Húsleit hjá BMW vegna rannsóknar á útblásturssvindli Kjartan Kjartansson skrifar 20. mars 2018 22:34 Höfuðstöðvar BMW í München í Þýskalandi. Fyrirtækið er helst þekkt fyrir sportbíla sína. Vísir/AFP
Þýskir saksóknarar gerðu húsleit á skrifstofu bílaframleiðandans BMW í München í dag. Húsleitin tengist rannsókn þeirra á svindli bílaframleiðenda á útblástursprófum. Kanna þeir hvort að hugbúnaður í dísilbílum BMW hafi verið notaður til að láta þá líta út fyrir að menga minna í prófunum. Hneykslið í kringum svindlið á útblástursprófunum hefur leikið suma þýska bílaframleiðendur eins og Volkswagen grátt. Fyrirtækið hefur þurft að greiða milljarða dollara í sektir. BMW hefur hins vegar fram að þessu verið ósnortið af því, að því er segir í frétt New York Times. Um hundrað rannsakendur tóku þátt í húsleitinni í München og í vélarverksmiðju í Austurríki. Þeir segja að rannsóknin beinist að því hvort að hugbúnaðurinn takmarki mengun frá bílnum þegar verið er að prófa hann en leyfi meiri útblástur þegar hann er kominn út á göturnar. Í yfirlýsingu segja forsvarsmenn BMW að hugbúnaðurinn sem var orsök húsleitarinnar hafi verið settur upp fyrir mistök. Fyrirtækið hafi ekki ætlað að blekkja yfirvöld vísvitandi. Það ætlar að innkalla á tólfta þúsunda bíla sem eru með hugbúnaðinn. Til samanburðar var hugbúnaður sem notaður var til að svindla á prófum í ellefu milljónum bifreiða Volkswagen um víða veröld.
Mest lesið Vaktin: Verkfallsaðgerðum flugvirkja aflýst Innlent Ætluðu að setja lög á verkfall flugvirkja Innlent Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Innlent Flugvirkjar aflýsa verkfalli Innlent Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent Fella niður 26 flugferðir Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Innlent Segir stóra ákvörðun framundan Erlent „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Innlent Fleiri fréttir Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Í leyfi á meðan kosningasvik eru til rannsóknar Bein útsending: Ræða Trumps á allsherjarþinginu Bretar ætla að aðstoða Sáda gegn Hútum Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Rétta yfir konu spænska forsætisráðherrans Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Stefna að tveimur nýjum herstöðvum á Grænlandi Sniðganga Hvíta húsið Bað Selenskí um að stöðva árásir á rússneskar olíuvinnslur Höfða mál gegn Trump vegna bannsins Pútín sló öll met Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Maður á níræðisaldri lést í átökum um sólbekk Noregur og Kanada auka samstarf í varnarmálum Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Mótmæli í Texas vegna ICE-liða Kallar kosningarnar „hörmung“ en heitir því að fara ekki fet Senda Trump pillu vegna Ameríkukorts „Myndi ekki skrifa undir samkomulag ef það væri ekki gott“ Framtíð kanslarans í húfi Ætlar sér að skipa „gervigreindarkeisara“ Sérstakt veiðileyfi gefið út eftir að hákarl banaði sundmanni á sjötugsaldri Sjá meira