ég umgengst.DV - Djöfulleg Vélarbrögð Miðill þinn byrjar nú nánast alltaf á því að segja að ég fordæmi fóstureyðingar, samkynhneigð og veitingastaði - og að segja að skoðanir mínar séu íhaldssamar. Fólk hugsar um leið: „Ívar er fordómafullur fáviti“. (Smá ábending: Það er ekki beint hægt að fordæma veitingastaði - orðið sem þú leitar að en finnur ekki er „gagnrýni“) Þú gefur alltaf sama tóninn þannig að lesendur eru undirbúnir að lesa grein fulla af fordómafullum skoðunum eftir æsandi inngang þinn - og gildir þá einu um hvað greinin fjallar um. Þú notar miðil þinn til að kasta rýrð á það sem ég vill tjá mig um. Þú gerir mig ótrúverðugan og niðurlægir mig persónulega í miðli þínum. Þetta eru Djöfulleg Vélarbrögð sem fá lesendur til að fella þyngri dóma en ella.DV - Dularfull Vinnubrögð Ég hef tilfinningar og skoðanir eins og aðrir. Þess vegna finnst mér gott að búa í landi þar sem...eða á að ríkja tjáninga- og skoðanafrelsi. Í landi þar sem hvatt er til samfélagslegrar og málefnalegrar umræðu um það sem tengir okkur saman og varðar okkur öll. Þú ræðst á mína persónu þegar ég nota þetta frelsi - þó ekki til að fordæma; heldur til að gagnrýna eða einfaldlega koma með innlegg inn í þjóðfélagslega umræðu. Þetta eru heldur betur mjög Dularfull Vinnubrögð. Ef þú ert ekki sammála mér getur þú birt þína eigin grein til að mótmæla minni skoðun - en þú hefur ekki leyfi til að taka greinar mínar úr samhengi eða mála mynd af mér sem svertir ímynd mína og girðir niður um mig opinberlega.DV - Deyfir Vitund Ástæðan fyrir því að fólk þorir ekki að viðra skoðanir sínar hérlendis varðandi ákveðin mál er sú að það er rakkað niður ef það aðhyllist ekki vinsælustu skoðanirnar - t.d. af miðlum eins og þínum sem virðast búnar að dæma fyrirfram hvað sé rétt og frambærileg skoðun. Það er spurning hver er í raun að fordæma. Miðill þinn ýtir undir þjóðlæga meðvirkni og bælir niður skoðanafrelsi og Deyfir betri Vitund fólksins með vinnubrögðum sem er auðvitað ekkert nema ákveðin tegund af einelti.DV - Dónaskapur og Virðingarleysi Miðill þinn hefur ekki rétt á að afskræma minn málflutning með niðrandi fyrirsögnum og leiðurum. Það er Dónaskapur og Virðingarleysi. Að gefa í skyn að ég sé fordómafullur öfgamaður er það sama og að villa á mér heimildir og í raun ljúga upp á mig einhverju sem á sér ekki stoð í raunveruleikanum. Þetta er vanvirðing við mig sem ég sætti mig ekki við.DV - Dritað yfir Vinnusiðferði Þá vil ég benda á að ég tek fulla og persónulega ábyrgð á mínum eigin skoðunum. Þetta eru mínar skoðanir, og þær endurspegla ekkert endilega skoðanir vinnuveitenda minna, fjölskyldu eða vina. Ég skrifa einungis nafn mitt undir skoðanaskrif mín; engan starfstitil til að undirstrika að ég blanda ekki þessu tvennu saman. Skoðanir mínar hafa engin áhrif á störf mín og nota ég vinnustað minn aldrei til að koma skoðunum sem umdeildar eru í umræðunni á framfæri. Þú leyfir miðli þínum þó að Drita yfir þetta Vinnusiðferði. Ég hef nefnilega aldrei og mun aldrei misnota starfsaðstöðu mína til að troða skoðunum mínum upp á aðra. Miðill þinn gefur hins vegar skít í þessa virðingu sem ég sýni þeim sem mér eru kærir, með því að troða inn vinnustað mínum þegar þið takið mig fyrir - og búið þannig til villandi tengingar í mína óþökk. Þetta leyfir þú til að græða meira á mínum skoðunum, eins og þú í raun sagðir við mig hreint út í símtali um daginn, þegar ég bað þig að virða óskir mínar varðandi matreiðslu ykkar á mínum skoðunum. Þetta kann ég ekki að meta - og það veist þú; en hefur þó ekki virt.Dálítil Viðbót Ég krefst þess að miðill þinn hætti að niðurlægja mig, fjölskyldu mína og hætti einnig að setja vinnuveitendur mína í erfiða aðstöðu vegna þeirrar öfgamyndar sem miðill þinn málar af mér. Leyfðu lesendum þínum að gera upp sinn eigin hug þegar þeir lesa skoðanir mínar. Sýndu þeim þá virðingu að vera ekki að troða fordómafullum skoðunum miðils þíns á mér, upp á þá. Þetta er hugsandi fólk sem getur tekið afstöðu til skoðana minna án þinnar „hjálpar“ - hundsað þær eða heiðrað. Þú vilt kannski ekki að þeir séu sammála mér en það er óheiðarlegt að stýra þeim í burtu frá mínum skoðunum með því að telja þeim í trú um að ég sé öfgafullur og íhaldssamur hálfviti. Dreifum Virðingu, Kveðja, Bara