Xabi Alonso sakaður um skattsvik Kjartan Kjartansson skrifar 21. mars 2018 17:51 Baskneski knattspyrnumaðurinn Xabi Alonso lék síðast með þýska liðinu Bayern München. Hann lagði skóna á hilluna í fyrra. Vísir/Getty
Saksóknarar á Spáni saka Xabi Alonso, fyrrverandi leikmann knattspyrnuliðanna Liverpool og Real Madrid, um skattsvik á árunum sem hann spilaði fyrir spænska liðið. Alonso neitar sök en allt að fimm ára fangelsi liggur við brotunum. Í frétt breska ríkisútvarpsins BBC kemur fram að Alonso sé sakaður um að skulda spænska ríkinu tvær milljónir evra vegna tekna af ímyndarrétti sem hann gaf ekki upp til skatts. Alonso lék með Real Madrid frá 2010 til 2012. Auk fangelsisrefsingar krefjast saksóknararnir þess að Alonso greiði fjórar milljónir evra auk skattsins sem spænska ríkið telur sig hafa verið hlunnfarið um. Fjármálaráðgjafi Alonso er einnig ákærður og krefjast saksóknararnir sömu refsingar yfir honum. Þá er stjórnandi portúgalsks félags sem ráðgjafinn á að hafa notað til að forðast að greiða skattinn ákærður. Spænsk skattayfirvöld hafa undanfarið sótt nokkurn fjölda knattspyrnumanna til saka. Þekktastur þeirra er Lionel Messi, framherji Barcelona og argentínska landsliðsins, sem var dæmdur í 21 mánaðar skilorðsbundið fangelsi. Þá hefur Cristiano Ronaldo, stórstjarna Real Madrid, verið sakaður um að skjóta undan milljónum evra. Hann hefur vísað öllum slíkum ásökunum á bug.
Mest lesið Ætluðu að setja lög á verkfall flugvirkja Innlent Vaktin: Verkfallsaðgerðum flugvirkja aflýst Innlent Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Innlent Flugvirkjar aflýsa verkfalli Innlent Fella niður 26 flugferðir Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Innlent „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Innlent Segir stóra ákvörðun framundan Erlent Fleiri fréttir Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Í leyfi á meðan kosningasvik eru til rannsóknar Bein útsending: Ræða Trumps á allsherjarþinginu Bretar ætla að aðstoða Sáda gegn Hútum Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Rétta yfir konu spænska forsætisráðherrans Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Stefna að tveimur nýjum herstöðvum á Grænlandi Sniðganga Hvíta húsið Bað Selenskí um að stöðva árásir á rússneskar olíuvinnslur Höfða mál gegn Trump vegna bannsins Pútín sló öll met Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Maður á níræðisaldri lést í átökum um sólbekk Noregur og Kanada auka samstarf í varnarmálum Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Mótmæli í Texas vegna ICE-liða Kallar kosningarnar „hörmung“ en heitir því að fara ekki fet Senda Trump pillu vegna Ameríkukorts „Myndi ekki skrifa undir samkomulag ef það væri ekki gott“ Framtíð kanslarans í húfi Ætlar sér að skipa „gervigreindarkeisara“ Sérstakt veiðileyfi gefið út eftir að hákarl banaði sundmanni á sjötugsaldri Sjá meira