Alex: Klár vítaspyrna, teikaði mig í teignum Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 14. maí 2018 21:29 Víkingar hafa enn ekki tapað leik vísir/ernir
Mikil dramatík var í leik Stjörnunnar og Víkings í lokaleik 3. umferðar Pepsi deildar karla í Garðabænum í kvöld. Fjórar vítaspyrnur voru dæmdar í leiknum, þar af ein sem Alex Freyr Hilmarsson nældi í í uppbótatíma. Rick Ten Voorde skoraði úr spyrnunni og tryggði Víkingi 3-3 jafntefli. En var þetta vítaspyrna? „Klárlega. Hann teikar mig þarna inni í teignum og annars hefði ég verið alveg í dauðafæri,“ sagði Alex Freyr eftir leikinn. Þjálfari hans, Logi Ólafsson, var sammála því að honum sýndist þetta vera vítaspyrna á meðan Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Stjörnunnar, sagðist ekki hafa séð atvikið nógu vel. Alex Freyr var sáttur með að ná stiginu en var heilt yfir ekki sáttur með frammistöðu síns liðs í leiknum. „Sáttur að hafa náð að jafna en við hefðum átt að gera svo miklu betur í þessum leik. Fínt að fá þetta stig, erfiður útivöllur og allt það, en við eigum að geta spilað svo miklu betur. Eigum að klára þetta lið á okkar degi.“ Víkingur er þó taplaus eftir fyrstu þrjár umferðirnar og margt jákvætt hægt að taka úr þeirra leik. „Við erum að mjakast áfram. Við náum toppnum bráðum,“ sagði Alex Freyr Hilmarsson.
Pepsi Max-deild karla Tengdar fréttir Leik lokið: Stjarnan - Víkingur 3-3 │ Fjögur víti í dramatísku jafntefli Það voru dæmdar fjórar vítaspyrnur er Stjarnan og Víkingur gerðu 3-3 jafntefli á Samsung-vellinum í Garðabæ. 14. maí 2018 22:00 Mest lesið Allt í rugli í Formúlunni: „Hvaða þvæla er í gangi?“ Formúla 1 Strákarnir sitja fastir Fótbolti Heimir íhugar ekki afsögn og UEFA þurfi að skoða sín mál Fótbolti Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku Fótbolti Arnar bregst við banni og meiðslum: Þrír nýir með landsliðinu til Tallinn Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Gat ekki munað nafnið eftir sextán hringi Sport Hundur truflaði sigur Skota í Skopje Fótbolti Ánægður með óvænt hrós: „Gaman að heyra þetta frá þér“ Fótbolti Dásamaði Ronaldo: „Hættir aldrei að vera merkasta táknmynd Portúgals“ Fótbolti Modric skammast sín Fótbolti Fleiri fréttir Breiðablik - Þróttur | Geta sett aðra höndina á titilinn FH - ÍBV | Hafnfirðingar þurfa sigur Sjáðu mörkin sem felldu Víking og Val Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn ,,Mikið í gangi í hausnum núna” „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Enn er penninn á lofti í Laugardal Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Sjáðu þrennu sextán ára Bríetar og hægasta sigurmark ársins Segir skipulagið fáránlegt: „Ekki sanngjarnt að annað liðið sé alltaf að elta“ Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - FH 3-2 | Áfall fyrir titilbaráttu FH Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 5-1 | Bríet Fjóla með þrennu í stórsigri Þróttar Sorgarferli að sættast við ónýtan skrokk „Þetta er þorpið manns“ Uppgjörið: ÍBV - Breiðablik 1-2 | Blikar verma toppinn Þrjú lið berjast um eitt öruggt sæti en Fram bjargaði sér „Enginn annar sem hafði trú á okkur en við sjálf“ Valur - Víkingur R. 1-1 | Valur enn á lífi Umfjöllun: Þór/KA - Fram 1-2 | Fram áfram í Bestu Valur í hættu á að falla í fyrsta skipti í sögunni Kanónur og ungstirni í ótrúlegri baráttu um Íslandsmeistaratitil Mattías Kjeld valdi KR Uppgjörið: Breiðablik - Czarni 2-6 | Blikar flengdir á pólskan máta Sigurður Egill og Aron Snær framlengja við Þrótt Owen farinn frá Val og fleiri breytingar boðaðar Uppgjörið: FH - Frankfurt 0-1| Eins marks tap gegn stórliðinu Ætla að refsa sigursælasta liði Póllands Sjá meira
Leik lokið: Stjarnan - Víkingur 3-3 │ Fjögur víti í dramatísku jafntefli Það voru dæmdar fjórar vítaspyrnur er Stjarnan og Víkingur gerðu 3-3 jafntefli á Samsung-vellinum í Garðabæ. 14. maí 2018 22:00