Ívar Halldórsson Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ívar Halldórsson Mest lesið Að langa en geta ekki Birna Heiðarsdóttir Skoðun Flugfélög og styrkur stéttarfélaga, traust og tryggð Matthías Arngrímsson Skoðun Opinn tékki með fullveldið að veði Sigurður Egilsson Skoðun Hversu mikið af varnarefnum er í matnum þínum? Anna Lind Fells Skoðun Tveir öfgamenn ganga inn á bar... Ólafur Hauksson Skoðun Tala og tala en gera ekki neitt Tómas Þór Þórðarson Skoðun Hvar liggja mörkin? Dagmar Valsdóttir Skoðun Hver er munurinn á Þorgerði Katrínu og Donald Trump? Júlíus Valsson Skoðun Alþingi í samstarfi við pólitísk félagasamtök? Guttormur Þorsteinsson Skoðun Framkvæmdastjórar SA styðja hækkun kostnaðar við opinbert eftirlit Hörður Þorsteinsson Skoðun Skoðun Skoðun Kæru landar - Af hverju eigum við að segja JÁ í ágúst? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Forgangsröðun fjár úti í skurði Diljá Matthíasardóttir skrifar Skoðun Staða Grindavíkur Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Raunhæf leið til að bæta heilbrigðiseftirlit Kolbrún Georgsdóttir skrifar Skoðun Fyrstu fasteignakaup sjaldan verið aðgengilegri Víðir Arnar Kristjánsson skrifar Skoðun Ferðaþjónustan 2026: Vöxturinn er ekki lengur sjálfgefinn Herborg Svana Hjelm skrifar Skoðun Hvar liggja mörkin? Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Hversu mikið af varnarefnum er í matnum þínum? Anna Lind Fells skrifar Skoðun Tveir öfgamenn ganga inn á bar... Ólafur Hauksson skrifar Skoðun Hildarleikur Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Frístundastarf skiptir máli - líka á sumrin ! Steinn Jóhannsson,Soffía Pálsdóttir ,Jakob Frímann Þorsteinsson skrifar Skoðun Börn send fram og til baka Lúðvík Júlíusson skrifar Skoðun Flugfélög og styrkur stéttarfélaga, traust og tryggð Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Framkvæmdastjórar SA styðja hækkun kostnaðar við opinbert eftirlit Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Þekking sem mótar land, byggð og samfélag Þórður Már Sigfússon skrifar Skoðun „Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Hvað gerist þegar barn hættir að treysta fullorðnum? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Til hvers var barist og hver situr að aflanum? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hver er munurinn á Þorgerði Katrínu og Donald Trump? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Traust verður verðmætasta auðlind fyrirtækja á tímum gervigreindar Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Tala og tala en gera ekki neitt Tómas Þór Þórðarson skrifar Skoðun Leiðrétting á loftslagsumræðu á Alþingi: Ísland er ekki fyrirmynd og ESB er ekki vandamálið Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Barnamenning mótar raddir framtíðar Logi Már Einarsson skrifar Skoðun Samfélagið á innsoginu: Við bíðum bara eftir næsta morði á borð við Menningarnótt Davíð Bergmann skrifar Skoðun Þegar hegðun er ákall en enginn hlustar Ásta Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Alþingi í samstarfi við pólitísk félagasamtök? Guttormur Þorsteinsson skrifar Skoðun Að langa en geta ekki Birna Heiðarsdóttir skrifar Skoðun Misskilningur um samræmingu heilbrigðiseftirlits Pétur Halldórsson skrifar Skoðun Opinn tékki með fullveldið að veði Sigurður Egilsson skrifar Skoðun Gjaldmiðlamálið: íslenski smábáturinn eða stóra skipið sem þolir ólgusjó? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Frístundastarf skiptir máli - líka á sumrin ! Steinn Jóhannsson,Soffía Pálsdóttir ,Jakob Frímann Þorsteinsson skrifar
Skoðun Framkvæmdastjórar SA styðja hækkun kostnaðar við opinbert eftirlit Hörður Þorsteinsson skrifar
Skoðun „Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason skrifar
Skoðun Traust verður verðmætasta auðlind fyrirtækja á tímum gervigreindar Gísli Rafn Ólafsson skrifar
Skoðun Leiðrétting á loftslagsumræðu á Alþingi: Ísland er ekki fyrirmynd og ESB er ekki vandamálið Eyþór Eðvarðsson skrifar
Skoðun Samfélagið á innsoginu: Við bíðum bara eftir næsta morði á borð við Menningarnótt Davíð Bergmann skrifar
Skoðun Gjaldmiðlamálið: íslenski smábáturinn eða stóra skipið sem þolir ólgusjó? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar