Erfiðar akstursaðstæður á Vestfjörðum Stefán Ó. Jónsson skrifar 23. mars 2018 07:29 Ísfirðingar mega gera ráð fyrir hvassviðri í dag. Vísir/Rósa
Þó svo að útlit sé fyrir hæga suðlæga, breytilega átt á landinu í dag mega Vestfirðingar búast við töluverðu hvassviðri. Veðurstofan gerir ráð fyrir norðan 13 til 18 m/s með snjókomu á Vestfjörðum í dag og því er gul viðvörun í gildi fyrir svæðið fram á miðjan dag. Jafnframt má ætla að akstursskilyrði þar verði erfið vegna takmarkaðs skyggnis og jafnvel þæfings á vegum, sérílagi fjallvegum á svæðinu. Þá mun einnig bæta í vind vestast á landinu í dag, allhvasst verður á Snæfellsnesi uppúr hádegi og strekkingur Reykjanesi í kvöld með úrkomu en áfram mun hægari vindur annarsstaðar. Hitinn verður á bilinu 0 til 4 stig en gera má ráð fyrir næturfrosti, jafnvel talsverðu fyrir norðan að mati Veðurstofunnar. Einnig má ætla að stöku slydduél heilsi upp á landsmenn í dag en að það verði bjart og milt veður austast á landinu. Búast má við norðvestan kalda á morgun og að það verði úrkomuminna en síðan norðaustlægari áttir með dálitlum slydduéljum eða élum, einkum norðaustantil en úrkomulítið sunnanlands á sunnudag. Veðurhorfur á landinu næstu dagaÁ laugardag:Norðvestlæg átt 8-13 m/s en hægari austanlands. Dálítil él eða slydduél, en þurrt og bjart sunnan- og suðaustanlands. Hiti um og undir frostmarki.Á sunnudag:Austlæg átt 5-13 og svolítil él eða slyddél, einkum á Austurlandi en léttskýjað suðvestantil. Hiti kringum frostmark.Á mánudag:Suðaustan 13-20 m/s og rigning eða slydda, en heldur hægari og úrkomulítið norðaustanlands. Hiti 0 til 5 stig en vægt frost í innsveitum.Á þriðjudag og miðvikudag:Útlit fyrir ákveðna suðaustan átt og lengst af rigning eða slydda um sunnanvert landið, en þurrt að mestu norðanlands. Hiti breytist lítið.Á fimmtudag:Hæg norðlæg eða breytileg átt og dálítil él norðanlands en léttskýjað syðra. Hiti um og undir frostmarki.
Veður Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira