Sonur Sævars Ciesielski segir Jón Steinar vanhæfan í Guðmundar- og Geirfinnsmálum Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 20. júlí 2018 13:30 Sævar Cieselski í Hæstarétti árið 1980. bjarnleifur bjarnleifsson
Hafþór Sævarsson, sonur Sævars Ciesielski sem dæmdur var í fangelsi í Guðmundar- og Geirfinnsmálunum, segir að Jón Steinar Gunnlaugsson, hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi hæstaréttardómari, sé gífurlega óheppilegur, og hreinlega vanhæfur, til að gæta hagsmuna „fórnarlamba í Guðmundar- og Geirfinnsmálunum.“ Þetta kemur fram í aðsendri grein sem Hafþór birtir á Vísi í dag en þar rekur hann aðkomu Jóns Steinars, sem nú er skipaður verjandi Kristjáns Viðars Viðarssonar, eins sakborninga, að því að Ólafur Jóhannesson, þáverandi formaður Framsóknarflokksins og dómsmálaráðherra, var stefnt fyrir dóm vegna ómerkingar þeirra orða að útgefendur Vísis tilheyrðu mafíu eða glæpahring. Í greininni, sem ber yfirskriftina „Innmúrað hirðfífl – því miður,“ segir Hafþór að það hafi verið Jón Steinar sem afhenti Ólafi kæru útgefenda Vísis á hendur honum en Hafþór segir að þannig hafi lögmaðurinn verið „ekkert annað en innvígður sendill þeirra afla sem orsökuðu framgang Guðmundar- og Geirfinnsmála. Því hlýtur að teljast sorglegt að Jón Steinar hafi verið skipaður verjandi eins sakbornings í endurupptöku þessara mála fyrir Hæstarétti.“ Ólafur var dæmdur fyrir meiðyrði og segir Hafþór að þannig hafi hann orðið sá fyrsti til að hljóta dóm í tengslum við Guðmundar- og Geirfinnsmálin: „Orð Ólafs um Vísismafíu voru dæmd ómerk og hann svívirtur. Jón Steinar var þar í hlutverki sendiboða og böðuls. Af einhverjum ástæðum virðist Jón Steinar hafa takmarkaðan áhuga á að halda sögu þessari á lofti, í raun þvert á móti,“ segir Hafþór í grein sinni.Hafþór Sævarsson er sonur Sævars Ciesielski.Segir Jón Steinar ekki þora að nefna Ólaf Jóhannesson á nafn í greinargerð sinni Hann setur þetta síðan í samhengi við rekstur málanna nú sem hafa verið endurupptekin. Málflutningur mun fara fram í Hæstarétti í september. Segir Hafþór að í greinargerð sinni til Hæstaréttar fyrir skjólstæðing sinn Kristján Viðar tíni Jón Steinar saman atriði sem hafi „þann eina tilgang að skella skuldinni á Ólaf Jóhannesson.“ „Að það hafi verið dómsmálaráðherrann sem var ástæðan fyrir komu þýska „lögreglumannsins“ og átti sökina á öllum þessum þrýstingi sem rannsakendur og dómarar urðu fyrir. Hið rétta er að Karl Schütz hefði aldrei getað starfað hér á landi eins og hann gerði nema með fullu samþykki sakadóms. Sakadómur fór með rannsókn málsins, lagalega og efnislega með rannsakendur og dómara undir sínu embætti og sinni stjórn; ráðherrann gæti ekki hafa skipt sér af því þó hann hefði viljað. Halldór Þorbjörnsson yfirsakadómari og Ólafur Jóhannesson ráðherra sömdu um Karl Schütz eftir að valdaránstilraunin mistókst að hluta til - Ólafur sagði ekki af sér en í staðinn hótaði hann aldrei framar, hvorki Bandaríkjaforseta sjálfum (eins og Ólafur gerði raunar við Nixon sumarið 1973 á Kjarvalsstöðum) né öðrum svo vitað sé til, að koma herstöðinni burt. Ólafur náði að verjast og þrýsta á samkomulag sem Halldór Þorbjörnsson yfirsakadómari samþykkti. Frá fundi þeirra félaga í mars árið 1976, er greint frá í Dagblaðinu þann 13. júlí sama ár. Hvernig Ólafur fór eiginlega að því að þrýsta þetta samkomulag í gegn verður útskýrt síðar. En orsökin voru hagsmunir „vestrænnar samvinnu“ í varnarmálum og viðskiptum - á pólitíska sviðinu var birtingarmyndin „Vísismafían.“ Þá var ástæðan þrátefli sem Ólafur – sem öll spjót beindust gegn - náði með naumindum í nauðvörn að skapa sér. Jón Steinar þorir ekki að nefna Ólaf á nafn í greinargerð sinni og telst það helst Jóni til tekna þar sem slíkt gefur þó allavega vísbendingu um að Jón hafi það ekki í sér að hvítþvo sig með nafni Ólafs Jóhannessonar - öðruvísi en með að geta hans einungis sem „dómsmálaráðherra,““ segir í grein Hafþórs.„Jón leggur til að sérstakur fundur Hæstaréttar og verjanda mætti skipuleggja slíka þöggun!“ Þá gerir hann einnig að umtalsefni beiðni til Hæstaréttar sem hann segir Jón Steinar leggja fram í greinargerð sinni um að halda fund með verjendum „til að leggja á ráðin fyrir munnlegan málflutning endurupptökunnar nú í haust. Og hverju er Jón Steinar svona gríðarlega umhugað um, í það minnsta að nafninu til, fyrir hagsmuni skjólstæðings síns, að hann þurfi að leggja á ráðin með sjálfum erkifjanda sínum, Hæstarétti? Nú, hann tekur fram að meðal annars þurfi að gæta að því að ekki séu óþarfa „tvítekningar í málflutningi“ í vörnum sakborninga um „sambærileg efnisatriði.“ Það er ekkert annað. Jón leggur til að sérstakur fundur Hæstaréttar og verjanda mætti skipuleggja slíka þöggun! Það fer hins vegar ekkert á milli mála að skjólstæðingur hans græðir sem mest á öllum tvítekningum á „sambærilegum efnisatriðum,“ að málið sé ekki þaggað niður heldur það gaumgæfilega rakið frá öllum hliðum. Jafnvel þó það allt saman væri svo þrítekið, myndi skjólstæðingur hans aðeins hagnast á því. Finnst fólki trúverðugt að Jón sé að gæta hagsmuna skjólstæðings síns með því að reyna að forðast „tvítekningar“ í málflutningi um „sambærileg efnisatriði?“ Hvaðan kemur þetta? Hvernig í ósköpunum á það að þjóna hagsmunum skjólstæðings hans? Satt best að segja virðist þetta eiga fullt erindi á borð stjórnar Lögmannafélags Íslands,“ segir Hafþór í grein sinni sem hann lýkur svo á þessum orðum: „Getur það hugsast að Jón Steinar sé einfaldlega að freistast til þess, í nafni þess að gæta hagsmuna fyrir fórnarlamb í Guðmundar- og Geirfinnsmálum, að gæta hagsmuna þeirrar samkundu sem hann sjálfur tengist? Já, það liggur enginn vafi á því, því miður. Jón Steinar er ekki einungis í hlutverki sendiboða, hann tekur meðvitaðan þátt í afvegaleiðingunni. Þetta gerir hann berskjaldaður fyrir afhjúpun frá hverjum sem er og hvenær sem er. Hver mætir sjálfviljugur í Hæstarétt Íslands, í endurupptöku Guðmundar- og Geirfinnsmála hvorki meira né minna, með bundið fyrir augun, með snöruna um hálsinn og með bros á vör? Sagan af hamingjusama hirðfíflinu verður ekki lengri að þessu sinni.“
