Hnignun sem hófst eftir að farseðilinn á HM var tryggður Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 13. september 2018 07:30 Síðan Ísland tryggði sér sæti á HM í Rússlandi með 2-0 sigri á Kósóvó í október 2017 hefur lítið gengið hjá liðinu. Vísir/Vilhelm
Stór töp og leikmenn sem mæta ekki í viðtöl. Síðustu dagar hjá íslenska karlalandsliðinu hafa því miður minnt á gamla og öllu leiðinlegri tíma í sögu þess. Ísland tapaði 0-3 fyrir Belgíu í öðrum leik sínum í Þjóðadeildinni í fyrradag. Frammistaðan var mun skárri en á laugardaginn þegar Svisslendingar flengdu Íslendinga og unnu 6-0 sigur í St. Gallen. Fyrstu leikirnir undir stjórn nýja landsliðsþjálfarans, Eriks Hamrén, fóru ansi illa og eftir úrslitin gegn Sviss og Belgíu er Ísland svo gott sem fallið niður í B-deild Þjóðadeildarinnar. Íslenska landsliðið byrjaði þó ekki að gefa eftir í síðustu tveimur leikjum. Síðan Ísland tryggði sér sæti á HM í Rússlandi með 2-0 sigri á Kósóvó í október 2017 hefur lítið gengið hjá liðinu. Frá þessari risastóru stund í fótboltasögunni hefur Ísland leikið 13 leiki, unnið tvo, gert þrjú jafntefli og tapað átta leikjum. Einu sigrarnir komu í hálfgerðum B-landsleikjum gegn Indónesíu í janúar. Annar leikurinn var gegn úrvalsliði sem almenningur í Indónesíu valdi í kosningu á netinu svo andstæðingurinn var ekki merkilegur. Fyrir utan þessa tvo leiki í Indónesíu hefur Ísland ekki unnið leik síðan HM-sætið var í höfn. Sterkasta lið Íslands hefur ekki unnið leik í tæpt ár. Næstu þrír leikir eru gegn Frakklandi, Sviss og Belgíu svo það er hætt við því að biðin eftir næsta sigri gæti orðið enn lengri. Ísland hefur nú leikið níu leiki í röð án þess að vinna og fyrir utan fyrri leikinn gegn Indónesíu hefur íslenska liðið ekki haldið hreinu síðan það tryggði sér farseðilinn til Rússlands. Í síðustu 13 leikjum hefur íslenska liðið fengið á sig 29 mörk, þar af níu í síðustu tveimur leikjum. Varnarleikurinn er ekki nálægt því jafn sterkur og hann var. Síðustu ár, eða frá því uppgangur íslenska liðsins hófst, hefur árangurinn í vináttulandsleikjum aldrei verið góður. En menn hafa verið klárir í keppnisleikina og náð mörgum frábærum úrslitum. Nú eru hins vegar komnir fimm keppnisleikir í röð án sigurs, þótt andstæðingarnir í þeim hafi verið vissulega sterkir. Frammistaðan á HM var fín, fyrir utan seinni hálfleikinn gegn Nígeríu, en uppskeran lítil. Svo kom skellurinn í St. Gallen. Það var viðbúið að það gæti komið bakslag eftir blómaskeið síðustu ára en magalendingin hefur verið ansi harkaleg. Eftir HM hætti Heimir Hallgrímsson og við tók Hamrén. Svíinn er ekki í öfundsverðri stöðu. Liðið sem hann tók við er líklega búið að toppa og öfugt við landa sinn, Lars Lagerbäck, fékk hann enga vináttulandsleiki heldur stökk beint út í djúpu laugina, í leiki gegn þremur af átta bestu liðum heims samkvæmt styrkleikalista FIFA. Þá hafa meiðsli lykilmanna ekkert hjálpað til. Í leiknum gegn Sviss vantaði til að mynda Aron Einar Gunnarsson, Jóhann Berg Guðmundsson, Emil Hallfreðsson og Alfreð Finnbogason. Leikmenn úr ensku, ítölsku og þýsku úrvalsdeildinni sem íslenska liðið má einfaldlega ekki við því að missa út. Þá er ekki hægt að horfa framhjá því að íslenska liðið er orðið aldrað. Í byrjunarliðinu gegn Belgum voru sex leikmenn 30 ára og eldri og þeir yngstu 25 ára. Meðalaldur byrjunarliðsins var 29,8 ár. Aldur á ekki að vera fyrirstaða ef leikmenn halda áfram að standa sig en það verður áhugavert að sjá hvort Hamrén nýti þá leiki sem Ísland á eftir á árinu til að gefa yngri leikmönnum tækifæri með það fyrir augum að gera þá tilbúna fyrir undankeppni EM á næsta ári.
Birtist í Fréttablaðinu Íslenski boltinn Mest lesið Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Enski boltinn Elías og félagar flugu áfram Fótbolti Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Fótbolti Reynir Þór með fína frammistöðu í tapi Handbolti Palacios til Ipswich Enski boltinn Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Handbolti Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Sport Róbert Frosti og Daníel Tristan á skotskónum Fótbolti Kristall skoraði þegar Brann komst áfram Fótbolti Rodri kom inn af bekknum í sigurleik Fótbolti Fleiri fréttir Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Elías og félagar flugu áfram Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Kristall skoraði þegar Brann komst áfram Róbert Frosti og Daníel Tristan á skotskónum Rodri kom inn af bekknum í sigurleik Fyrstir til að fara alla leið án þess að vinna leik Dregið í Meistaradeild: Hákon mætir Arsenal og Bayern Goretzka mættur til Villa UEFA undirbýr kæru á hendur Infantino Freyr valinn bestur: „Í byrjun mánaðarins var ég ekki með vinnu“ Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Zirkzee til Fiorentina: Samkeppnin eykst enn frekar hjá Alberti Felur samkynhneigðina og fer til félags í Sádi-Arabíu Snýr aftur til uppeldisfélagsins frítt „Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Minnst 447 milljónir í boði fyrir Víkinga í kvöld Sjáðu Breiðablik fara á kostum og valta yfir andstæðing sinn í Evrópu Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Víkingar með bakið upp við vegg Nicolas Jackson á leið til Aston Villa „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum „Við vorum allar alveg með þetta í dag“ Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Sjá meira