Aron Einar gæti tekið eitt tímabil í handboltanum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. nóvember 2018 13:30 Aron Einar Gunnarsson er farinn að hugsa um framtíðina og ýmislegt kemur til greina. Vísir/Getty
Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði karlalandsliðsins í knattspyrnu, var í handboltanum á sínum yngri árum og hann gæti tekið eitt tímabil í Olís-deildinni eftir að hann kemur heim. Aron Einar nefnir þennan möguleika í hlaðvarpsviðtali við Dr. Football (Hjörvar Hafliðason) en þar fer Aron Einar yfir feril sinn og framtíð sína í boltanum. Arnór Þór Gunnarsson, eldri bróðir Arons, er fastamaður í íslenska handboltalandsliðinu og spilar sem atvinnumaður með Bergischer HC í Þýskalandi. „Það er nóg eftir af ferlinum en ég er samt alltaf eitthvað að pæla í því hvað ég geri eftir ferilinn. Ég er kominn með b-gráðu í þjálfun en það verður bara að koma í ljós hvort ég fari út í það,“ sagði Aron Einar Gunnarsson í viðtalinu við Hjörvar. „Hvort að ég fari hinum megin við línuna eins og Heiðar (Helguson) og geri eitthvað allt annað verður bara að koma í ljós. Ég hef alveg ástríðu fyrir þessu og vona að það verði einnig þá því mig langar að gefa af mér,“ sagði Aron Einar „Svo hugsa ég líka með mér, tek ég kannski bara eitt ár í handboltanum. Handboltinn er eitthvað sem ég hef saknað,“ sagði Aron Einar en væri ekkert mál fyrir hann að hoppa aftur inn í handboltann. „Ég geri mér alveg grein fyrir því að það myndi taka tíma. Ég veit að ég er ekki að fara að labba inn í efstu deild á Íslandi og þyrfti bara að taka mér tíma í að þjálfa mig í það ef ég færi þá leið,“ sagði Aron Einar og bætti við: „Ég veit það ekki en það blundar eitthvað í mér þarna,“ sagði Aron Einar en það má nálgast allt spjallið við Aron Einar með því að smella hér.
Enski boltinn Olís-deild karla Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport Fleiri fréttir Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Sjá meira