Zlatan stendur þétt við bakið á Mourinho Henry Birgir Gunnarsson skrifar 18. október 2018 13:00 Félagar. Zlatan og Jose náðu vel saman. vísir/getty
Svíinn Zlatan Ibrahimovic stendur með sínum gamla stjóra, Jose Mourinho, en hans staða hjá Man. Utd er í mikilli óvissu. Byrjun Man. Utd á tímabilinu er jöfnun á versta árangri félagsins í úrvalsdeildinni. Zlatan hefur sagt Mourinho að bera höfuðið hátt og standa með sínum verkum þó svo hann verði fyrir persónulegum árásum. „Það eru allir að gagnrýna Mourinho og ég held að það sé ekki út af úrslitunum heldur hvernig karakter hann sé,“ sagði Zlatan sem er ekki síður sérstakur karakter. „Við eigum margt sameiginlegt. Erum með mikið sjálfstraust, trúum á ákveðna hluti og segjum hluti á okkar hátt.“ Mourinho hefur átt í stríði við blaðamenn í vetur og gengið á ýsmu í þeim efnum. Rifrildi, rokið út af fundi og breytt fundartímum á síðustu stundu til þess að forðast blaðamenn. „Skuldinni er skellt á menn eins og okkur. Við fáum meiri gagnrýni en aðrir þegar gefur á bátinn. Þegar við vinnum er ánægjan meiri hjá okkur en þeim sem halda að þeir séu fullkomnir og geri aldrei neitt vitlaust. Þeir vilja ekki lenda í vandræðum með fjölmiðla og gera því aldrei neitt af sér,“ sagði Zlatan og bætti við. „Það eru ekki við. Við þorum að vera við sjálfir og hættum því ekkert. Sumir blaðamenn eru síðan of persónulegir og sumir láta illa af öfund. Mourinho þarf að standa með sjálfum sér og verja það sem hann stendur fyrir. Hann komst þangað sem hann er af því hann þorði að gera hlutina á sinn hátt. Hann breytti sér ekki fyrir neinn. Ekki frekar en ég. Stóra vandamálið í bransanum er fólkið sem heldur að það sé fullkomið.“
Enski boltinn Mest lesið Solskjær ekki lengur líklegastur Enski boltinn Alfreð fagnaði aftur gegn Degi fyrir EM Handbolti Miðvarðaæði Liverpool Enski boltinn Sunnlendingar sóttu síðasta farseðilinn eftir mikla spennu Körfubolti Magnaður McTominay til bjargar eftir að Conte brjálaðist Fótbolti Bradley frá út tímabilið | Fer Liverpool á markaðinn? Enski boltinn Uppgjörið: Frakkland - Ísland 31-29 | Jákvæð teikn þrátt fyrir tap Handbolti Kemi tilþrifin: „Ég skoraði aðeins meira og er myndarlegri“ Körfubolti Pavel hjálpar Grindvíkingum Körfubolti Veik von Man. Utd um titil úr sögunni Enski boltinn Fleiri fréttir Solskjær ekki lengur líklegastur Fletcher segir leikmenn Man. Utd viðkvæma Veik von Man. Utd um titil úr sögunni Loksins unnu Hamrarnir eftir framlengdan leik Martinelli og hornspyrnur hetjurnar Bradley frá út tímabilið | Fer Liverpool á markaðinn? Viðsnúningur hjá Leeds sem fer áfram Miðvarðaæði Liverpool Minntust nýlátins félaga og foreldrarnir mættu í klefann Nýr stjóri Chelsea fékk óskabyrjun Draumur Villa lifir en eru dagar Franks taldir? Draumaprinsinn Benoný sendi aðdáendum kveðju Semenyo skoraði eitt af tíu og Hákon hélt hreinu Newcastle áfram eftir bráðabana og mikla dramatík Varði öll þrjú vítin og Sunderland áfram Stoltur af litla bróður eftir sögulegt afrek Benoný tryggði sigurinn á ögurstundu Utandeildarlið henti meisturunum úr keppni Dyche æfur eftir tapið Utan vallar: Dauði knattspyrnustjórans Solskjær hittir forráðamenn Man. Utd Hollywood-endir þegar Forest féll úr bikarnum Tottenham fær brasilískan bakvörð Dómarar lyfjaprófaðir vegna kókaínneyslu Coote Saka skrifar undir nýjan langtímasamning við Arsenal „Við erum aðhlátursefni,“ segja stuðningsmenn Man Utd Bað Liverpool-leikmanninn afsökunar Semenyo tekur treyjunúmer Yaya Touré Svona var stórleikurinn: Átti Liverpool að fá víti? „Gabi vildi ekki gera honum neitt slæmt“ Sjá meira