Önnur fjölskylda gerir árás í Indónesíu Samúel Karl Ólason skrifar 14. maí 2018 15:38 Minnst tíu særðust í árásinni í morgun. Vísir/AFP
Meðlimir fimm manna fjölskyldu, þar á meðal barn, gerðu sjálfsmorðsárásir á lögreglustöð í Surabaya í Indónesíu í morgun. Einungis einum degi eftir að meðlimir annarrar fjölskyldu gerðu sambærilegar árásir á kirkjur í borginni. Íslamska ríkið lýsti yfir ábyrgð á árásunum í gær þar sem átján manns, að árásarmönnunum meðtöldum, létu lífið. Minnst tíu særðust í árásinni í morgun. Faðir fyrri fjölskyldunnar er sagður vera einn af leiðtogum Jamaah Ansharut Daulah, eða JAD, sem hafa lýst yfir hollustu við Íslamska ríkið. Fjölskyldan sem gerði árásina í morgun hefur einnig verið tengd við JAD.Sjá einnig: Sex manna fjölskylda talin bera ábyrgð á árásum í Indónesíu„Þetta voru fimm manns á tveimur mótorhjólum. Einn af þeim var lítið barn. Þetta er ein fjölskylda," sagði Tito Karnavian, yfirmaður lögreglunnar í Indónesíu, við AFP fréttaveituna. Átta ára stúlka úr fjölskyldunni lifði sprengingarnar af en móðir hennar, faðir og tveir bræður dóu. Indónesía hefur lengi glímt við herskáa íslamista. Árið 2002 var gerð stærsta hryðjuverkaárásin í landinu þegar rúmlega 200 manns, að mestu erlendir ferðamenn, létu dóu í sprengjuárás í Balí. Asíuleikarnir verða haldnir í landinu eftir um þrjá mánuði og hafa vaknað áhyggjur um öryggisástand landsins og umsvif Íslamska ríkisins þar. Fjölmargir Indónesar ferðuðust til Sýrlands og gengu til liðs við ISIS. Yfirvöld óttast nú í margir þeirra snúi aftur, í kjölfar þess að ISIS hefur misst nánast allt sitt yfirráðasvæði í Sýrlandi og Írak, og reyni jafnvel að stofna nýtt kalífadæmi í suðaustur-Asíu.
Tengdar fréttir Ellefu látnir eftir sjálfsmorðsárásir í Indónesíu Ellefu eru látnir og 41 særðir eftir sprengjuárásir í borginni Surabaya í Indónesíu. Grunur leikur á að þrír árásarmenn hafi sprengt sig í loft upp í þremur kirkjum í borginni í morgun. 13. maí 2018 09:09 Fleiri sprengingar í Indónesíu Tveir mótorhjólamenn sprengdu sig í loft upp við höfuðstöðvar lögreglunnar í borginni Surabaya í Indónesíu í morgun. 14. maí 2018 05:45 Mest lesið Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Gunnar Þórðarson er látinn Innlent Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent Horfðu á bílinn velta niður fjallið Innlent Mosfellsdalur minnti á vígvöll Innlent Okkar McCartney, okkar Bach kveður Innlent Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Erlent Fleiri fréttir „Það sem hann gerði, ég get aldrei endurgoldið það“ Nítján ára Norðmaður dæmdur fyrir að taka að sér leigumorð á Englandi Bandaríkjamaður sagður smygla vopnum og málaliðum til Súdan Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Segjast hafa gert harða hríð að byltingarverðinum Minnst þrjátíu látnir í Japan Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Stofnandi Telegram ákærður og eftirlýstur í Rússlandi Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir Ebólan komin í metstærð á mettíma Nýr forseti hét því að beita hernum gegn glæpum Þrettán látnir hið minnsta í Japan Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Stukku fram af Geimnálinni Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Bandarískir hermenn ekki látnir svara til saka á Bretlandseyjum Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Árásirnar haldi áfram skili viðræðurnar ekki sínu Önnur hitabylgja nálgast Spán Kveiktu í tveimur moskum Handtekinn við Kastrup eftir að tilkynnt var um meinta skammbyssu Sjá meira
Ellefu látnir eftir sjálfsmorðsárásir í Indónesíu Ellefu eru látnir og 41 særðir eftir sprengjuárásir í borginni Surabaya í Indónesíu. Grunur leikur á að þrír árásarmenn hafi sprengt sig í loft upp í þremur kirkjum í borginni í morgun. 13. maí 2018 09:09
Fleiri sprengingar í Indónesíu Tveir mótorhjólamenn sprengdu sig í loft upp við höfuðstöðvar lögreglunnar í borginni Surabaya í Indónesíu í morgun. 14. maí 2018 05:45