Forsaga málsins er sú að Blair var á heimleið ásamt kærasta sínum, Houston Hardaway, með flugi í Bandaríkjunum. Þar varð ung kona við bón hennar um að skipta um sæti svo Blair gæti setið með kærastanum. Ungur maður settist við hlið konunnar og fylgdust Blair og Hardaway náið með samskiptum fólksins – sem vöktu heimsathygli.
Jákvæðni einkenndi viðbrögð netverja í fyrstu en fljótlega fóru að renna á þá tvær grímur. Þegar í ljós kom að unga konan, sem ekki hafði gefið leyfi fyrir því að nafn hennar yrði birt, hafði neyðst til að loka Instagram-reikningi sínum vegna áreitni fór að bera á gagnrýni í garð Blair og Hardway, sem einnig þóttu hafa nýtt sér skyndilega frægðina á ósmekklegan hátt.
Sjá einnig: Háloftaástarsaga í beinni orðin að deilum um persónuvernd og kynbundna áreitni
Því hefur einnig verið haldið fram að með því að birta myndir af fólkinu og brot úr samræðum þess hafi parið brotið á friðhelgi einkalífsins og opnað fyrir áreitni gegn konunni.
Blair virðist nú hafa séð að sér en hún birti afsökunarbeiðni á Twitter-reikningi sínum í vikunni.
„Ég vildi að ég gæti komið skömminni sem ég finn vegna gjörða minna til skila en mér finnst tilfinningar mínar ekki viðeigandi á þessum tímapunkti,“ skrifaði Blair.
Hún beindi svo orðum sínum til konunnar, Helen, og baðst afsökunar á því að hafa notfært sér „fallegt og töfrandi augnablik“ milli hennar og unga mannsins, Euan Holden, á samfélagsmiðlum. Afsökunarbeiðni Blair má sjá í heild hér að neðan.
— Rosey Blair (@roseybeeme) July 10, 2018