Breikkun Reykjanesbrautar gæti lokið innan fimm ára Kristján Már Unnarsson skrifar 15. desember 2018 23:36 Breikkun Reykjanesbrautar gæti lokið innan fimm ára og framkvæmdir við Öxi og Dynjandisheiði hafist innan tveggja ára, verði verkefnum flýtt með veggjöldum. Þetta er mat Jóns Gunnarssonar formanns þingnefndarinnar sem fjallar um málið. Vísir/Stöð 2
Breikkun Reykjanesbrautar gæti lokið innan fimm ára og framkvæmdir við Öxi og Dynjandisheiði hafist innan tveggja ára, verði verkefnum flýtt með veggjöldum. Þetta er mat Jóns Gunnarssonar formanns þingnefndarinnar, sem fjallar um málið, en hann var spurður um þau verkefni sem yrði hraðað í fréttum Stöðvar 2. „Við getum séð fyrir okkur að Reykjanesbrautin í gegnum Hafnarfjörð með lokafrágangi innan Hafnarfjarðar geti verið lokið algjörlega á fimm ára áætluninni og jafnvel fyrr.“ Utan Suðvesturlands yrði gerð heilsársvegur um Öxi ofan Berufjarðar en hann styttir leiðina milli Egilsstaða og Reykjavíkur um 71 kílómetra. „Ef við tölum, til að mynda, um Öxi þar sem vegurinn er svo gott sem fullhannaður og hægt að fara af stað mjög fljótlega að þá hef ég séð það fyrir mér að hann gæti farið af stað mjög fljótlega, 2019 eða 2020,“ segir Jón.Jón Gunnarsson er starfandi formaður umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis.Stöð 2/Bjarni Einarsson.Þá nefnir hann uppbyggingu vegar yfir Dynjandisheiði sem nú er í umhverfismati. „Þetta þýðir það að við getum farið fyrr af stað þar að mínu mati um leið og umhverfismati lýkur og þá verður Dynjandisheiðin hluti af Dýrafjarðargöngum og þetta ætti ekki að þurfa að draga mjög úr nýtingu þeirra. Það lá fyrir að þetta yrði mun seinna.“ Það á að malbika sveitavegi víða um land. „Það eru á norðausturhorninu auðvitað vegir sem auðvitað er mjög mikilvægt að bregðast við. Lengstu malarvegir í kerfinu okkar eru í Norðurlandskjördæmi vestra, Borgarfjörður, Húnavatnssýsla og Skógarströndin. Það er líka mikil þörf á þessu í uppsveitum Árnes-og Rangárvallasýslu, sérstaklega kannski Rangárvallasýslu. Þarna leggjum við - í nefndaráliti - alveg sérstaklega áherslu á það að áhrifunum verði beitt í þá átt að við förum í þessa vegi,“ segir Jón Gunnarsson. Í hádegisfréttum Bylgjunnar var Jón spurður um þá tortryggni sem gætir í garð hugmynda um veggjöld enda virðist það hafa verið frekar regla en undantekning að slíkir sérskattar séu teknir í annað með svokölluðum bandormi.