Guðmundar- og Geirfinnsmálin Tengdar fréttir Óáreiðanlegar játningar og Íslandsmet í einangrunarvist 29. apríl 2018 10:00 Ekki lengur dóttir morðingja Kristín Anna Tryggvadóttir, dóttir Tryggva Rúnars Leifssonar sem var dæmdur fyrir að hafa valdið dauða Guðmundar Einarssonar, segir kröfu setts ríkissaksóknara um sýknu sakborninganna eins og sýknu fyrir hennar eigið líf. 21. febrúar 2018 19:30 Saksóknari vill að sakborningar í Guðmundar- og Geirfinnsmáli verði sýknaðir Rök setts ríkissaksóknara fyrir sýknukröfum byggjast á röksemdum endurupptökunefndar. 21. febrúar 2018 15:14 Mest lesið Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut og tveir fluttir á slysadeild Innlent Borgarstjóri fór með rangt mál Innlent Umfangsmikil lögregluaðgerð við Glerárgötu á Akureyri Innlent Eigum eftir að sjá hvort Guðbrandur bæti upp fyrir hegðun sína Innlent Krafa um að Margrét Löf verði gerð arflaus fer fyrir Landsrétt Innlent „Í mínum huga eru þetta klárar ærumeiðingar“ Innlent Hófu niðurrif á félagsheimilinu í leyfisleysi: „Skaðinn er skeður“ Innlent „Lauslát mella“ hafi verið mildasta lýsingin á dómaranum Innlent Öryrkjar eru með hærri laun en eldri borgarar Innlent Vill „nánast loka alfarið“ á útlendinga utan Evrópu Innlent Fleiri fréttir Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut og tveir fluttir á slysadeild Eigum eftir að sjá hvort Guðbrandur bæti upp fyrir hegðun sína Umfangsmikil lögregluaðgerð við Glerárgötu á Akureyri Öryrkjar eru með hærri laun en eldri borgarar Borgarstjóri fór með rangt mál Gagnrýnin hugsun skipti máli Krafa um að Margrét Löf verði gerð arflaus fer fyrir Landsrétt Hófu niðurrif á félagsheimilinu í leyfisleysi: „Skaðinn er skeður“ Fjórir slást um oddvitasæti Viðreisnar Afsögn þingmanns, hótanir Trumps og í beinni frá Svíþjóð Mun hærri dánartíðni og meiri örorka hjá fyrrum vöggustofubörnum „Í mínum huga eru þetta klárar ærumeiðingar“ Vilja Laugardalshöll líkt og þeim var lofað Kviknaði í Svarta sauðnum í Þorlákshöfn Taldi ekki sérstaka nauðsyn á að hneppa Helga Bjart í varðhald Barbara sakar Sigríði um einelti og Valtý um gagnaleka „Vonbrigði“ Vill „nánast loka alfarið“ á útlendinga utan Evrópu Mjög óalgengt að þingmenn segi af sér Mikilvægt að vanda sig og beita varúð Telur Pétur hafa svarað ágætlega fyrir lóðaviðskipti Sjaldgæf afsögn þingmanns og leikskóla lokað að óbreyttu Eftirmaður Guðbrands í sjokki en klár í slaginn „Lauslát mella“ hafi verið mildasta lýsingin á dómaranum Einn af hverjum fjórum stjórnendum notar gervigreind daglega Telur viðbrögð Guðbrands rétt og skynsamleg Bærinn fær 70 milljónir fyrir gamla Landbankahúsið sem fær nýtt hlutverk Kolbeinn Tumi tekur við af Erlu Björgu Þingið kallar áfram eftir hugmyndum frá almenningi Manneklan mest hjá skólum og frístundaheimilum sem tilheyra Austurmiðstöð Sjá meira
Ekki lengur dóttir morðingja Kristín Anna Tryggvadóttir, dóttir Tryggva Rúnars Leifssonar sem var dæmdur fyrir að hafa valdið dauða Guðmundar Einarssonar, segir kröfu setts ríkissaksóknara um sýknu sakborninganna eins og sýknu fyrir hennar eigið líf. 21. febrúar 2018 19:30
Saksóknari vill að sakborningar í Guðmundar- og Geirfinnsmáli verði sýknaðir Rök setts ríkissaksóknara fyrir sýknukröfum byggjast á röksemdum endurupptökunefndar. 21. febrúar 2018 15:14