Fékk bíl að gjöf eftir langa göngu í nýja vinnu Samúel Karl Ólason skrifar 17. júlí 2018 21:45 Walter Carr og Luke Marklin.
Framkvæmdastjóri fyrirtækisins Bellhops í Bandaríkjunum ákvað að gefa nýjum starfsmanni sínum bíl eftir að hann gekk 32 kílómetra til að mæta í vinnuna á fyrsta degi sínum. Bíll Walter Carr bilaði degi áður en hann átti að mæta í nýja vinnu hjá Bellhops í Alabama og í stað þess að gefast upp ákvað hann að ganga í vinnuna, þrátt fyrir að gangan væri mjög löng. Carr var búinn að ganga 32 kílómetra þegar lögregluþjónn sá hann og ræddi við hann. Lögregluþjóninum fannst saga Carr góð og bauð honum upp á morgunverð. Eftir það keyrði hann honum í vinnuna. Jenny Hayden Lamey skrifaði á Facebook í gær að hún og eiginmaður hefðu átt von á hjálp flutningsmanna Bellhop á laugardaginn um klukkan átta um morguninn. Dyrabjallan hafi hins vegar verið hringt um klukkan hálf sjö og þar hafi staðið lögregluþjónn. Eftir að þau hjón heyrðu sögu Carr buðu þau honum að koma inn og hvíla sig þar til samstarfsmenn hans mættu einnig til vinnu. Hann bauðst hins vegar til þess að hefja störf strax og gerði hann það ásamt eiginmanni Jenny, Chris.Færslu Jenny má sjá hér að neðan. Samkvæmt umfjöllun BBC stefnir Carr á það að útskrifast úr háskóla í desember og vonast hann til þess að gangast til liðs við landgöngulið Bandaríkjanna. Hann segist hafa átt erfitt með að finna vinnu og Bellhops hafi verið fyrsta fyrirtækið um langt skeið sem hafi veitt honum tækifæri. „Ég vildi sýna þeim að ég hefði það sem þarf. Ég sagðist ætla að klára verkið sama hvað.“ Bellhops birti myndband á twitter í dag þar sem Luke Marklin, framkvæmdastjóri fyrirtækisins hitti Carr og ræddi við hann. Myndbandið endar á því að Carr fær bíl að gjöf.We've all seen the amazing story shared by Jenny about one of our bellhops, Walter Carr, but many have asked if we have any video from the moment CEO @LukeMarklin thanked Walter for the perseverance he demonstrated on his first day w/ @BellhopsMoving#TheWorldNeedsMoreWalterspic.twitter.com/mXrvI2JQoP — Bellhops (@BellhopsMoving) July 17, 2018Proud to have encountered this young man. He certainly made an impact on us!#PelhamPD #belikewalter pic.twitter.com/d0zz0PMvnv— Pelham Police Dept (@PelhamPoliceAL) July 16, 2018
Bandaríkin Mest lesið Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Innlent Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Innlent Þriðja flugbrautin í Keflavík „rosalega dýr framkvæmd“ Innlent „Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Erlent Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja Erlent „Við eigum að hækka verðið á sykri“ Innlent Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Erlent Engin vettlingatök hjá Röggu þegar Mummi sökk í jökulvatn Innlent Gerir ráð fyrir áframhaldandi hækkun bensínverðs Innlent Hormússund sagt lokað á ný Erlent Fleiri fréttir Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja „Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Samstaða um að Beinir verði lögmaður Færeyja Hormússund sagt lokað á ný Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Gagnrýna tvískinnung Vance í Ungverjalandi Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Bauð Pútín að vera „músin“ hans Almenn ánægja með vopnahléið og vonir um endalok átaka Bein útsending: Artemis II á leiðinni heim Vance sakar ESB um kosningaafskipti á kosningafundi með Orbán Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Leikskólabarn lést eftir að það var kramið í koju Hvað er „sveitó“?: Spænskir stjórnmálaleiðtogar deila um Guernica Artemis II er á heimleið JD Vance heimsækir Orban fyrir kosningarnar um helgina Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Tillögum að vopnahléssamkomulagi komið til stríðandi fylkinga Tveir létust í snjóflóði í Hemsedal Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Orbán sakaður um sprengjutilræði Yfirmaður leyniþjónustunnar felldur Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Flugliðinn nú „alvarlega særður“ Kanna skothvelli við Hvíta húsið Upplausn í Borgaraflokknum og formaðurinn sakaður um alræði „Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar“ Sautján ára drengur lést í snjóflóði Sjá meira