ÍBV án Thedórs út leiktíðina? Anton Ingi Leifsson skrifar 5. febrúar 2019 22:11 Theodór í úrslitaeinvíginu gegn ÍBV á síðustu leiktíð. vísir/bára
Theodór Sigurbjörnsson, einn besti leikmaður Olís-deildarinnar og hægri hornamaður ÍBV, gæti verið frá út leiktíðina en Morgunblaðið greinir frá þessu í kvöld. Theodór hefur verið einn albesti leikmaður Olís-deildarinnar undanfarin ár en hann hefur verið á meiðslalistanum undanfarnar vikur og var ekki með ÍBV gegn ÍR í gærkvöldi er liðin gerðu jafntefli, 24-24. „Ég er með eitthvert vesen í brjóski í bakinu og þetta hefur verið að angra mig síðan í nóvember. Síðasti kosturinn er að fara í aðgerð en ég mun byrja á því að fara í endurhæfingu sem mun taka dágóðan tíma,“ sagði Theodór. „Eftir þær fréttir sem ég fékk hjá lækninum í gær þá má reikna því að ég spili ekkert meira með í vetur.“ ÍBV hefur verið í vandræðum í vetur og eru Íslandsmeistararnir í sjöunda sæti deildarinnar með þrettán stig. Eins og staðan er núna er ÍBV í harðri baráttu um úrslitakeppnissæti en Theodór reiknar ekki með að spila meira. „Ef ég fer of snemma af stað þá myndi ég bara fá það í hausinn síðar meir. Ég verð bara að taka þann tíma sem það tekur að fá sig góðan af þessu og læknirinn sagði að það tæki að minnsta kosti þrjá mánuði,“ sagði Theodór í samtali við mbl.is.
Olís-deild karla Mest lesið KR - Valur | Eiga harma að hefna í Reykjavíkurslag Íslenski boltinn Stjarnan - Víkingur R. | Toppliðið mætir Stjörnunni sem hefur skinið skærar Íslenski boltinn Bæði lið í svörtu og rauðu: „Þetta er fáránlegt, við sjáum ekkert hver er hvað“ Íslenski boltinn Verður Aron þjálfari FH? Handbolti Þjálfari ÍBV vill VAR á Íslandi eftir „ólöglegt“ mark Íslenski boltinn Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Enski boltinn Tilkynnti nýjan samning í miðri skrúðgöngu og verður launahæst í heimi Fótbolti City að vinna United í slagnum um Anderson Enski boltinn „Ætla að vona að við lærum af þessum leik“ Íslenski boltinn Danskur skúrkur og Wolfsburg fallið í fyrsta sinn í 30 ár Fótbolti Fleiri fréttir Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Rúnar sigraði á móti sínum gömlu íslensku lærisveinum Donni og félagar komnir í úrslit Allt jafnt í úrslitaeinvíginu Einar Rafn snýr aftur í Fjörðinn Haukur mikilvægari en Gidsel Haukur fær nýjan samning eftir ótrúlega leiktíð Samningur í höfn: Þjóðverjar treysta á Alfreð fram yfir ÓL í Los Angeles Dagur orðaður við stórlið en kapallinn langur Skipað að ganga frá samningi við Alfreð sem fyrst Gísli Þorgeir tryggði Magdeburg þýska meistaratitilinn Elín Klara endaði leikinn með látum og er einum sigri frá titlinum Þjálfari Magdeburg sækist ekki eftir starfi Alfreðs Donni dreginn að landi af liðsfélögunum Magnaður Einar Bragi með ellefu mörk í fyrsta úrslitaleiknum Íslenskættaða goðsögnin hættir 44 ára að aldri Guðjón Valur pollrólegur yfir stöðunni Hörð gagnrýni á Alfreð: „Hann hefur ekkert lært“ Ungverjagrýlunni hent út en gæti enn fengið boð á ballið Naumt tap hjá Íslendingaliðinu í fyrri úrslitaleiknum Færeyingar í skýjunum með HM-sætið: „Eigum bara eftir að verða betri“ Færeyjar á HM í fyrsta sinn Strákarnir hans Dags unnu Svía Yngri bróðir Sagosen steig á svið er Noregur komst á HM Sjá meira