Boðar breytingar á samgönguáætlun Kristján Már Unnarsson skrifar 8. desember 2018 22:00 Jón Gunnarsson, starfandi formaður umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis. Stöð 2/Friðrik Þór Halldórsson.
Óhjákvæmilegt er að breytingar verði gerðar á samgönguáætlun, segir Jón Gunnarsson, starfandi formaður umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis. Það gildi ekki aðeins um vegagerð heldur einnig um flugvelli og hafnir. Fjallað var um málið í fréttum Stöðvar 2. Óhætt er að segja að samgönguáætlun sem ríkisstjórnin lagði fyrir Alþingi í haust hafi valdið vonbrigðum nánast um land allt. Margir bjuggust því við að þingið myndi bæta við fjármunum til málaflokksins en þvert á móti kom fjárlaganefnd með tillögu um niðurskurð, sem umhverfis- og samgöngunefnd undir forystu Jóns Gunnarssonar glímir nú við.Samgönguáætlun er til meðferðar í umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis. Jón Gunnarsson situr í forsæti þingnefndarinnar.Stöð 2/Friðrik Þór Halldórsson.En er nefndin búin að ákveða hvar verði skorið niður? „Niðurskurðurinn er um 400 milljónir. Já, já. Við erum að glíma við það og það eru svo sem leiðir til þess,“ svarar Jón. „En ef við náum að draga upp þá sviðsmynd, sem gæti blasað við, ef farin yrði þessi veggjaldaleið, þá verður allt annað landslag hér strax árið 2020-21. Þannig kýs ég nú að horfa á heildarmyndina. Þannig að þessi niðurskurður ætti þá ekki að koma að sök.“ Frá Reykjanesbraut. Breikkun brautarinnar milli Hafnarfjarðar og Leifsstöðvar klárast að óbreyttu ekki fyrr en árið 2033.Vísir/VilhelmÞingnefndin stefnir að því að klára bæði fimm ára og fimmtán ára samgönguáætlun fyrir lok næstu viku en þar er verið að skipta yfir tvöhundruð milljörðum króna til nýframkvæmda. Talan gæti orðið hærri með veggjöldum. En mun þingnefndin hreyfa til verkefnum að ráði? „Ja, það byggist svolítið á því hvaða sviðsmynd verður fyrir valinu hjá okkur. Það verður að gera ákveðnar breytingar á samgönguáætlun. Það er víða kallað á meira fjármagn, ekki bara í vegaframkvæmdir.Frá Akureyrarflugvelli. Verið er að sturta efni úr Vaðlaheiðargöngum í svæði sem ætlað er undir flughlað.Stöð 2/Friðrik Þór Halldórsson.Það eru líka stórar breytingar sem þurfa að eiga sér stað í kringum flugið. Það hefur komið sterk umræða um ástandið í varaflugvallarmálum hér á landi og innanlandsfluginu almennt. Við eigum líka mjög stóra pakka fyrir framan okkur í hafnarframkvæmdum og sjóvörnum og slíku. Þannig að það er auðvitað hluti af þessari heildarmynd. Og ef menn stíga einhver skref í þessu þá hefur þetta áhrif á öll púslin í myndinni,“ segir Jón Gunnarsson, starfandi formaður umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis. Hér má sjá frétt Stöðvar 2:
Hafnarfjörður Tengdar fréttir Jón leiðir samgönguáætlun til lykta eftir brotthvarf Bergþórs Klaustursmálið hefur haft þær pólitísku afleiðingar að það kemur í hlut nýs þingnefndarformanns að leiða til lykta eitt stærsta mál þingsins, samgönguáætlun. 6. desember 2018 20:30 Fer fram á breytingar á samgönguáætlun Bæjararstóri Hafnarfjarðar segir hörmulegt að horfa upp á fjölda slysa sem hefur átt sér stað á kafla Reykjanesbrautarinnar sem ekki hefur verið tvöfaldaður. 29. október 2018 20:00 Aka lengst allra á möl en ætíð frestast vegabætur Oddviti Árneshrepps á Ströndum segir það ömurlegt að fá þau skilaboð núna frá ríkisstjórn að enn eigi að fresta samgöngubótum. 8. nóvember 2018 20:30 Vilja að 550 milljónir verði skornar af samgöngumálum 550 milljónir króna verða skornar niður af framlögum til samgöngumála á næsta ári, samkvæmt tillögu meirihluta fjárlaganefndar Alþingis. 