Norskur þingmaður handtekinn eftir „rússneska rúllettu“ Atli Ísleifsson skrifar 4. febrúar 2019 11:32 Mazyar Keshvari tók sæti á norska þinginu árið 2013. Mynd/FRP
Lögregla í Noregi handtók um helgina þingmanninn Mazyar Keshvari vegna gruns um að hafa ógnað öðrum manni með skotvopni. Keshvari, sem er þingmaður Framfaraflokksins, neitar sök í málinu. Talsmaður lögreglu staðfestir í samtali við VG að stjórnmálamaður hafi verið handtekinn vegna gruns um brot á hegningarlögum. Hann gæti átt yfir höfði sér allt að þriggja ára fangelsi verði hann fundinn sekur. VG greinir frá því að Keshvari hafi framkvæmt einhverja tegund af „rússneskri rúllettu“ með skotvopni. Hafi hann verið ölvaður þegar atvikið átti sér stað. Málið var tilkynnt til lögreglu af þeim Keshvari á að hafa hótað. Búið er að leggja hald á skotvopn í íbúð þingmannsins.Kveðst saklaus Lögmaður Keshvari hefur ekki tjáð sig um málið, nema það að skjólstæðingur sinn kveðst saklaus af öllum ásökunum. Hans Andreas Limi, þingflokksformaður Framfaraflokksins, hefur enn sem komið er ekki viljað tjá sig um málið. Framfaraflokkurinn myndar stjórn í Noregi ásamt Hægriflokki Ernu Solberg forsætisráðherra, Venstre og Kristilega þjóðarflokksins. Formaður Framfaraflokksins er Siv Jensen fjármálaráðherra. Hinn 37 ára Mazyar Keshvari tók sæti á norska þinginu árið 2013.
Noregur Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Bandaríkjamenn ráðast á Íran Erlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Innlent Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Innlent „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ Innlent Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent Fleiri fréttir Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Bandaríkjamenn ráðast á Íran Segir Írani hafa skotið niður þyrlu Bandaríkjanna Stríðið gegn holdétandi flugunni fær nýtt líf Kristersson í kröppum dansi á kosningaári Virðist bjartsýnn á að gæfan sé að snúast Úkraínumönnum í hag Armenar horfa áfram til vesturs eftir kosningar Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Marius látinn laus Xi í heimsókn hjá Kim: Í keppni við Pútín um áhrif í Pyongyang Báðir segjast hættir, í bili Strunsaði úr viðtali: „Þú ert annaðhvort spillt eða heimsk“ Bretar setja ofan í við Vance vegna undirróðurs Skutu niður dróna yfir Lettlandi í fyrsta sinn Öflugur jarðskjálfti úti fyrir Filippseyjum í nótt Ísraelar og Íranir skiptast á skotum en Trump segist við stjórnvölinn Íranir skjóta á Ísrael Stór rafmagnsflugvél reynd fyrir fyrsta flug Bregðast við skammarbréfi Þorgerðar og félaga Fær fangelsisfrí til að heimsækja móður sína Lungnaígræðsla ekki lækning heldur sjúkdómaskipti Sátu að sumbli þegar eldur blossaði skyndilega upp í bifreið Fengu yfir sig holskeflu haturs eftir að þau ákváðu að binda enda á meðgönguna Pútín hafnar fundi með Selenskí og ítrekar kröfur Rússa Vill fá Ísland inn og tólf í viðbót Nýr leki á rússneskum hluta geimstöðvarinnar Danska lögreglan komin með nóg af drukknum börnum Hafði leigutekjur af húsnæði krúnunnar Breyttu fósturvísum af meiri nákvæmni en áður Sjá meira