Fyrsti kvenkyns flugmaður Afganistan fær hæli í Bandaríkjunum Samúel Karl Ólason skrifar 30. apríl 2018 23:36 Niloofar Rahmani, fyrsti kvenkyns flugmaður Afganistan. Vísir/AFP
Höfuðsmaðurinn Niloofar Rahmani hefur fengið hæli í Bandaríkjunum. Hún flaug fyrir afganska herinn og var fyrsta konan til að gera það. Hún segist ekki geta búið lengur í Afganistan öryggis síns vegna og hefur haldið til í Bandaríkjunum þar sem hún lauk þjálfun sinni. Yfirvöld Afganistan reiddust verulega þegar hún sótti um hæli í Bandaríkjunum og sögðu hana ljúga um að vera í hættu, þá ekki bara frá Talíbönum heldur einnig félögum sínum í hernum og jafnvel frá nágrönnum sínum og ættingjum. Fjölskylda Rahmani hefur ítrekað þurft að flytja í Afganistan vegna hótana. Hún sótti um hæli árið 2016. Varnarmálaráðuneyti Afganistan bað yfirvöld Bandaríkjanna á sínum tíma að hafna beiðni hennar og senda hana aftur til Afganistan. „Þegar yfirmaður í hernum kvartar vegna óöryggis og er hræddur við ógnanir, hvað getur venjulegt fólk þá gert?“ sagði Mohammad Radmanish, hershöfðingi og talsmaður ráðuneytisins við Reuters í desember 2016. Á svipuðum tíma sagði Radmanish við New York Times að hún hefði logið um að vera í hættu til að fá hæli í bandaríkjunum. Ofurstinn Ayan Khan sagði sömuleiðis að það væri ómögulegt að hún hefði verið áreitt af öðrum hermönnum. „Hvernig geta þeir áreitt kvenkyns samstarfsmann sem þjónar með þeim?“ spurði Khan. Árið 2015 fékk Rahmani hugrekkisverðlaun Utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna. Á verðlaunaathöfninni kom fram að hún var einungis átján ára gömul þegar hún sótti um inngöngu í herinn. Þar kom einnig fram að hún hefði ítrekað fengið morðhótanir en væri þrátt fyrir það að kvetja aðrar ungar konur til að fylgja fordæmi sínu.Rahmani fær verðlaun sín eftir um tíu mínútur.
Mest lesið Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Stórfelldur niðurskurður fyrirhugaður í vegagerð Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Innlent Fleiri fréttir Reyndi að vara við að flugvélin færi of hratt Tugir látnir í eldsvoða í flutningaskipi í Kína Boðar til skyndikosninga til að lægja öldurnar í Serbíu Ætli að gefa öllum þúsundir dollara ef repúblikanar sigra Játar aðild að einu stærsta Bitcoin-þjófnaðarmáli sögunnar Heitasta sumarið í Vestur-Evrópu Pakistanar sögðu klerkastjórninni að koma böndum á Húta Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Selenskí kíkti á klakann Gaf Harp og tveimur öðrum ráðgjöfum milljónir í jólagjöf Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Leita enn að Renoir-þjófunum Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Sjá meira