Hrun hjá Hlíðarendafélaginu á öllum vígstöðum í vetur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. apríl 2018 16:00 Snorri Steinn Guðjónsson. Vísir/Vilhelm
Valsmenn fengu skell þegar þeir duttu út úr Evrópukeppninni, þeir fengu skell þegar duttu út úr bikarnum og þeir fengu skell þegar þeir voru sendir í sumarfrí í úrslitakeppninni. Þetta var svo sannarlega ekki tímabil Hlíðarendaliðsins. Valsmenn koma inn í þetta tímabil sem ríkjandi Íslands- og bikarmeistarar í handbolta auk þess að komast í undanúrslit Evrópukeppninnar á mögnuðu tímabili í fyrra. Það var hinsvegar hrun hjá Hlíðarendaliðinu á öllum vígstöðum á þessari leiktíð. Fyrsta tímabil Snorra Steins Guðjónssonar sem þjálfara voru mikil vonbrigði því það var ekki aðeins sú staðreynd að Valsmenn misstu báða titlana frá sér heldur miklu frekar hvernig þeir duttu úr keppni á öllum þremur vígstöðum. Valsmenn töpuðu með sjö marka mun þegar þeir duttu út úr bikarnum, þeir töpuðu með 9 marka mun þegar þeir duttu út úr Evrópukeppninni og þeir töpuðu með 10 marka mun þegar þeir duttu út á móti Haukum í gær. Valsliðið brotnaði í hvert skipti þar sem reyndi virkilega á það og fyrir vikið var liðið langt frá því að endurtaka afrek sín frá því í fyrra. Valur vann aðeins tvo leiki í úrslitakeppni, bikar eða Evrópukeppni en það eru fjórtán færri sigurleikir en í fyrra. Samanburð á þessu má sjá hér fyrir neðan.Munur á sigurleikjum Valsmanna 2016/17 og 2017/18Úrslitakeppnin 2016-17: 8 2017-18: 0Munur: -8Bikarkeppnin 2016-17: 4 2017-18: 1Munur: -3Evrópukeppnin 2016-17: 4 2017-18: 1Munur: -3Samtals í úrslitakeppni, bikar og Evrópukeppni: 2016-17: 16 2017-18: 2Munur: -14
Olís-deild karla Mest lesið Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz Enski boltinn Sá þriðji yngsti í sögu efstu deildar Íslenski boltinn HM-hetja mun stýra Alberti Fótbolti „Þegar gengur vel þá tekurðu aðeins á loft“ Fótbolti Stjarnan - Víkingur 1-3 | Toppliðið áfram í toppmálum Íslenski boltinn Uppgjörið: KR - Valur 3-1 | KR-ingar aftur á sigurbraut Íslenski boltinn Rodri ekki meira með KA í ár Íslenski boltinn City að vinna United í slagnum um Anderson Enski boltinn „Restin var bara ekki með“ Fótbolti Bæði lið í svörtu og rauðu: „Þetta er fáránlegt, við sjáum ekkert hver er hvað“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Rúnar sigraði á móti sínum gömlu íslensku lærisveinum Donni og félagar komnir í úrslit Allt jafnt í úrslitaeinvíginu Einar Rafn snýr aftur í Fjörðinn Haukur mikilvægari en Gidsel Haukur fær nýjan samning eftir ótrúlega leiktíð Samningur í höfn: Þjóðverjar treysta á Alfreð fram yfir ÓL í Los Angeles Dagur orðaður við stórlið en kapallinn langur Skipað að ganga frá samningi við Alfreð sem fyrst Gísli Þorgeir tryggði Magdeburg þýska meistaratitilinn Elín Klara endaði leikinn með látum og er einum sigri frá titlinum Þjálfari Magdeburg sækist ekki eftir starfi Alfreðs Donni dreginn að landi af liðsfélögunum Magnaður Einar Bragi með ellefu mörk í fyrsta úrslitaleiknum Íslenskættaða goðsögnin hættir 44 ára að aldri Guðjón Valur pollrólegur yfir stöðunni Hörð gagnrýni á Alfreð: „Hann hefur ekkert lært“ Ungverjagrýlunni hent út en gæti enn fengið boð á ballið Naumt tap hjá Íslendingaliðinu í fyrri úrslitaleiknum Færeyingar í skýjunum með HM-sætið: „Eigum bara eftir að verða betri“ Færeyjar á HM í fyrsta sinn Strákarnir hans Dags unnu Svía Yngri bróðir Sagosen steig á svið er Noregur komst á HM Sjá meira