Hætti að koma með afsakanir og lét drauminn rætast Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 21. maí 2018 22:15 Annika hefur starfað við förðun í nokkur ár og ákvað núna að stofna sitt eigið fyrirtæki. Úr einkasafni/Annika Vignisdóttir
Förðunarfræðingurinn Annika Vignisdóttir ákvað að fylgja hjartanu og mun á næstu dögum opna sína eigin netverslun með förðunarvörur, Nordic Beauty. Ætlar hún einnig að bjóða upp á námskeið og fleira spennandi í kringum þetta nýja verkefni. „Ég elska förðunarvörur og allt sem tengist þeim hvort sem það er að farða, skoða, markaðssetja eða horfa á myndbönd af förðunarvörum og það heillar mig einnig að vinna sjálfstætt. Mér finnst ótrúlega gaman deila vörum með öðrum og mér finnst gaman að gefa öðrum ráð. Ég ákvað bara að fylgja hjartanu og gera það sem ég hef áhuga á,“ segir Annika í samtali við Vísi. Hún hafði hugsað um það í nokkur ár en aldrei látið verða að því. Vefverslun Anniku fékk nafnið Nordic Beuty. „Ég hef alltaf komið með afsakanir fyrir að gera þetta ekki en ákvað núna bara að koma með afsakanir fyrir að gera þetta, því þetta er það sem mig langar að gera og hef áhuga á. Ég byrjaði að vinna á snyrtistofum og förðunarverslunum um 18 ára. Ég lærði svo förðun í kringum 2008 fyrir um tíu árum síðan. Hef verið í þessum bransa síðan þá, allt frá því að farða, halda námskeið, kynna, blogga og markaðssetja förðunarvörur.“Mynd/Annika VignisdóttirAnnika valdi merkin út frá persónulegri reynslu og ætlar að bjóða upp á tvö merki sem eru ekki fáanleg hér á landi. „Bæði merkin eru bæði cruelty free og bjóða upp á fjölbreytt úrval. Þessi merki eru algjörir gullmolar sem ég hef leitað í aftur og aftur í gegnum árin og mig langaði til að deila ást minni á þessum merkjum með öðrum og hafa eitthvað nýtt og spennandi upp á að bjóða. Bæði merkin eru bæði cruelty free og bjóða upp á fjölbreytt úrval. Make-up Atelier eru franskar vörur sem eru afar vinsælar á meðal förðunarfræðinga og eru vel þekktar í bransanum. Sjálf lærði ég á þessar vörur á sínum tíma fyrir 10 árum síðan og hef alltaf saknað þeirra mikið. Face Stockholm er merki sem kemur frá Stokkhólmi. Merkið er ótrúlega flott og býður upp á einstakt litaúrval og hágæða vörur. Merkið er stórt úti í Svíþjóð og eru Face Stockholm búðir út um allt.“Mynd/Annika VignisdóttirHún segist ástfangin af þessum vörum og er mjög spennt að fá að kynna þær fyrir fleirum. Nordic Beauty mun einnig bjóða upp á förðunarnámskeið, kynningar og förðun. „Uppáhalds vörurnar frá Make-up Atelier er án efa Fluid farðinn og fluid hyljarinn, áferðin er engu öðru líkt, en þess má geta að Wayne goss „Youtube-ari“ er einmitt mikil aðdáandi þessa farðas líka, en Fluid foundation farðinn er einn af topp fimm uppáhalds förðunum hans núna 2018. Einnig vil ég nefna augnskuggana, uppáhalds pallettan mín þar heitir Smoky Brown og svo er það augabrúnablýantarnir frá þeim, þeir eru fáránlega góðir. Mínar uppáhalds vörur frá Face Stockholm eru varalitirnir og mínir uppáhalds litir heita Earth og Njuta, einnig er ég rosalega hrifin af kremaugnskuggunum, en þeir haldast á allan daginn og eru frábærir undir aðra augnskugga líka, því þeir virka eins og augnskuggagrunnar. Síðast en ekki síst vil ég nefna augnblýantana, en ég er hrifnust af litunum Gra og Mörkebrun.“
Mest lesið Nablinn hættur á leikskóla Lífið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Fjórðungur ekki með bókasafnskort Menning Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hrollvekjur til að horfa á yfir hrekkjavökuna Bíó og sjónvarp Keppast um að minnast Stewarts Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Lífið samstarf Spesíur Elenoru: Jólaklassík sem tekur aðeins 30 mínútur Lífið samstarf Skemmtileg leið til að halda minningunni á lífi Menning Fleiri fréttir Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Sjá meira