Forseti Palestínu segir gyðinga hafa kallað yfir sig helförina sjálfir Kjartan Kjartansson skrifar 3. maí 2018 09:00 Í níutíu mínútna sjónvarpsávarpi á mánudag gaf Abbas í skyn að gyðingar hafi kallað helförina yfir sig sjálfir með hegðun sinni í Evrópu. Vísir/AFP
Okur og bankastarfsemi var ástæðan fyrir gyðingaandúð í Evrópu sem leiddi á endanum til helfarar nasista gegn þeim. Þetta var boðskapur Mahmoud Abbas, forseta Palestínu, til samlanda sinna í sjónvarpsávarpi á mánudag. Abbas staðhæfði að fullyrðingar sínar byggðust á skrifum rithöfunda úr röðum gyðinga um að andúð á þeim hafi ekki byggst á trú þeirra heldur athöfnum þeirra í samfélaginu, að því er segir í frétt Washington Post. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Abbas lýsir vafasömum skoðunum um helförina. Í doktorsritgerð sinni setti hann spurningamerki við að sex milljónir gyðinga hefðu raunverulega verið drepnar í helförinni. Þá hefur hann haldið því fram að síonistar og nasistar hafi unnið saman að því að senda gyðinga til landsvæðisins sem nú er Ísrael. Ummæli Abbas nú hafa vakið harða gagnrýni. Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, tísti um að Abbas hefði enn og aftur endurtekið „fyrirlitlegustu gyðingahatursskröksögurnar“. Sakaði hann Abbas um „algera fáfræði“ og „blygðunarlausa ósvífni“. Fulltrúar Bandaríkjanna og Evrópusambandsins hafa einnig fordæmt ávarp Abbas og sagt skoðanir hans á helförinni óviðunandi. „Orðræða af þessu tagi verður aðeins vopn í höndum þeirra sem vilja ekki tveggja ríkja lausn, sem Abbas forseti hefur ítrekað talað fyrir,“ sagði utanríkisþjónusta Evrópusambandsins í gær.
Mest lesið Guðmundur Felix kominn með krabbamein Innlent Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Innlent „Ég er skrímsli“ Innlent Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Innlent Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Innlent Landhelgisgæslan sótti mann í Vestmannaeyjum Innlent Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Erlent Harðar deilur innan klerkastjórnarinnar Erlent Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Innlent Líður eins og Gísli á Uppsölum sé kominn heim Innlent Fleiri fréttir Harðar deilur innan klerkastjórnarinnar Níu felldir í Kænugarði Kallað eftir skyndifundi innanríkisráðherra ESB Myndir: Tugir þúsunda syntu til Ceuta Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Hamasliðar samþykkja að afvopnast Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólahring Trump segir Hamas samþykkja að afvopnast og Ísrael að hverfa frá Gasa „Hún drap börnin“ „Það sem hann gerði, ég get aldrei endurgoldið það“ Nítján ára Norðmaður dæmdur fyrir að taka að sér leigumorð á Englandi Bandaríkjamaður sagður smygla vopnum og málaliðum til Súdan Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Segjast hafa gert harða hríð að byltingarverðinum Minnst þrjátíu látnir í Japan Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Stofnandi Telegram ákærður og eftirlýstur í Rússlandi Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir Ebólan komin í metstærð á mettíma Nýr forseti hét því að beita hernum gegn glæpum Þrettán látnir hið minnsta í Japan Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Sjá meira