Herðir á frosti í kvöld Stefán Ó. Jónsson skrifar 1. febrúar 2019 06:40 Þessi snjókall mun eflaust plumma sig vel í frostinu í kvöld. Þó gæti orðið lítið eftir af honum þegar hlýnar í næstu viku. Vísir/vilhelm „
Köld norðanáttin leikur enn um landið og ber éljaloft yfir norðurhelminginn, en miðhálendið heldur sunnanverðu landinu yfirleitt björtu og éljalausu,“ að sögn veðurfræðings. Hann bætir við að það muni þó draga smám saman úr vindi vestanlands og éljum nyrðra eftir hádegi. Frostið verður á bilinu 2 til 13 stig í dag en þegar líða tekur á daginn kólnar enn frekar. Von er á hæðarhrygg yfir landið á morgun og mun víða létta til. Lægðardrag nálgist þó af Grænlandshafi með austanstrekkingsvindi og éljum á suðurhlutanum. Dragið gengur síðan yfir Suður- og Vesturland á sunnudag og snjóar þá með köflum á þeim slóðum, en helst bjart á Norðausturlandi. Eftir helgi er síðan spáð umhleypingum með úrkomu af ýmsu tagi. Til að mynda er áætlað að hitinn verði í kringum frostmark um miðja næstu viku.Veðurhorfur á landinu næstu dagaÁ laugardag:Hæg breytileg átt og víða léttskýjað, en stöku él við sjávarsíðuna. Frost 10 til 22 stig, kaldast í innsveitum nyrðra. Vaxandi austlæg átt með suðurströndinni síðdegis og þykknar upp, lítilsháttar snjókoma þar um kvöldið og dregur úr frosti.Á sunnudag og mánudag:Austlæg átt, 5-13 m/s og snjókoma á köflum, él við A-ströndina, en hægara og bjartviðri á NA-landi. Áfram talsvert frost, einkum fyrir norðan.Á þriðjudag:Vaxandi suðaustanátt, hvassviðri eða stormur með snjókomu, en síðar talsverðri slyddu og rigningu og ört hlýnandi veðri, en úrkomulítið og kaldara NA-til fram á kvöld.Á miðvikudag:Útlit fyrir austan- og norðaustanhvassviðri og snjókomu eða slyddu fram eftir degi, en síðan mun hægara og slydduél eða skúrir S- og A-til. Hiti kringum forstmark.Á fimmtudag:Líklega norðaustlæg átt, él víða á landinu og kólnandi veður.
Veður Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Innlent Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Innlent Fleiri fréttir Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Sjá meira