Frá hæsta fjalli niður í dýpstu djúp Benedikt Bóas skrifar 27. október 2018 09:00 Baltasar Kormákur við tökur á Everest.
MGM-kvikmyndaverið eignaðist handritið árið 2016 en í myndinni á að segja sögu geimfara sem er ráðinn til að sigla kafbát á dýpsta svæði úthafanna en þegar hann nálgast ákvörðunarstaðinn fara að gerast yfirnáttúrulegir hlutir. Baltasar er enginn nýgræðingur þegar kemur að því að gera myndir á sjó en hefur verið minna í því að kvikmynda neðansjávar. Hann hefur gert Djúpið, Adrift og næsta verkefni hans tengist einmitt sjó en það er myndin Arctic 30 sem hann greindi frá í Spjallþætti Loga Bergmanns.Marilyn Monroe.Arctic 30 segir frá áhöfn skipsins Arctic Sunrise, sem var í eigu náttúruverndarsamtakanna Greenpeace, og 30 manna áhöfn þess sem mótmælti olíuvinnslu á norðurslóðum með því að klifra upp eftir olíuborpalli rússneska fyrirtækisins Gazprom. Rússnesk yfirvöld sökuðu áhöfnina um sjóræningjastarfsemi en skipverjunum var svo sleppt í Rússlandi í nóvember árið 2013. Baltasar er á samningi hjá WME sem var stofnað árið 1898. Skömmu síðar skrifaði Charlie Chaplin undir samning við WME en 1955 gengu tvær ofurstjörnur í lið við skrifstofuna, Marilyn Monroe og Elvis Presley. Síðan þá hefur skrifstofan séð um mál Hollywood-stórstjarna. Bradley Cooper valdi að gera sína eigin mynd í staðinn fyrir Deeper.Gerði frekar A Star is Born Bradley Cooper var orðaður við hlutverk í myndinni en tímasetningin hentaði ekki. Hann var nefnilega með sína eigin mynd í huga, A star is born, þar sem hann og Lady Gaga fara á kostum. Hann sagði sig því frá verkefninu til að gera sína eigin mynd, ákvörðun sem hann sér væntanlega ekki eftir enda hefur myndin og ekki síður tónlistin fengið stórkostlega dóma of flestir spá Cooper sjálfum Óskarnum fyrir hlutverk sitt.Ísraelska ofurkonan Gal Gadot var hugsuð til að fara með aðalhlutverk í Deeper.Með leikstjóra fór ofurkonan Ungverski leikstjórinn Kornél Mundruczó var fyrst sagður ætla að leikstýra myndinni sem er sögð vera blanda af myndunum Birdman, The Shining og 2001 meðal annars. Hann vildi að Gal Gadot sem lék Ofurkonuna í samnefndri mynd myndi leika aðalkvenhlutverkið. Nú þegar Mundruczó er horfinn á braut segja erlendir miðlar að samningur við Gadot sé einnig dottinn upp fyrir. Lítið er vitað um myndina annað en að handritshöfundur er Max Landis, sem á að baki handrit að myndunum Bright, American Ultra og Chronicle og þeir David S. Goyer (Krypton) og Kevin Turren (Assassination Nation) framleiða hana. Hvort Hollywood-slúðrið reynist svo rétt mun tíminn leiða í ljós.
Birtist í Fréttablaðinu Bíó og sjónvarp Tengdar fréttir Baltasar sagður í viðræðum um að leikstýra yfirnáttúrulegri köfunarmynd Bradley Cooper hafði verið orðaður við hlutverk í myndinni ásamt Gal Gadot. 26. október 2018 09:53 Shailene Woodley: Fólk og náttúra ekki í baráttu fyrir tilveru sinni á Íslandi Segist aldrei hafa upplifað jafn mikla kyrrð og á hálendinu og elskaði að leika í mynd Baltasars Kormáks. 4. október 2018 15:16 Baltasar um næsta verkefni: „Hitnaði að innan þegar ég las handritið“ Gerir mynd um áhöfn Greenpeace-skipsins Arctic Sunrise sem var handtekin af Rússum árið 2013. 15. október 2018 19:54 Mest lesið Allt ætlaði um koll að keyra í Borgarleikhúsinu Lífið Tók sex ólíka stera fyrir hjartastoppið: „Þannig ég segi nei við sterum“ Lífið Segir Candy hafa séð að faðir hans væri „skrímsli“ á undan öðrum Lífið Fréttatía vikunnar: Friðlýsing, frumsýning og handtaka Lífið Glæsibústaðir yfir hundrað milljónum Lífið Balta bregst bogalistin Gagnrýni Glæsihöll Livar og Sverris á Arnarnesi til sölu Lífið Hætti að þurfa að ryksuga upp hárin eftir hverja sturtu Lífið samstarf Gamla TR-húsinu umbreytt í Hlemm.haus: „Augljóst að þörfin var gríðarleg“ Menning Eldgos og elskhugar á frumsýningu Eldanna Lífið Fleiri fréttir Sophie Turner verður Lara Croft Strax búinn að tilkynna Ofurmenni morgundagsins Kim Novak heiðursgestur RIFF Barðist við tárin yfir fimmtán mínútna lófataki Langþráður draumur að halda hinsegin kvikmyndahátíð ACT4 í samstarf við alþjóðlegt kvikmyndaver Saga og Steindi í nýrri gamanþáttaröð Ástin sem eftir er framlag Íslands til Óskarsverðlauna Sopranos-stjarna látin Frumsýning á Vísi: Eldgos, hamfarir og ást í kitlu fyrir Eldana Woody Allen aðalnúmerið hjá Rússum Hlynur Pálmason með þrennu í San Sebastian Sælkerabíó á RIFF: Sjónræn matarveisla á Plöntunni og smakkbíó á Ramen Momo Sannfærði Balta um að snúa aftur Fróði og Gandálfur snúa aftur í leitinni að Gollri Terence Stamp látinn Auglýsa eftir innsendingum til íslensku sjónvarpsverðlaunanna Nýr Rambo fundinn Óvænt nöfn á könnu Köngulóarmannsins Sjá meira
Baltasar sagður í viðræðum um að leikstýra yfirnáttúrulegri köfunarmynd Bradley Cooper hafði verið orðaður við hlutverk í myndinni ásamt Gal Gadot. 26. október 2018 09:53
Shailene Woodley: Fólk og náttúra ekki í baráttu fyrir tilveru sinni á Íslandi Segist aldrei hafa upplifað jafn mikla kyrrð og á hálendinu og elskaði að leika í mynd Baltasars Kormáks. 4. október 2018 15:16
Baltasar um næsta verkefni: „Hitnaði að innan þegar ég las handritið“ Gerir mynd um áhöfn Greenpeace-skipsins Arctic Sunrise sem var handtekin af Rússum árið 2013. 15. október 2018 19:54