Seinni bylgjan: Drulluleiður á því að það sé endalaust gengið fram hjá honum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. desember 2018 09:30 Daníel Freyr Andrésson. Vísir/Vilhelm
Daníel Freyr Andrésson hefur átt frábæra endurkomu í Olís deild karla í handbolta í vetur og á mikinn þátt í því að Valsmenn eru það lið sem hefur fengið á sig fæst mörk í deildinni. Daníel Freyr kom heim úr atvinnumennsku og hefur hvað eftir annað lokað marki Valsmanna á mikilvægum tímapunktum. Seinni bylgjan fjallaði sérstaklega um frammistöðu Daníels Freys Andréssonar í sigri Vals á toppliði Haukum í stórleik ellefu umferðar. Logi Geirsson, einn sérfræðinganna í Seinni bylgjunni vill að Daníel Freyr fái að fara með íslenska landsliðinu á HM í Þýskalandi og Danmörku í byrjun næsta árs. „Munurinn á liðunum í dag var Daníel Freyr Andrésson. Ég er orðinn drulluleiður á því að það sé endalaust gengið fram hjá honum,“ sagði Logi Geirsson og bætti við: „Þá á ég við landsliðið til dæmis,“ sagði Logi. „Ég sagði það í upphitunarþættinum að þetta yrði besti maðurinn. Þú sagðir Ásgeir Örn,“ sagði Logi og benti á Jóhann Gunnar Einarsson, hinn sérfræðinginn í settinu, og hélt svo áfram „en ég sagði Daníel“ „Sjáið bara hvað Daníel er að skila. Hvað er hann kominn með marga leiki í röð með 40 prósent markvörslu? Ég vil ekki að það sé gengið framhjá þessum gæja. Ég vil sjá hann fá tækifæri í landsliðinu. Hann er það góður,“ sagði Logi. Það má sjá alla umfjöllun Seinni bylgjunnar um Daníel Freyr og markmannsmál landsliðsins hér fyrir neðan.Klippa: Seinni bylgjan: Daníel í landsliðið
Olís-deild karla Mest lesið Uppgjörið: KR - Valur 3-1 | KR-ingar aftur á sigurbraut Íslenski boltinn Stjarnan - Víkingur 1-3 | Toppliðið áfram í toppmálum Íslenski boltinn Bæði lið í svörtu og rauðu: „Þetta er fáránlegt, við sjáum ekkert hver er hvað“ Íslenski boltinn Rodri ekki meira með KA í ár Íslenski boltinn Verður Aron þjálfari FH? Handbolti Þjálfari ÍBV vill VAR á Íslandi eftir „ólöglegt“ mark Íslenski boltinn City að vinna United í slagnum um Anderson Enski boltinn Sá næstyngsti í sögu efstu deildar Íslenski boltinn Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Enski boltinn Tilkynnti nýjan samning í miðri skrúðgöngu og verður launahæst í heimi Fótbolti Fleiri fréttir Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Rúnar sigraði á móti sínum gömlu íslensku lærisveinum Donni og félagar komnir í úrslit Allt jafnt í úrslitaeinvíginu Einar Rafn snýr aftur í Fjörðinn Haukur mikilvægari en Gidsel Haukur fær nýjan samning eftir ótrúlega leiktíð Samningur í höfn: Þjóðverjar treysta á Alfreð fram yfir ÓL í Los Angeles Dagur orðaður við stórlið en kapallinn langur Skipað að ganga frá samningi við Alfreð sem fyrst Gísli Þorgeir tryggði Magdeburg þýska meistaratitilinn Elín Klara endaði leikinn með látum og er einum sigri frá titlinum Þjálfari Magdeburg sækist ekki eftir starfi Alfreðs Donni dreginn að landi af liðsfélögunum Magnaður Einar Bragi með ellefu mörk í fyrsta úrslitaleiknum Íslenskættaða goðsögnin hættir 44 ára að aldri Guðjón Valur pollrólegur yfir stöðunni Hörð gagnrýni á Alfreð: „Hann hefur ekkert lært“ Ungverjagrýlunni hent út en gæti enn fengið boð á ballið Naumt tap hjá Íslendingaliðinu í fyrri úrslitaleiknum Færeyingar í skýjunum með HM-sætið: „Eigum bara eftir að verða betri“ Færeyjar á HM í fyrsta sinn Strákarnir hans Dags unnu Svía Yngri bróðir Sagosen steig á svið er Noregur komst á HM Sjá meira