Hafnarfjörður Tengdar fréttir Skattar eins og náttúrupassi allir orðið bandormi að bráð Náttúrupassinn verður ekki fyrsta tilraun stjórnvalda til sérstakrar skattlagningar til að endurbæta ferðamannastaði. 19. desember 2014 22:09 Jón segir veggjöldin gjörbylta samgöngum á næstu 5 árum Landsmenn munu sjá gjörbyltingu í samgöngumálum á næstu fimm árum, að mati Jóns Gunnarssonar, formanns þingnefndarinnar sem leiðir upptöku veggjalda. Lægsta gjald verður á bilinu 100-150 krónur. 12. desember 2018 20:00 Taka vel í hugmyndir um upptöku veggjalda Bæjarstjórar Akraness og Árborgar eru jákvæðir gagnvart hugmyndum um veggjöld og telja þær einu leiðina til að fjármagna löngu tímabærar samgönguúrbætur. Fram kom í haust að ekki stæði til að taka upp veggjöld á Reykjanesbraut. 13. desember 2018 07:00 Vegtollum ætlað að fara í sérfélag um flýtiverkefnin Tekjur af veggjöldum eiga ekki að renna í ríkissjóð heldur inn í sérfélag sem hafi það eina hlutverk að greiða tiltekin verkefni og þegar þau eru uppgreidd verður innheimtu hætt. 15. desember 2018 14:00 Samgönguáætlun sögð stríðshanski inn í þingið Áform stjórnarflokkanna um að ná vegtollum inn í samgönguáætlun fyrir jólahlé Alþingis eru í uppnámi eftir að stjórnarandstæðingar hótuðu málþófi. 11. desember 2018 22:00 Vegagerðinni ekki haggað hvað veg um Teigsskóg varðar Að mati Vegagerðarinnar er leið Þ-H um Teigsskóg á Vestfjarðaleið sá kostur sem helst kemur til greina við uppbyggingu stofnvegakerfis um sunnanverða Vestfirði 13. desember 2018 09:49 Upp úr sauð á Alþingi vegna samgönguáætlunar: „Herra forseti, þetta er fúsk“ Það ætlaði allt um koll að keyra á Alþingi í kvöld þegar rætt var um breytingartillögur á samgönguáætlun en fjölmargir þingmenn stjórnarandstöðunnar sökuðu ríkisstjórnina um að vilja keyra samgönguáætlunina í gegn á Alþingi fyrir jólafrí án nokkurs samráðs við stjórnarandstöðuna. 11. desember 2018 21:20 Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Fleiri fréttir Serbar ganga til skyndikosninga Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Sjá meira
Skattar eins og náttúrupassi allir orðið bandormi að bráð Náttúrupassinn verður ekki fyrsta tilraun stjórnvalda til sérstakrar skattlagningar til að endurbæta ferðamannastaði. 19. desember 2014 22:09
Jón segir veggjöldin gjörbylta samgöngum á næstu 5 árum Landsmenn munu sjá gjörbyltingu í samgöngumálum á næstu fimm árum, að mati Jóns Gunnarssonar, formanns þingnefndarinnar sem leiðir upptöku veggjalda. Lægsta gjald verður á bilinu 100-150 krónur. 12. desember 2018 20:00
Taka vel í hugmyndir um upptöku veggjalda Bæjarstjórar Akraness og Árborgar eru jákvæðir gagnvart hugmyndum um veggjöld og telja þær einu leiðina til að fjármagna löngu tímabærar samgönguúrbætur. Fram kom í haust að ekki stæði til að taka upp veggjöld á Reykjanesbraut. 13. desember 2018 07:00
Vegtollum ætlað að fara í sérfélag um flýtiverkefnin Tekjur af veggjöldum eiga ekki að renna í ríkissjóð heldur inn í sérfélag sem hafi það eina hlutverk að greiða tiltekin verkefni og þegar þau eru uppgreidd verður innheimtu hætt. 15. desember 2018 14:00
Samgönguáætlun sögð stríðshanski inn í þingið Áform stjórnarflokkanna um að ná vegtollum inn í samgönguáætlun fyrir jólahlé Alþingis eru í uppnámi eftir að stjórnarandstæðingar hótuðu málþófi. 11. desember 2018 22:00
Vegagerðinni ekki haggað hvað veg um Teigsskóg varðar Að mati Vegagerðarinnar er leið Þ-H um Teigsskóg á Vestfjarðaleið sá kostur sem helst kemur til greina við uppbyggingu stofnvegakerfis um sunnanverða Vestfirði 13. desember 2018 09:49
Upp úr sauð á Alþingi vegna samgönguáætlunar: „Herra forseti, þetta er fúsk“ Það ætlaði allt um koll að keyra á Alþingi í kvöld þegar rætt var um breytingartillögur á samgönguáætlun en fjölmargir þingmenn stjórnarandstöðunnar sökuðu ríkisstjórnina um að vilja keyra samgönguáætlunina í gegn á Alþingi fyrir jólafrí án nokkurs samráðs við stjórnarandstöðuna. 11. desember 2018 21:20