Aguero ræðir endalok sín hjá Man City við argentínska fjölmiðla Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. mars 2018 14:00 Sergio Aguero. Vísir/Getty
Argentínski landsliðsframherjinn vill enda ferilinn í Argentínu en ætlar þó að spila tvö tímabil í viðbót með Manchester City. Samningur Sergio Aguero og Manchester City rennur út sumarið 2020 og það lítur út fyrir að hann verði ekki endurnýjaður ef marka má nýtt viðtal við framherjann. Aguero er nú staddur í verkefni með argentínska landsliðinu í fótbolta og þar ítrekaði hann vilja sinn til að spila síðustu árin sín í Argentínu. Sky Sports segir frá. Sergio Aguero er 29 ára gamall og verðu því aðeins 31 árs þegar samningurinn rennur út. Þá vill hann yfirgefa England og fara til Independiente. Aguero lék með argentínska liðinu til ársins 2006 þegar hann fór til Atlético Madrid þar sem hann var síðan í fimm ár eða til 2011. Sergio Aguero hefur spilað í sjö tímabil með Manchester City, er orðinn markahæsti leikmaður félagsins frá upphafi og hann er á góðri leið með að verða enskur meistari í þriðja sinn. „Ég hef alltaf sagt að ég vilji fara aftur til Independiente þegar samningur minn við City rennur út og það er árið 2020. Ég er samt ekki að hugsa um það núna. Ég einbeiti mér að því að enda tímabilið vel og komast á HM,“ sagði Sergio Aguero við Fox Sports í Argentínu. Sergio Aguero og félagar í argentínska landsliðinu mæta spænska landsliðinu í vináttulandsleik annað kvöld en sá leikur fer fram á Wanda Metropolitano leikvanginum í Madrid sem er heimavöllur Atletico.
Enski boltinn HM 2018 í Rússlandi Mest lesið Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Fótbolti Vilja forðast kynferðislega myndatöku í frjálsum Sport Reyndu að brjótast inn í hús Yamals Fótbolti De la Fuente: „Við teljum okkur ósigrandi“ Fótbolti Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Fótbolti „Miður mín fyrir hönd allra“ Fótbolti Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Körfubolti Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Enski boltinn Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Körfubolti Messi allt í öllu þegar Argentína fór í úrslitaleikinn Fótbolti Fleiri fréttir Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Sjá meira