FH-ingar gætu á endanum ráðið því hvort ÍBV eða Selfoss verður meistari Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. mars 2018 16:00 ÍBV unnu bikarinn á dögum og geta unnið annan titil í kvöld. Vísir/Valli
Þrjú félög eiga möguleika á því að verða deildarmeistari í Olís deild karla en lokaumferðin fer fram í kvöld. ÍBV, Selfoss og FH eru öll jöfn að stigum og geta einnig verið það áfram eftir leiki kvöldsins. Líklegast er því að innbyrðisviðureignir muni ráða sætum liðanna. ÍBV kemur í heimsókn til Fram í Safamýri, Selfoss fær botnlið Víkinga í heimsókn og FH spilar við nágranna sína úr Stjörnunni í Garðabæ. Allt eru þetta leikir sem menn búast fyrirfram við öruggum sigrum hjá ÍBV, Selfoss og FH. Vinni öll liðin þá verður ÍBV deildarmeistari en Eyjamenn þurfa að hafa FH með í pakkanum til að komast upp fyrir Selfoss. ÍBV og Selfoss eru jöfn í innbyrðisleikjum en Selfoss yrði ofar á betri heildarmarkatölu verði bara þau lið jöfn. Eyjamenn vilja hinsvegar fá FH með í pakkann því þá mun átta marka sigur ÍBV á FH síðan í febrúar skila liðinu deildarmeistaratitlinum. Á endanum gæti það farið svo að úrslit leiks FH-ingar muni ráða því hvort ÍBV eða Selfoss verður deildarmeistari. ÍBV og Selfoss gætu þannig verið búin að klára sína leiki snemma og komin með augun á Ásgarði þar sem Stjörnumenn gætu mögulega staðið eitthvað í FH-liðinu. Eina undartekning á því væri ef ÍBV vinnur átta marka stærri sigur á Fram en Selfoss vinnur á Víkingum. Þá myndi ÍBV taka deildarmeistaratitilinn á betri heildarmarkatölu en Selfoss.Röð liðanna verður ef ...... öll liðin vinna 1. ÍBV 34 stig 2. Selfoss 34 stig 3. FH 34 stig... bara ÍBV og FH vinna 1. ÍBV 34 stig 2. FH 34 stig 3. Selfoss 32 eða 33 stig... bara ÍBV og Selfoss vinna* 1. Selfoss 34 stig 2. ÍBV 34 stig 3. FH 32 eða 33 stig... bara FH og Selfoss vinna 1. Selfoss 34 stig 2. FH 34 stig 3. ÍBV 32 eða 33 stig... öll liðin tapa 1. ÍBV 32 stig 2. Selfoss 32 stig 3. FH 32 stig* ÍBV þarf að vinna átta mörkum stærri sigur en Selfoss til að ná efsta sætinu.
Olís-deild karla Mest lesið Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz Enski boltinn Sá þriðji yngsti í sögu efstu deildar Íslenski boltinn HM-hetja mun stýra Alberti Fótbolti „Þegar gengur vel þá tekurðu aðeins á loft“ Fótbolti Stjarnan - Víkingur 1-3 | Toppliðið áfram í toppmálum Íslenski boltinn Uppgjörið: KR - Valur 3-1 | KR-ingar aftur á sigurbraut Íslenski boltinn Rodri ekki meira með KA í ár Íslenski boltinn City að vinna United í slagnum um Anderson Enski boltinn „Restin var bara ekki með“ Fótbolti Bæði lið í svörtu og rauðu: „Þetta er fáránlegt, við sjáum ekkert hver er hvað“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Rúnar sigraði á móti sínum gömlu íslensku lærisveinum Donni og félagar komnir í úrslit Allt jafnt í úrslitaeinvíginu Einar Rafn snýr aftur í Fjörðinn Haukur mikilvægari en Gidsel Haukur fær nýjan samning eftir ótrúlega leiktíð Samningur í höfn: Þjóðverjar treysta á Alfreð fram yfir ÓL í Los Angeles Dagur orðaður við stórlið en kapallinn langur Skipað að ganga frá samningi við Alfreð sem fyrst Gísli Þorgeir tryggði Magdeburg þýska meistaratitilinn Elín Klara endaði leikinn með látum og er einum sigri frá titlinum Þjálfari Magdeburg sækist ekki eftir starfi Alfreðs Donni dreginn að landi af liðsfélögunum Magnaður Einar Bragi með ellefu mörk í fyrsta úrslitaleiknum Íslenskættaða goðsögnin hættir 44 ára að aldri Guðjón Valur pollrólegur yfir stöðunni Hörð gagnrýni á Alfreð: „Hann hefur ekkert lært“ Ungverjagrýlunni hent út en gæti enn fengið boð á ballið Naumt tap hjá Íslendingaliðinu í fyrri úrslitaleiknum Færeyingar í skýjunum með HM-sætið: „Eigum bara eftir að verða betri“ Færeyjar á HM í fyrsta sinn Strákarnir hans Dags unnu Svía Yngri bróðir Sagosen steig á svið er Noregur komst á HM Sjá meira