16. nóvember 2018 21:00 Holóttur vegur veldur börnum kvíða og uppköstum Sum börn á Vatnsnesi þurfa að ferðast um áttatíu kílómetra á dag eftir veginum. Dæmi er um að þau hafi ælt af hristingnum. Íbúi segir þau sýna einkenni þess að vilja ekki fara í skóla vegna þess. 13. október 2018 15:15 Borgin ýtir á eftir fé í borgarlínu Verkefnahópur um útfærslur og fjármögnun borgarlínu skilar af sér fyrir eða eftir helgi. Borgin segir skýrt að ríkið geti ekki staðið við áætlanir í loftslagsmálum án breyttra samgangna 13. nóvember 2018 08:00 Icelandair: Ófullnægjandi aðstaða á varaflugvöllum stærsta ógn við flugöryggi til og frá landinu Það er mat forráðamanna lcelandair að smæð flughlaða og skortur á flugstæðum á flugvöllunum á Akureyri og Egilsstöðum sé stærsta ógn við öryggi flug til og frá íslandi 30. október 2018 14:15 Austfirðingar ósáttir með samgönguáætlun Stjórn Sambands sveitarfélaga á Austurlandi segir framkvæmdir og viðhald vega í fjórðungnum hafa verið í algeru lágmarki á síðustu árum. 21. september 2018 17:59 Samgönguáætlun boðar lengri bið eftir stórverkum í vegagerð Tvöföldun Reykjanesbrautar klárast eftir fimmtán ár, jarðgöng til Seyðisfjarðar frestast um áratug, engin fjárveiting er í Sundabraut og minnst áratugur er í að Miklabraut fari í stokk. Þessi tíðindi birtast í nýrri samgönguáætlun. 20. september 2018 19:45 Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Fleiri fréttir Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Sjá meira
Jón leiðir samgönguáætlun til lykta eftir brotthvarf Bergþórs Klaustursmálið hefur haft þær pólitísku afleiðingar að það kemur í hlut nýs þingnefndarformanns að leiða til lykta eitt stærsta mál þingsins, samgönguáætlun. 6. desember 2018 20:30
Fer fram á breytingar á samgönguáætlun Bæjararstóri Hafnarfjarðar segir hörmulegt að horfa upp á fjölda slysa sem hefur átt sér stað á kafla Reykjanesbrautarinnar sem ekki hefur verið tvöfaldaður. 29. október 2018 20:00
Aka lengst allra á möl en ætíð frestast vegabætur Oddviti Árneshrepps á Ströndum segir það ömurlegt að fá þau skilaboð núna frá ríkisstjórn að enn eigi að fresta samgöngubótum. 8. nóvember 2018 20:30
Vilja að 550 milljónir verði skornar af samgöngumálum 550 milljónir króna verða skornar niður af framlögum til samgöngumála á næsta ári, samkvæmt tillögu meirihluta fjárlaganefndar Alþingis. 16. nóvember 2018 21:00
Holóttur vegur veldur börnum kvíða og uppköstum Sum börn á Vatnsnesi þurfa að ferðast um áttatíu kílómetra á dag eftir veginum. Dæmi er um að þau hafi ælt af hristingnum. Íbúi segir þau sýna einkenni þess að vilja ekki fara í skóla vegna þess. 13. október 2018 15:15
Borgin ýtir á eftir fé í borgarlínu Verkefnahópur um útfærslur og fjármögnun borgarlínu skilar af sér fyrir eða eftir helgi. Borgin segir skýrt að ríkið geti ekki staðið við áætlanir í loftslagsmálum án breyttra samgangna 13. nóvember 2018 08:00
Icelandair: Ófullnægjandi aðstaða á varaflugvöllum stærsta ógn við flugöryggi til og frá landinu Það er mat forráðamanna lcelandair að smæð flughlaða og skortur á flugstæðum á flugvöllunum á Akureyri og Egilsstöðum sé stærsta ógn við öryggi flug til og frá íslandi 30. október 2018 14:15
Austfirðingar ósáttir með samgönguáætlun Stjórn Sambands sveitarfélaga á Austurlandi segir framkvæmdir og viðhald vega í fjórðungnum hafa verið í algeru lágmarki á síðustu árum. 21. september 2018 17:59
Samgönguáætlun boðar lengri bið eftir stórverkum í vegagerð Tvöföldun Reykjanesbrautar klárast eftir fimmtán ár, jarðgöng til Seyðisfjarðar frestast um áratug, engin fjárveiting er í Sundabraut og minnst áratugur er í að Miklabraut fari í stokk. Þessi tíðindi birtast í nýrri samgönguáætlun. 20. september 2018 19:45