Viðhorfsbreyting karla til ófrjósemisaðgerða Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 31. maí 2018 16:32 Ekki eru til upplýsingar um hversu margir fatlaðir hafa farið í slíkar aðgerðir. Vísir/Getty Images
Heildarfjöldi ófrjósemisaðgerða ársins 2017 sem framkvæmdar voru hér á landi voru 638 talsins sem er örlítið meiri en árið áður en árið 2016 voru 625 ófrjósemisaðgerðir framkvæmdar á Íslandi. Karlar voru í miklum meirihluta. Þetta kemur fram í Fréttabréfi landlæknis um heilbrigðisupplýsingar. Ef litið er til þróunar frá árinu 2000 má sjá að mikill viðsnúningur hefur orðið á tíðni ófrjósemisaðgerða eftir kyni. Þróun áratuganna tveggja gefur til kynna að ófrjósemisaðgerðum á körlum fjölgar jafnt og þétt til ársins 2013 en síðan þá hefur heildarfjöldi aðgerða haldist nokkuð stöðugur. Árið 2017 voru 542 aðgerðir framkvæmdar á körlum en 96 á konum. Í samantektinni kemur einnig fram að ófrjósemisaðgerðirnar voru algengastar hjá fólki á aldrinum 35 – 44 ára sem á jafnt við um karla og konur. Þá var einnig mikill munur á því hvar aðgerðirnar voru framkvæmdar eftir kyni. Flestar ófrjósemisaðgerðir sem framkvæmdar voru á karlmönnum voru á stofum sjálfstætt starfandi þvagfæraskurðlækna eða 92,3% árið 2017. Aðeins 7,7% ófrjósemisaðgerða á körlum voru gerðar á heilbrigðisstofnunum. Þessu er þveröfugt farið meðal kvenna sem leituðu flestar til heilbrigðisstofnana, eða 88% þeirra á meðan 12% aðgerðanna á konum voru framkvæmdar á stofum sjálfstætt starfandi sérfræðinga.
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Fleiri fréttir Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga Sjá meira