Skola burt sumrinu með vetrarsmelli Stefán Þór Hjartarson skrifar 26. október 2018 08:00 Sigurður og Sigríður senda frá sér sjóðheitt vetrarlag sem ætti að ylja í vetur. Fréttablaðið/Pjetur
Sigríður Thorlacius og Sigurður Guðmundsson bregða ekki út af vananum og halda sína árlegu sameiginlegu jólatónleika í ár – og gefa út lag af því tilefni. Sigurður segir að eins og vanalega sé ekki um eiginlegt jólalag að ræða heldur sé þetta frekar haust- og vetrarlag og kemur það skýrt fram í titli lagsins en það nefnist Vindar að hausti. Þau bregða sér alla leið til Brasilíu eftir laginu sem er róleg bossa nova ballaða. „Það veitti ekki af eftir þetta mikla svikasumar sem við fengum að spýta í smá sumarfíling svona rétt fyrir jólin. Við höfum alltaf reynt að leyfa lögunum að vera þannig að þau nýtist aðeins umfram jólin. Við erum að vinna með að henda þeim í spilun áður en desember gengur í garð. Jólalög fá enga spilun nema í desember þannig að það er gott að vera með vetrarvæn lög,“ segir Sigurður. Lagið nefnist á portúgölsku Águas de Março og um textann sá Birkir Blær Ingólfsson.Marsrigningarnar í Brasilíu skola burtu því sem á undan kemur, líkt og íslensku haustlægðirnar. Hér lenda nokkrir íbúar Sao Paulo illa í því.„Þetta er upphaflega brasilískt lag. Í Brasilíu, og á suðurhveli jarðar, eru hreinsandi rigningar á allt öðrum tíma en hér. Það er talað um á frummálinu Águas de Março – það eru mars-rigningarnar sem skola burtu öllu sem á undan er gengið. Okkar íslenski samnefnari er þá væntanlega haustlægðirnar – þær feykja sumrinu út á haf. Þetta er svona haust/vetrarlag með sumarlegu ívafi.“ Mörg íslensk jólalög eru upprunalega ítalskir poppsmellir og segir Sigurður að þetta sé svipað nema að þau hafi bara beygt í hina áttina. Jólatónleikar Siggu og Sigga verða í Eldborg þann 17. desember og svo eftir það á Græna hattinum á Akureyri. GÓSS, sem eru þau tvö auk Guðmundar Óskars, verða í Iðnó 31. október og Skyrgerðinni Hveragerði 16. nóvember. Fyrir utan það er Siggi í Ellý í Borgarleikhúsinu auk þess sem Hjálmar snúa aftur á skemmtistaðinn Húrra í kvöld. Já, og Baggalútur fær Sigurð svo til liðs við sig um jólin. Þetta eru flóknir tímar í lífi tónlistarmannsins „Þetta er svolítið eins og að skella sér á vertíð eða á sjó. Maður er lítið heima, mikið að vinna en lyktar mögulega aðeins betur en úti á sjó,“ segir Sigurður hlæjandi.
Birtist í Fréttablaðinu Tónlist Mest lesið „Eins nakin og ég kemst upp með“ Tíska og hönnun Fjölmenni í Tene-afmæli Gurrýjar en enga Sólrúnu Diego að sjá Lífið Rugluðust á Laufeyju og „Megan“ Tónlist „Minnstur aldursmunur á okkur af öllum pörum“ Lífið Hús Björns og Hafdísar það dýrasta sem hefur verið selt Lífið Spá Ísrael sigri marga mánuði fram í tímann Lífið „Litlu kóngarnir“ sjaldan verið heitari Lífið Halda tólf tíma löglegt reif í vöruskemmu í Grafarvogi Lífið Stóru spurningunni um dularfullt slys enn ósvarað Lífið Leikirnir sem beðið er eftir Leikjavísir Fleiri fréttir Rugluðust á Laufeyju og „Megan“ „Ég mun aldrei stíga á svið í Bandaríkjunum aftur“ Nýtt lag frá Halla Reynis sex árum eftir andlát hans Vinsælustu lögin á Bylgjunni 2025 Heitustu lögin á FM árið 2025 Afþakka miðann til Vínar vinni þeir undankeppnina Prikið vekur athygli út fyrir landsteinana Abba skilar 350 milljörðum í kassann Ísraelar fá að vera með í Eurovision Halda aðra tónleika á Íslandi fyrir þá sem misstu af Allt alltaf alls staðar í allra besta lagi Miley Cyrus trúlofuð Þau þykja skara fram úr í íslenskri tónlist Þau hlutu verðlaun Dags íslenskrar tónlistar Bein útsending: Hver hlýtur viðurkenningu á Degi íslenskrar tónlistar? Sjá meira