Saka rekstraraðila brúarinnar um vanrækslu Samúel Karl Ólason skrifar 15. ágúst 2018 10:59 Tala látinna hefur hækkað upp í 38 og er enn leitað að týndu fólki í braki brúarinnar. Vísir/AP
Ríkisstjórn Ítalíu ætlar að rifta samningi sínum við fyrirtækið Autostrade, sem meðal annars hefur séð um rekstur brúarinnar sem hrundi í Genúa í gær. Þar að auki stendur til að sekta fyrirtækið um 150 milljónir evra. Aðstoðarforsætisráðherra landsins segir að hægt hefði verið að komast hjá slysinu og sakaði Autostrade um að viðhalda brúnni ekki. Tala látinna hefur hækkað upp í 38 og er enn leitað að týndu fólki í braki brúarinnar. Um 200 metra langur hluti hennar hrundi úr tæplega 50 metra hæð. Á fjórða tug bíla voru á brúnni.Búist er við því að leitin muni taka nokkra daga.Sjá einnig: Leita enn að fólki í brakinu í GenúaBrúin sem um ræðir var byggð á sjöunda áratugi síðustu aldar. Hins vegar voru gerðar endurbætur á henni árið 2016. Þá stóð yfir vinna við að styrkja brúna þegar hún hrundi. Brúin hrundi á hús, vegi og lestarteina. Rúmlega 400 manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín af vegna áhyggja um að frekari hlutar brúarinnar muni hrynja.Samkvæmt umfjöllun BBC hafa margir haft áhyggjur af ástandi brúarinnar á undanförnum árum. Fimm brýr hafa hrunið á Ítalíu á síðustu fimm árum.Árið 2016 sagði byggingarfræðingur að mistök hefðu verið gerð við smíði hennar. Autosrade mun hafa viðurkennt árið 2011 að ástand brúarinnar hefði versnað vegna mikillar umferðar. Þá var ástand brúarinnar tekið fyrir á fundi borgarráðs Genúa í desember 2012. Þá sagði einn embættismaður að brúin myndi hrynja á næstu tíu árum.
Mest lesið „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Erlent Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu Innlent Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Innlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent Fleiri fréttir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Leita enn að Renoir-þjófunum Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Sjá meira